Morgunblaðið - 21.01.2021, Blaðsíða 63
MENNING 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
THE HOLLYWOOD REPORTER
CHICAGO SUN-TIMES
LOS ANGELES TIMES INDIEWIRE ROGEREBERT.COM
25. febrúar árið 1964 varðCassius Clay, skömmu síðarþekktur sem Muhammed Ali,heimsmeistari í hnefaleikum
í þungavigtarflokki eftir frækinn og
óvæntan sigur á ríkjandi handhafa
titilsins, Sonny Liston. Sama kvöld
ku meistarinn hafa á vegahóteli hitt
þrjá félaga sína, sem voru allir ekki
síður þekktar og mikilvægar svartar
persónur í bandarísku þjóðlífi. Þetta
voru þeir Jim Brown ruðningskappi,
Malcolm X, réttindabaráttumaður
svartra, og Sam Cooke tónlistar-
maður. Kvöld eitt í Miami ímyndar
sér hvað gæti hafa átt sér stað meðal
þessara stórmenna þetta örlagaríka
kvöld.
Í upphafi myndarinnar er hverri
söguhetju gefin ein sena sem á sér
stað í aðdraganda meginatburðanna
og kynnir persónurnar og aðstæður
þeirra á hnitmiðaðan hátt. Ali finn-
um við fyrir í hringnum á þjóðar-
leikvangi Breta, Wembley í Lund-
únum, þar sem hann etur kappi við
Henry Cooper. Meistarinn stingur
eins og býfluga, geislar af ungæðis-
legum þokka og gerir um leið gys að
keppinaut sínum. Hnefaleikar eru
sniðnir að eiginleikum kvikmynda-
miðilsins og er rík hefð fyrir þeim í
sögu hans. Þar af leiðandi getur
reynst erfitt að miðla þeim á spenn-
andi eða nýstárlegan máta en kvik-
myndagerðarmönnum tekst virki-
lega vel upp hér. Atriðin er Ali
mundar hanskana eru kvik,
dýnamísk og slá upptakt frásagn-
arinnar með hvelli. Þau skapa sterkt
kvikmyndalegt mótvægi við það sem
koma skal – línulegan framgang
kvöldstundar sem takmarkast að
mestu við einn tökustað og samtal
manna á milli.
Sam Cooke er á hápunkti frægð-
arinnar er hann syngur á sögufræg-
um skemmtistað ríka fólksins í New
York, Copacabana. Flutningurinn
fellur þó ekki í kramið hjá moldrík-
um hvítum áhorfendum og kringum-
stæðurnar varpa ljósi á tilraunir
listamannsins til að höfða til breiðs
hóps áhorfenda. Malcolm X, í ein-
arðri baráttu sinni fyrir málstað
svartra, myndar hugmyndafræði-
lega andstæðu við söngvarann innan
frásagnarinnar. Hann er álitinn
öfgamaður af mörgum og alríkis-
lögreglan fylgir honum hvert fet.
Þar að auki stendur hann á kross-
götum gagnvart „Íslömsku þjóð-
inni“, samtökum sem hann tilheyrir
og er málsvari fyrir, vegna spillingar
leiðtoga þeirra, Elijah Muhammad.
Sá fjórði, Brown, hefur slegið öll met
í íþrótt sinni þrátt fyrir mikið mót-
læti en hann er frá Georgíuríki, einu
af höfuðvígjum kynþáttahyggj-
unnar. Innan stykkisins spilar hann
stuðningsstöðu. Eftir krýningu Alis
er komið á tilkomulítið mótel-
herbergi Malcolms X. Strákarnir
búast við stuði en leiðtoginn stað-
fasti vill nýta augnablikið til að velta
vöngum. Óvænt trúar- og nafnskipti
Alis eru undir og upphefst orrahríð
þessara lykilpersóna bandarískrar
sögu.
Kvöld eitt í Miami er byggð á
samnefndu leikriti Kemps Powers
(en hann er einnig annar höfunda
Sálar, nýjasta verks teiknimynda-
smiðjunnar Pixar), sem sér einnig
um aðlögun handritsins. Leikhús-
rætur verksins fara aldrei á milli
mála en form þess er nokkuð hefð-
bundinn fjalaköttur sem einskorðar
tíma og rúm. Aðlögun slíkra verka
að kvikmyndaforminu getur reynst
ansi torveld en hér er haldið vel á
spilunum. Regina King þreytir
frumraun sína sem leikstjóri en hún
er leikkona að upplagi og vann m.a.
Óskarsverðlaun fyrir aukahlutverk
sitt í Ef Beale-stræti gæti talað
(Barry Jenkins, 2018). Gamla spekin
að leikarar geri góða leikstjóra er
dagsönn og sést skýrast í frábærri
frammistöðu leikaraliðsins. Einnig
ber að hrósa hreyfingu myndavélar
og leikara innan rýmisins (og sjón-
rænu hliðinni almennt).
Vandasamt verkefni leikaranna,
og frásagnarinnar í heild, er að gera
dægurhetjurnar mannlegar. Hér
liggur meginstyrkur kvikmyndar-
innar þar sem persónurnar, og sam-
skipti þeirra, verða trúaanlegar og
áþreifanlegar. Uppáhald rýnis er Eli
Goree í hlutverki Alis sem skín af
æskunnar fjöri og galsa. Hann er
með heiminn að fótum sér en virðist
njóta hvers andartaks og er enn
nógu barnslegur til að láta alvöruna
ekki sliga sig. Leslie Odom Jr. er
magnaður í hlutverki Cooke, ekki
síst í tónlistarflutningi sínum. Erfitt
er fyrir Kingsley Ben-Adir að stand-
ast samanburð við Denzel Wash-
ington í mynd Spikes Lees um leið-
togann Malcolm X en frammistaða
hans er þó býsna góð. Að mestu leyti
hagnast verkið þó á hugrenninga-
tengslum við fyrri kvikmyndir um
sömu persónur og áhorfendum er
treyst til að þekkja sögulegt sam-
hengi.
Rimman milli aðalleikendanna
Sams Cookes og Malcolms X er m.a.
um hylli gulldrengsins en einnig um
hver sé rétta leiðin í baráttunni að
samfélagslegum breytingum. Hug-
myndafræðilega togstreitan myndar
meginhugsun verksins og tjáir erfið-
leika þess að vera til í samfélagi sem
vinnur kerfisbundið á móti þér.
Cooke á réttinn á tónlist sinni, er
eigandi útgáfufyrirtækis og reynir
að ná völdum í samfélaginu á þann
hátt. Malcolm X álasar honum fyrir
að semja ekki um samfélagsleg mál-
efni, líkt og Bob Dylan, og leggja
málstaðnum lið með beinni hætti.
Flutningur á baráttuóði Cookes, „A
Change Is Gonna Come“, í loka-
myndskeiðinu er ávöxtur átaka
þessara ólíku manna sem áttu báðir
eftir að láta lífið skömmu seinna.
Myndin hefði færst á annað plan fyr-
ir rýni hefði flutningur Odom Jr.
fengið óskipta athygli, án víxlklipp-
ingar á aðrar persónur.
Í heildina er Kvöld eitt í Miami
virkilega vel heppnuð og grípandi
frásögn af ungum karlmönnum á
sögulegu augnabliki.
Dægurhetjur af holdi og blóði
Grípandi Kvöld eitt í Miami er „virkilega vel heppnuð og grípandi frásögn af ungum karlmönnum á sögulegu augnabliki,“ að því er segir í gagnrýni.
Amazon Prime
Kvöld eitt í Miami/One Night in
Miami … bbbmn
Leikstjórn: Regina King. Handrit: Kemp
Powers. Kvikmyndataka: Tami Reiker.
Aðalleikarar: Kingsley Ben-Adir, Eli
Goree, Aldis Hodge, Leslie Odom Jr.
Bandaríkin, 2020. 111 mín.
GUNNAR
RAGNARSSON
KVIKMYNDIR