Morgunblaðið - 21.01.2021, Blaðsíða 72
Úsala
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
GLORY BEKKUR Ýmsir litir.
Áður 15.900 kr.NÚ 10.900 kr.
DIMA BORÐSTOFUSTÓLL
Ýmsir litir. Áður 16.900 kr.NÚ 11.900 kr.
ALISMA SÓFABORÐ
Ø80 cm. Áður 33.900 kr.NÚ 22.900 kr.
BALL LOFTLJÓSMessing. Ø25 cm.
Áður 39.995 kr.NÚ 15.995 kr.
WRAP NÁTTBORÐ Eikarspónn,
svartir fætur. H60 cm.
Áður 34.900 kr.NÚ 27.900 kr.
RIA ÞRIGGJA SÆTA SÓFI
Grænn. L192 cm. Áður 99.900 kr.NÚ 74.900 kr.
30%
32%
60%
t
ALLT AÐ
60%
AFVÖLDUM
VÖRUM
„Dýpsta sæla og sorgin þunga“ er yfirskrift samsýn-
ingar fjögurra listamanna sem verður opin í Kling &
Bang í Marshall-húsinu frá og með deginum í dag.
Listamennirnir vinna allir með myndgervingu stórra til-
finninga. Á sýningunni eru myndverk eftir hið heims-
kunna kanadíska skáld Anne Carson, blýantsteikningar
eftir Höllu Birgisdóttur og nýir skúlptúrar eftir Mar-
gréti Dúadóttur Landmark. Þá er sýnt nýtt málverk eft-
ir Ragnar Kjartansson og frumsýnir hann líka nýtt
myndbandsverk, Sæla, þar sem hann ásamt hópi
óperusöngvara endurflytur stöðugt síðustu aríuna úr
Brúðkaupi Figaros eftir Mozart í 12 tíma.
Myndverk eftir Anne Carson og nýtt
vídeóverk Ragnars í Kling & Bang
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 21. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Breiðablik vann óvæntan en nokkuð öruggan sigur á
bikarmeisturum Skallagríms, 71:64, í úrvalsdeild
kvenna í körfuknattleik í Smáranum í gærkvöld. Nýliðar
Fjölnis sigruðu KR og eru á toppnum ásamt Val sem
lagði Snæfell að velli. »60
Breiðablik lagði bikarmeistarana
úr Borgarnesi í Smáranum
ÍÞRÓTTIR MENNING
in vísar til Skriðinsennis í Bitrufirði,
þar sem hún var í nokkur sumur.
Þegar hún byrjaði að hugsa um hvað
hún ætti að skrifa segir hún að þegar
hún hafi verið fimm ára hafi Ólöf,
gömul ljósmóðir, komið og hjálpað
móður sinni við erfiða fæðingu, kon-
an hafi sótt á sig og fyrsti kaflinn sé
um hana. „Foreldrar mínir voru af-
skaplega þakklátir og sögðu að hún
væri alltaf velkomin. Hún tók þau á
orðinu, fór og sótti dótið sitt og flutti
inn til okkar, bjó hjá okkur á upp-
vaxtarárum mínum.“ Ástar-
Brandur, einn af síðustu förukörl-
unum, hafi líka verið ofarlega í huga
og því hafi hún skrifað um hann.
„Ólöf var ógestrisin og vildi ekki fá
óboðna gesti í heimsókn og Ástar-
Brandur var fyrsti óttinn minn,“
segir Anna Kristín og tengir við
óvelkomnu veiruna og hræðsluna
sem henni fylgir. „Bókin er samt í
raun þjóðháttalýsing frá miðri síð-
ustu öld.“
Skrifin gengu vel og Anna Kristín
er farin að hugsa um næsta skref á
þessum vettvangi. „Ég er að hugsa
um að taka unglingsárin fyrir. Mér
fannst þau svolítið leiðinleg og þar
sem ég hef tilhneigingu til þess að
skrifa eitthvað skemmtilegt veit ég
ekki hvernig ég á að snúa mér í mál-
in, en ég sé til.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þegar fyrst var tilkynnt um sam-
komutakmarkanir snemma á liðnu
ári greindi Anna Kristín Kristjáns-
dóttir frá því á Facebook að hún ætl-
aði að skrifa stutta frásögn úr ævi
sinni á hverjum degi í 30 daga. Hún
stóð við það og þó ekki hafi staðið til
að gefa efnið út í bók lét hún undan
þrýstingi og sendi bókina Bernsku-
minningar úr sjávarþorpi og sveit
frá sér í haust með aðstoð eigin-
mannsins, Hjálmtýs Heiðdals, sem
sá um útgáfuna, umbrot, myndir og
fleira.
„Ég ætlaði mér alls ekki að skrifa
bók,“ leggur Anna Kristín áherslu á.
„Þegar samkomubann var boðað í
mars rann upp fyrir mér að ég væri
orðin sjötug og í áhættuhópi,“ held-
ur hún áfram. Bætir við að fregnir af
drepsótt hafi snert sig illa og sú
hugsun að lifa við þessar breyttu að-
stæður hafi ekki verið uppörvandi.
Hrædd á óvissutíma
„Ég fann fyrir hræðslu og þar
sem ég get vel farið í hlutverk
dramadrottningar var ég ekki tilbú-
in að eyða því sem ég ætti eftir ólifað
í einhverri óvissu heldur spurði mig
hvað ég gæti gert. Þá datt mér í hug
að ég gæti skrifað minningabrot.“
Segir samt að það hafi verið hægara
að segja en í að komast. „Ég hugsaði
með mér að hugleiðingar mínar frá
degi til dags myndu lifa á netinu og
eftir 100 ár myndi einhver rekast á
þessi skrif sjötugrar kerlingar um
líðan sína í heimsfaraldri. Í kjölfarið
sagði ég frá ákvörðuninni á Face-
book til að setja á mig pressu.“
Í færslunum lagði Anna Kristín
áherslu á knappan texta og segir að
ritgerðasmíð í skóla hafi rifjast upp
og gagnast vel. Hún hafi haldið dag-
bók sem krakki og unglingur, síðar
skrifað örsögur og eftir að hafa verið
með í stofnun áhugamannaleik-
hópsins Hugleiks hafi hún samið
leikrit, ein og með öðrum. Reynslan
hafi skilað sér. „Ég hafði mjög gam-
an af þessum daglegu skrifum og
eyddi miklum tíma í föndur við text-
ann.“
Sjávarþorpið er Hólmavík, þar
sem Anna Kristín ólst upp, og sveit-
Ógestrisni og ótti
Skrifaði bókarkafla á dag í 30 daga í samkomubanni
Úr urðu bernskuminningar og þjóðháttalýsing
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í heimsfaraldri Anna Kristín Kristjánsdóttir er farin að huga að næstu bók.