Morgunblaðið - 21.01.2021, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 21.01.2021, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021 Embætti skrifstofustjóra á skrifstofu sjúkrahúsa og sérþjónustu Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti skrifstofustjóra á skrifstofu sjúkrahúsa og sérþjónustu. Um er að ræða aðra af tveimur fagskrifstofum á heilbrigðissviði ráðuneytisins. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til fimm ára í senn frá 1. apríl 2021. Helstu verkefni og ábyrgð - Undirbyggja stefnumarkandi ákvarðanir ráðherra og móta stefnu stjórnvalda á sviði sjúkrahúsa og sérþjónustu. - Stýra daglegum verkefnum og starfsfólki skrifstofunnar. - Yfirumsjón með verkefnum er varða sjúkrahús og sérþjónustu. - Framkvæma stefnu stjórnvalda og fylgja henni eftir með gerð lagafrumvarpa og reglugerða. - Fylgja stefnu stjórnvalda eftir gagnvart þjónustuveitendum. - Þátttaka í nefndarstörfum og innlendu og erlendu samstarfi. - Samstarf við stofnanir og hagsmunaaðila. Menntunar- og hæfniskröfur: - Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun sem nýtist í starfi áskilin. - Þekking og reynsla á sviði rekstrar og stjórnunar. - Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu. - Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum. - Góð tölvukunnátta. - Metnaður og vilji til að ná árangri. - Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum ásamt hæfni í verkefnastjórnun. - Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. - Góð kunnátta í ensku nauðsynleg og kunnátta í a.m.k. einu Norðurlandamáli æskileg. Sérstök hæfnisnefnd, skipuð þremur einstaklingum, mun meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til heilbrigðisráðherra, sem skipar í embættið. Nefndin starfar skv. reglum nr. 393/2012 um ráðgefandi nefndir er meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands og lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Áhugasamir einstaklingar, eru hvattir til að sækja um starfið óháð kyni. Með umsókn skal fylgja ítarlegt starfsferilsskrá, ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur. Umsókn skal skila rafrænt á netfangið hrn@hrn.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum. Upplýsingar um embættið veitir Ásta Valdimarsdóttir ráðuneytisstjóri (asta.valdimarsdottir@hrn.is) sími 545 8700. Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 1. febrúar 2021. Stjórnarráð Íslands Heilbrigðisráðuneytið [SIDEBAR TITLE] Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) auglýsa eftir lögfræðingi til starfa. Starfið felur í sér að stýra kjaranefnd SFV og veita lagalega ráðgjöf til aðildarfélaga samtakanna, m.a. á sviði vinnumarkaðsréttar. Þá myndi starfsmaðurinn vera aðildarfélögum SFV til stuðnings við gerð þjónustusamninga, sem og í annarri hagsmunagæslu aðildarfélaganna gagnvart stjórnvöldum. Umsóknarfrestur er til 2. febrúar nk. Umsóknum skal skila rafrænt á netfangið eybjorg@samtok.is. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Hæfnis – og menntunarkröfur: • Fullnaðarnám í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi skilyrði • Að minnsta kosti þriggja ára starfsreynsla sem lögfræðingur skilyrði • Reynsla af samningagerð skilyrði • Þekking á vinnumarkaðsrétti og kjaraumhverfi opinberra starfsmanna kostur • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu kostur • Þekking og reynsla á sviði samkeppnisréttar og réttarreglna um opinber innkaup kostur • Reynsla af lögmannsstörfum kostur • Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti • Góð hæfni í mannlegum samskiptum • Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð Nánari upplýsingar um starfið er hægt að nálgast hjá Eybjörgu Hauksdóttur framkvæmdastjóra samtakanna í s: 5 600 200. Lögfræðingur SFV eru hagsmunasamtök fyrirtækja sem starfa við velferðarþjónustu og eru sjálfs- eignarstofnanir, í eigu félagasamtaka, einkaaðila eða opinberra aðila. Aðildarfélög SFV eru 47 talsins. Mörg aðildarfélaganna eru öldrunarstofn- anir, en einnig fyrirtæki með aðra starfsemi eins og dagþjálfun, áfengismeðferð, þjónustu við hreyfihamlaða o.fl. Sjá nánar á heimasíðu samtakanna www.samtok.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.