Morgunblaðið - 21.01.2021, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 21.01.2021, Blaðsíða 26
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann- esson, afhenti í gær nýsköpunar- verðlaun forseta Íslands við hátíð- lega athöfn á Bessastöðum. Þau Ari Kvaran, Sunneva Sól Ívarsdóttir og Þórdís Rögn Jónsdóttir, nemar í iðn- aðarverkfræði við Háskóla Íslands, og Ísól Sigurðardóttur, nemi í tölv- unarfræði við Háskólann í Reykja- vík, hlutu verðlaunin fyrir verkefnið Betri samskipti við sjúklinga sem bíða innlagnar og meðferðar á sjúkrahúsinu Vogi. Leiðbeinendur voru Guðmundur Valur Oddsson, Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson og Tómas Philip Rún- arsson, prófessorar á verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands, og Valgerður Árný Rúnarsdóttir, yfirlæknir á sjúkrahúsinu Vogi. Markmið verkefnisins var að hanna og þróa frumgerð að hugbún- aði til þess að aðstoða skjólstæðinga meðan þeir bíða eftir að komast í meðferð á sjúkrahúsinu Vogi. gudni@mbl.is Hlutu nýsköpunar- verðlaun forsetans Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2021 Forseti Íslands afhenti verð- launahöfum verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Umferðaröryggi verður bætt á Hringbrautinni Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Vegagerðin og Reykjavíkurborg hyggjast vinna tillögur að endur- bótum á Hringbraut í heild sinni þar sem hún liggur um Vesturbæinn. Áhersla verður lögð á bætt umferð- aröryggi og vistlegra göturými. Þetta kemur fram í svari Þorsteins R. Hermannssonar, samgöngustjóra Reykjavíkur, við fyrirspurn Morgunblaðsins. Í janúar 2019 var ekið á 13 ára gamla stúlku á gangbraut á Hring- braut, við Meistaravelli. Í framhald- inu urðu miklar umræður á sam- félagsmiðlum og boðað var til íbúafundar. Foreldrar barna í hverf- inu og nemenda Vesturbæjarskóla kröfðust úrbóta í umferðarmálum. Síðan gerðist það að ekið var á barn á gangbraut á Hringbraut við Bræðraborgarstíg um páskana 2019. Brugðist við slysum 2019 Þorsteinn segir að í kjölfar slysanna hafi Reykjavíkurborg og Vegagerðin ákveðið að fara í eftirfar- andi aðgerðir sem búið er að fram- kvæma:  Lækkun hámarkshraða á Hringbraut og nokkrum aðliggjandi götum í 40 km/klst.  Uppsetning hraðavaraskilta á Hringbraut á völdum stöðum.  Samræmd stýring á gangbraut- arljósum þannig að grænt ljós fyrir gangandi logi jafn lengi alls staðar á Hringbraut.  Bætt götulýsing – ný LED- lýsing í stað eldri tækni – skipt um lampa á ljósastaurum sem fyrir eru. Til viðbótar stendur til að endur- nýja umferðarljósabúnað götunnar, að sögn Þorsteins. Byrjað verður á gatnamótum Hringbrautar við Hofs- vallagötu, Bræðraborgarstíg og við Framnesveg. Sú endurnýjun kemst, ef allt gengur sem skyldi, til fram- kvæmda núna í sumar en þá verði hægt að endurstilla umferðarljósin miðað við minnkaðan hámarkshraða og auka öryggi og aðgengi gangandi vegfarenda. Fyrirhugaðar eru breytingar á gatnamótum Hringbrautar- Hofsvallagötu. Forhönnun liggur fyr- ir og felur hún í sér eftirfarandi breytingar:  Yfirborð gatnamótanna verður endurnýjað í heild og gönguleiðir þvert yfir Hringbraut og Hofs- vallagötu verða merktar með áber- andi hætti. Afmörkun verður fyrir hjólandi vegfarendur í Hofsvallagötu næst gatnamótunum, beggja vegna Hringbrautar. Bílastæði næst gatna- mótunum verða aflögð, annars vegar til að gefa gangandi meira rými og hins vegar til að lengja vinstri beygjuvasa fyrir umferð sem ekur vestur Hringbraut og tekur vinstri beygju suður Hofsvallagötu.  Allur umferðarljósabúnaðar verður endurnýjaður og tengdur miðlægri stýritölvu umferðarljósa. Ljósastólpar verða staðsettir með breyttum hætti og stöðvunarlínur færðar aftar, frá gatnamótum, til að bæta öryggi gangandi og hjólandi.  Samhliða endurnýjun umferðar- ljósa verða settir upp kassar fyrir hraða- og rauðljósamyndavélar lög- reglunnar.  Frekari endurbætur verða gerð- ar á lýsingu við gatnamótin til að auka sýnileika og öryggi allra vegfar- enda. Gert er ráð fyrir að kostnaður við verkefnið verði greiddur af Vega- gerðinni og Reykjavíkurborg í sam- ræmi við hefðbundna kostnaðar- skiptingu sem gildir um endurbætur á gatnamótum við þjóðvegi í þéttbýli.  Fyrirhugaðar eru breytingar á gatnamótum Hringbrautar og Hofsvallagötu Morgunblaðið/sisi Hringbraut Gangbrautin við Meistaravelli þar sem slysið varð í janúar 2019. Útsýni fyrir gangandi mætti vera betra. 26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021 Miðstjórn Alþýðusambands Íslands hefur birt ályktun þar sem mót- mælt er harðlega áformum um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka við þær óvissuaðstæður sem séu uppi. Mikilvægt sé að ríkið, fyrir hönd al- mennings, sé með aðkomu að fjár- málamarkaði og haldi uppi sam- félagslegum sjónarmiðum. „Sérstaklega þarf að gæta að hags- munum lántakenda sem margir ganga í gegnum tímabundna erf- iðleika vegna Covid-kreppunnar. Einnig leikur vafi á hversu stóran hlut ríkið ætlar sér að selja og stjórnvöld hafa ekki útskýrt hvað þau telja ásættanlegt verð,“ segir m.a. í ályktuninni. Er því hafnað að selja þurfi hlut ríkisins til að bæta stöðu ríkissjóðs eða fjármagna sam- félagslega innviði. „Nýlegar skatta- lækkanir á fjármagnseigendur benda ekki til þess að ríkisstjórnin hafi þungar áhyggjur af afkomu ríkissjóðs. Ákall um sölu á banka kemur ekki frá almenningi sem að miklum meirihluta er mótfallinn slíkri sölu og jákvæður í garð rík- isins sem eiganda banka.“ ASÍ mótmælir sölu á hlut í Íslandsbanka Ágúst Ólafur Ágústsson, þing- maður Samfylk- ingarinnar, mun ekki taka sæti á lista flokksins fyrir þingkosn- ingar síðar á árinu. Meirihluti uppstillingar- nefndar hafnaði sáttatillögu Ágústar Ólafs sem fólst í því að hann gæfi eftir oddvitasæti sitt í Reykjavík í nafni nýliðunar og tæki annað sætið. „Við höfum staðið í uppbyggingarstarfi hjá flokknum og höfum rekið málefnalega en að- haldsríka stjórnarandstöðu á erf- iðum tímum. Ég hef tekið virkan þátt í því starfi og tel mig hafa ver- ið mikilvægan þingmann fyrir flokkinn á þessu kjörtímabili,“ skrifaði Ágúst á facebooksíðu sína. Hann sagði niðurstöðu uppstilling- arnefndar vonbrigði en hann væri stoltur af ferli sínum í stjórnmálum. Ágúst Ólafur ekki á lista Samfylkingar Ágúst Ólafur Ágústsson Ármúla 24 • rafkaup.is 20% ∙ 50% ∙ 70% ÚTSALA Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 11-16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.