Morgunblaðið - 21.01.2021, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 21.01.2021, Blaðsíða 58
58 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021 Mikilvægi C-vítamíns er óumdeilt, en C-vítamín er m.a. þekkt fyrir að stuðla að eðlilegri starfsemi ónæmis- og taugakerfis ásamt því að draga úr þreytu og lúa. Óhætt að nota á meðgöngu og meðan á brjóstagjöf stendur. Bragðgóður munnúði með náttúrulegt kirsuberja- og bláberja bragði. C-vítamín munnúði ásamt andoxunarefnum frá acerola ávöxtnum, B2 vítamíni, seleni og grænu tei Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. C-vítamín munnúði NÝTT 50 ára Kristín er Sauðkrækingur en býr í Kópavogi. Hún er með meistara- gráðu í uppeldis- mannfræði frá Ár- ósaháskóla og er mannauðsstjóri þjón- ustu- og nýsköpunarsviðs hjá Reykja- víkurborg. Maki:Valdimar Óskar Óskarsson, f. 1963, forstjóri upplýsinga- og öryggis- fyrirtækisins Syndis. Börn: Egill Örn, f. 1994, og Sara Lind, f. 1997. Foreldrar: Hólmfríður Rögnvaldsdóttir og Guðmundur Halldórsson, búsett í Reykjavík. Kristín Sigrún Guðmundsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þurfirðu á aðstoð að halda skaltu hafa allar klær úti og tala við þá sem valdið hafa. Gakktu ekki of nærri sjálfum þér þó verkefnin séu mörg. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er alltaf hægt að læra eitthvað af öðrum hvort sem það eru nú hlutir sem gott er að nota eða ber að forðast. Farðu varlega í umferðinni. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Láttu það ekki skemma fyrir þér, þótt einhverjir neiti að taka þig alvarlega og vilji slá öllu upp í grín. Njóttu þess að geta slakað á með börnunum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er aldrei of seint að eignast nýja vini. Fólkinu í kringum þig þykir innilega vænt um þig og öfugt. Smá nöldur í ættingja bítur ekkert á þig. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Gættu þess að hafa ekki of mörg járn í eldinum. Þú gerir alla brjálaða með spurn- ingum þínum en þeir eiga eftir að þakka þér. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Dagarnir eru rómanstískir hjá þér núna. Vanalega reynist þér það létt að vakna snemma en ekki einmitt núna. Hvað veldur? 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú ert tilfinningarík manneskja sem af einhverjum ástæðum er eitthvað dofin í dag. Þér hættir til að hafa of miklar áhyggjur af fólkinu þínu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú laðar að þér einstaklega hlýja manneskju í dag. Hertu upp hugann því nú hefurðu allt að vinna og engu að tapa. Sýndu þínar bestu hliðar og njóttu augna- bliksins. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Einhverjir vilja pranga inn á þig hlutum sem þú hefur í raun og veru enga þörf fyrir. Einhver vill nálgast þig meira en þér finnst gott. Vertu hreinskilinn. 22. des. - 19. janúar Steingeit Kláraðu allt sem fyrir liggur áður en þú byrjar á nýjum verkefnum. Gefðu þér tíma til staldra við og skipuleggja þig fram í tímann. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Eitthvert samband hangir á blá- þræði og boltinn er nú í þínum höndum. Hvernig geturðu lært af þessu öllu saman? 19. feb. - 20. mars Fiskar Það hvílir þungt á þér að finna að vin- ur þinn á í baráttu. Vertu til staðar, þú þarft ekkert að gera annað. Allt er gott sem endar vel. Lilja, f. 9.1. 1983, sérfræðingur í máltækni, unnusti hennar er Ólafur Sindri Ólafsson forritari, barn hanna og byggja upp heilan upplif- unargarð. Hún er skapandi og dug- leg að skreyta umhverfið sitt, er ættrækin, mikil kvenfélagskona og hefur tekið þátt í starfi íþrótta- félagsins Suðra á Selfossi með syni sínum Reyni. Fjölskylda Eiginmaður Sigrúnar er Ingólfur Guðnason, f. 12.8. 1956, garðyrkju- fræðingur og námsbrautarstjóri garðyrkjuframleiðslu við Garð- yrkjuskólann á Reykjum í Ölfusi. Þau eru búsett í Hveragerði. Faðir Ingólfs er Guðni Egill Guðnason, f. 28.8. 1923, d. 17.12. 2012, ólst upp á Suðureyri við Súgandafjörð. Lengst af starfaði hann sem aðalbókari Eimskipafélags Íslands. Móðir Ing- ólfs og eiginkona Guðna er Brita Marie Guðnason húsmóðir, f. 21.11. 1927 í Helsinki, ólst upp í Finnlandi og Kaupmannahöfn. Hún er búsett í Reykjavík. Börn Sigrúnar og Ingólfs eru þrjú og eitt fósturbarn: 1) Svanhvít S igrún Elfa Reynisdóttir er fædd 21. janúar 1961 í Reykjavík. Hún bjó frá 7 ára aldri í Neðra- Breiðholti, en var frá 7 ára aldri alltaf í sveitadvöl á sumrin á Krossi í Lundarreykjadal hjá ömmu sinni og afa, og líka hjá móð- urbræðrum sínum, Sigurði og Ósk- ari. Sigrún stundaði nám í Ísaksskóla, Breiðholtsskóla og Ármúlaskóla, varð búfræðingur frá Hvanneyri 1978, garðyrkjufræðingur frá Garð- yrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi 1980 og leikskólakennari frá KÍ 2001. Sigrún starfaði í garðyrkjuvinnu á ýmsum stöðum en stofnaði svo Garðyrkjustöðina Engi í Laugarási árið 1984 ásamt eiginmanni sínum, Ingólfi Guðnasyni. „Við byggðum stöðina upp og bjuggum þar í 33 ár þar til við seldum stöðina og fluttum í Hveragerði.“ Meðfram því vann Sigrún í leikskólanum Álfaborg í Reykholti á veturna í hlutastarfi frá 1993 til 2017. Nú vinnur hún á Sól- heimum í Grímsnesi sem fagstjóri í kertagerð. Sigrún hefur verið virkur félagi í Kvenfélagi Biskupstungna frá 1985 og sungið með Skálholtskórnum með hléum frá 1989. Hún hlaut Um- hverfisverðlaun Bláskógabyggðar 2012 og 2016 og Hvatning- arverðlaun garðyrkjunnar árið 2010 ásamt eiginmanni sínum. „Á Engi létum við marga af okkar draumum rætast, svo sem að rækta alls konar lífrænt grænmeti, ávexti, kryddjurtir, tré og blóm. Við gerð- um líka völundarhús úr íslenskum gulvíði, sem var 1.000 fermetrar. Við rákum grænmetismarkað og bjuggum meðal annars til berfóta- garð sem var mjög vinsæll.“ Sigrún hefur alls konar áhuga- mál. „Ég mála, þæfi ull og föndra mér til skemmtunar.“ Svanhvít, dóttir Sigrúnar, segir að hún sé sér- lega hugmyndarík og óhrædd við að hrinda hugmyndunum sínum í fram- kvæmd, hvort sem það er að búa til útikerti úr Ora-baunadósum, drífa alla móðurættina í fjallgöngu í fót- spor langafa og langömmu eða þeirra er Dagbjartur Ingi, f. 5.9. 2020, búsett í Reykjavík; 2) Reynir Arnar Ingólfsson, f. 2.3. 1986, póst- Sigrún Elfa Reynisdóttir, garðyrkjukona og leikskólakennari – 60 ára Fjölskyldan Frá vinstri: Svanhvít Lilja, Reynir Arnar, Sigrún, Ingólfur og María Sól á jólum árið 2016. Dugleg að skreyta umhverfið sitt Garðyrkjukonan Sigrún að undirbúa markað á Engi. Atli Már Sigurðsson sendiráðunautur fagnar fertugs- afmæli sínu í Bruss- el. Hann mun ekki fara út að borða enda allt lokað – og líka miklu betra að borða heima. En hann mun fá köku, heimabakaða af ástkærri eig- inkonu, Margréti Björnsdóttur. Sóley og Þorsteinn Úlfur senda heillakveðj- ur á föður sinn. Árnað heilla 40 ára 30 ára Ásta er Reyk- víkingur, ólst upp í Langholtshverfi, en býr í Sjálandshverfi í Garðabæ. Hún er tölvunarfræðingur að mennt frá Háskól- anum í Reykjavík og er hugbúnaðarsérfræðingur hjá SAGlobal Iceland. Ásta er í Flugbjörg- unarsveitinni. Systir: Silja, f. 1993. Foreldrar: Helga Hanna Sigurðardóttir, f. 1962, bókari hjá Ísaga, búsett í Garðabæ, og Ægir Steinn Sveinþórs- son, f. 1964, d. 2017, stýrimaður og skrifstofumaður hjá Félagi skipstjórn- armanna. Ásta Ægisdóttir Til hamingju með daginn Reykjavík Dagbjartur Ingi Ólafsson er fæddur 5. september 2020 kl. 7:19. Hann vó 3.592 g og var 50 cm langur. Foreldrar hans eru Svanhvít Lilja Ing- ólfsdóttir og Ólafur Sindri Ólafsson. Nýr borgari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.