Morgunblaðið - 21.01.2021, Blaðsíða 16
16 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021
GRUNNUR AÐ
GÓÐRI HEILSU
Vissir þú að um 80% af ónæmiskerfinu eru í meltingarveginum?
KEFIR er auðugur af lifandi góðgerlum sem fjölmargar rannsóknir
hafa sýnt að bæta meltinguna og viðhalda heilbrigðri þarmaflóru.
Hann inniheldur einnig mikið af próteini, kalki og nauðsynlegum
vítamínum eins og B12.
KEFIR - KOMDU HEILSUNNI Í JAFNVÆGI
Um þessar mundir eru bólu-setningar eitt af aðal-umræðuefnunum vegna
Covid-19-faraldursins. Sagt hefur
verið að bólusetningar séu hornsteinn
lýðheilsu enda hafa þær verið hluti af
daglegum störfum í heilsugæslu í ára-
tugi. Bólusetning er ónæmisaðgerð
sem ætlað er að koma í veg fyrir al-
varlegan smitsjúkdóm. Bólusetningar
hindra einnig farsóttir og draga úr
hættulegum afleiðingum smit-
sjúkdóma. Í sumum tilfellum er
mögulegt að útrýma sjúkdómum með
öllu. Bóluefnin eru ýmist unnin úr
veikluðum veirum eða bakteríum eða
þau innihalda efni sem finnast í sýkl-
unum.
Af hverju er þetta
kallað bólusetning?
Bóluefnin sjálf valda litlum ein-
kennum en vekja mótefnasvörun í lík-
amanum sem kemur í veg fyrir eða
dregur úr líkum á að hinn bólusetti
veikist af sjúkdómnum sem bólusett
er gegn.
Bólusetningar draga nafn sitt af
kúabólusetningunni sem breskur
læknir, Edward Jenner, benti árið
1796 á að kæmi í veg fyrir bólusótt.
Enginn smitsjúkdómur hafði leikið ís-
lensku þjóðina eins grátt og bólusótt-
in, en hún gerði nánast út af við þjóð-
ina á öldum áður.
Íslendingar voru meðal fyrstu
þjóða til að hefja bólusetningu gegn
bólusótt með ákvörðun sem danska
heilbrigðisstjórnin tók þegar árið
1802. Það tók þó hátt í 200 ár að út-
rýma bólusótt úr heiminum með bólu-
setningum
Bólusetningar hafa verið almennar
hér á landi í marga áratugi og þátt-
taka í bólusetningum barna er mikil.
Betri tíð kemur með bólusetningu
Heilsuráð
Margrét Héðinsdóttir
hjúkrunarfræðingur hjá Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bólusetning Gamla fólkið er fremst í röðinni, svo framlínufólk t.d. í heilbrigðiskerfinu. Svo verður fleira fólk kall-
að inn í sprautur, hvenær það verður ræðst af aldri og hvort fólk sé til dæmis með undirliggjandi sjúkdóma.
Börkur Reykjalín og Gunnar Viðar
Gunnarsson efna til áheitahlaups nk.
laugardag til styrktar Píetasamtök-
unum. Þeir félagar ætla að hlaupa
104 kílómetra á 400 metra hlaupa-
braut á Varmárvelli í Mosfellsbæ og
taka á rás klukkan sex að morgni.
Hlaupararnir stefna á að fara átta
kílómetra á hverjum klukkutíma.
Píetasamtökin eru góðgerðar-
samtök sem sinna forvarnastarfi
gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og
styðja við aðstandendur. Síðastliðið
ár hefur álagið á samtökunum þre-
faldast og nýtast allir styrkir beint í
starfsemina. Hægt er að leggja
hlaupinu og Píetasamtökunum lið
með því að leggja inn á reikning
þeirra sem er 0301-26-041041 og
kennitalan 410416-0690.
„Það er alltaf jafn gaman þegar
fólk hugsar til okkar og finnur leiðir
til að minna á okkur og styrkja okk-
ar starf,“ segir Inga María Hjart-
ardóttir kynningarstjóri Píeta-
samtakanna.
„Með hlaupinu viljum við leggja
okkar af mörkum til að vekja athygli
á Píetasamtökunum og vonandi
safna einhverjum peningum fyrir
samtökin í leiðinni,“ segir Börkur
Reykjalín, annar hlauparanna.
Varmárvöllur um helgina
Píetahlaup
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Heilræði til að bæta líf oggeðheilsu eru skilaboðiní verkefninu G-vítamíná þorra sem Geðhjálp
hleypir nú af stokkunum. Í hverj-
um glugga dagatalsins er einn
skammtur heilræði og svo birtast
daglega ráð á gvitamin.is, Face-
book og Instagram. Einnig verða
góð ráð undir merkjum þessa
átaks birt bæði í Morgunblaðinu og
á mbl.is. Fólk er hvatt til að fylgj-
ast vel með framvindunni, ekki síst
á miðvikudögum þegar svonefndir
G-vítamínskammtar af stærri gerð-
inni eru gefnir. Alls verða skammt-
arnir 30 talsins.
Skilaboð á ísskápum
G-vítamínið er byggt á Geð-
orðunum 10 og 14 lífsorðum Héð-
G-vítamín er fyrir geðheilsuna
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skilaboð Grímur Atlason með kynningarefni og dagatal tengt G-vítamínverkefninu sem verður áberandi og leiðarstef í lífi landans næstu vikurnar.
Heilræði! Dagatal sem
dugar vel. Sterkt ónæmi í
dagsins önn. Leið til að
fyrirbyggja mögulega
bresti og verja fólk í mót-
byr. Geðheilsa sé í lagi!