Morgunblaðið - 21.01.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.01.2021, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021 SMÁRALIND – DUKA.IS Eik & svartbæsuð eik Hillueining (2 hillur) 60 cm 39.900,- Hillueining (2 hillur) 80 cm 42.900,- Aukahilla 60 cm 21.900,- Aukahilla 80 cm 24.900,- Fegrum heimilið Stedge hillukerfi VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Framleiðsla á smálaufasalati er komin vel í gang í nýrri glæsilegri garðyrkjustöð Lambhaga í Lundi í Mosfellsdal. Hafberg Þórisson garð- yrkjubóndi undirbýr nú að fullnýta gróðurhúsin og næsta skrefið er síð- an að byggja aðstöðu- og starfs- mannahús og að stækka stöðina í kjölfarið. Með gróðurhúsum Lamb- haga í Reykjavík er fyrirtækið með 22 þúsund fermetra undir gleri og miklir stækkunarmöguleikar eru í Lundi. Hafberg keypti jörðin Lund í Mosfellsdal fyrir rúmum þrettán ár- um og hafði þá hug á að flytja starf- semina úr Reykjavík. Þær áætlanir voru settar í bið í nokkur ár þar sem hann fékk aukið land hjá Reykjavík- urborg. Niðurstaðan var sú að halda áfram í Reykjavík en byggja nú- tímalegri hús í Mosfellsdal. Síðustu ár hefur Hafberg verið að vinna að undirbúningi og uppbyggingu á þeim. Hannaði búnaðinn sjálfur Hafberg segir að ræktun á salati gefi ekki mikið af sér á hvern fer- metra og þess vegna hafi þurft að vanda undirbúning framleiðslu- tækja. Eftir að hafa skoðað hvernig staðið er að málum í öðrum löndum mótaði Hafberg eigin aðferðir þar sem áhersla er lögð á sjálfvirkni. Hann leitaði til nokkurra fyr- irtækja í Hollandi, Finnlandi og Danmörku um smíði á rækt- unarbúnaði eftir hans höfði en ýmist treystu fyrirtækin sér ekki til að framleiða réttan búnað eða honum leist ekki á það sem í boði var. Hann var að komast í tímaþröng því sjö þúsund fermetra gróðurhús voru að rísa í Lundi. „Að lokum safnaði ég saman nokkrum aðilum sem ég þekkti í Danmörku og voru tilbúnir til að vinna með mér. Við leiguðum hús- næði á Fjóni þar sem áður hafði ver- ið vélsmiðja og þar var allur bún- aðurinn smíðaður og starfs- mennirnir settu hann síðan upp fyrir Lambhaga,“ segir Hafberg. Ræktunin hefst í sjálfvirkri pott- unarvél. Hún býr pottana til úr ör- þunnum pappa, fyllir þá með mold og raðar í ræktunarrennu. Þaðan fer rennan í gegnum sérstaka vél sem þrýstir fræjum í hvern pott. Næst fer rennan í neðri hillu á rækt- unarfæribandi í stóra gróðurhúsinu og fær þar LED-lýsingu. Renna plönturnar eftir færibandi um 100 metra út að enda gróðurhússins og lyftast þá upp á efri hæðina og renna til baka. Ferðalagið tekur um það bil mánuð og þá er salatið fullvaxið. Salatið er síðan skorið með vél og sett í kæli fyrir pökkun. Yfirleitt er fjórum tegundum blandað saman í salatbakka og fer innihaldið eftir árstíðum. Helstu tegundir eru Lambhagasalat, íssalat, rauðrófu- blöð, súrur og spínat. Lambhagi er stærsti framleiðandi og seljandi fersks salats hér á landi. Bjartsýnn á framtíðina Notkun á salati hefur farið stöð- ugt vaxandi hér á landi, eins og æv- intýraleg uppbygging Lambhaga sýnir. Hafberg segir að samdráttur í ferðaþjónustunni á síðasta ári vegna kórónuveirufaraldursins hafi sett strik í reikninginn en salan sé í jafn- vægi nú í vetur. Hann er því bjart- sýnn á framtíðina. Fáir starfsmenn eru við fram- leiðsluna í Lundi. Ræktuninni er stjórnað í gegnum tölvu og garð- yrkjumaðurinn þarf sjaldan eða aldrei að fara inn í gróðurhúsið þar sem ræktunin fer fram. Afurðirnar eru fluttar jafnóðum í stöðina í Morgunblaðið/Árni Sæberg Tvær hæðir Ræktunin fer fram á tveimur hæðum. Á neðri hæðinni er blá LED-lýsing á fyrsta æviskeiði plantnanna og hefðbundin gróðurlýsing á salatinu sem er á þeirri efri. Færast rennurnar sjálfvirkt milli hæða. Tekur ferðalagið fram og til baka um mánuð og er salatið fullvaxið þegar það kemur aftur á upphafsreit gróðurhússins. Gróðrarstöðin er sjö þúsund fermetrar að stærð. Strax farinn að huga að stækkun Eigendur Hjónin Hauður Helga Stefánsdóttir og Hafberg Þórisson eru ánægð með árangur tæknivæðingar nýju garðyrkjustöðvarinnar.  Mannshöndin kemur hvergi nærri ræktun á smálaufasalati í nýrri garðyrkjustöð Lambhaga í Mosfellsdal  Gróðurhúsin fullnýtt á þessu ári  Bygging aðstöðu- og starfsmannahúsa undirbúin  SJÁ SÍÐU 20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.