Morgunblaðið - 21.01.2021, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 21.01.2021, Qupperneq 51
Laust er til umsóknar starf aðalbókara Hvalfjarðarsveitar. Um er að ræða 80% starf innan stjórnsýslu sveitarfélagsins. Leitað er að metnaðarfullum aðila til að sinna verkefnum aðalbókara sveitarfélagsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Helstu verkefni og ábyrgðarsvið: Aðalbókari ber ábyrgð á bókhaldi sveitarfélagsins, stofnana og fyrirtækja sveitar- félagsins. Eftirfarandi heyrir m.a. undir verkefna- og ábyrgðarsvið aðalbókara Hvalfjarðarsveitar: • Yfirumsjón með öllu bókhaldi sveitarfélagsins og undirstofnunum þess, afstemm- ingum og annarri bókhaldsvinnu. Ber ábyrgð á að skipulag bókhalds og vinnu- brögð séu í samræmi við lög og viðurkenndar reikningsskilareglur þar um • Yfirumsjón með skráningu reikninga og samþykktum þeirra • Umsjón með allri eignaskráningu sveitarfélagsins og uppfærslu hennar • Yfirumsjón með virðisaukaskattsmálum • Ýmis uppgjörs- og greiningarvinna í samráði við sveitarstjóra • Gerð rekstraryfirlita og skýrslugerð • Umsjón með bókhaldslykli sveitarfélagsins • Samskipti við endurskoðendur vegna ársreiknings sveitarfélagsins og stofnana þess • Þátttaka í áætlanagerð og innra eftirliti • Umsjón með öllu bókhaldi, afstemmingum og vinnu við uppgjör fyrir Vatnsveitu- félag Hvalfjarðarsveitar sf. og Heilbrigðiseftirlit Vesturlands Aðalbókari ber ábyrgð á meðferð og varðveislu gagna, úrvinnslu og upplýsingagjöf, stefnumótun, þróun verklags og þjónustugæða. Almennt stjórnunarsvið: Aðalbókari starfar í samræmi við lög og reglugerðir sem gilda um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga, eftir lögum er varða opinbera þjónustu og stjórnsýslu, samkvæmt markmiðum sveitarstjórnar og í samræmi við fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar á hverjum tíma. Menntunar- og hæfniskröfur: • Viðskiptafræðimenntun eða sambærileg menntun á sviði bókhalds • Veruleg/marktæk reynsla og góð þekking af bókhaldi, áætlanagerð og fjármálastjórnun er skilyrði • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg • Reynsla og þekking af notkun á Navision bókhaldskerfinu er kostur • Greiningarhæfni og færni í notkun upplýsingatækni • Færni í mannlegum samskiptum auk forystu- og skipulagshæfileika • Sjálfstæði í vinnubrögðum og rík þjónustulund • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. Kjör: Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til og með 8. febrúar 2021. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsókn skal senda á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes eða á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is Nánari upplýsingar um starfið veitir Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri í síma 433-8500 og á netfanginu linda@hvalfjardarsveit.is Hvalfjarðarsveit er öflugt sveitarfélag með um 650 íbúa. Náttúrufegurð er mikil og möguleikar til að njóta fjölbreyttrar útiveru eru óþrjótandi. Hvalfjarðarsveit er dreifbýlt sveitarfélag með litlum íbúakjörnum. Þar er nægt lóðaframboð, fjölbreytt atvinnutækifæri, öflugur landbúnaður, vaxandi ferðaþjónusta og metnaðarfullt skólastarf. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á atvinnusvæðinu við Grundartanga með fjölbreyttum fyrirtækjum. Hvalfjarðarsveit er í nálægð við þéttbýli og í góðu samstarfi við nágrannasveitarfélög. Nánari upplýsingar má finna á www.hvalfjardarsveit.is Aðalbókari Vélvirkjar og vélfræðingar óskast til starfa í Straumsvík Starfssvið vélvirkja og/eða vélfræðinga er: • Fyrirbyggjandi viðhald og rekstur á búnaði • Ástandsskoðun á búnaði, s.s. legumælingar, hitamyndun o.þ.h • Almenn viðgerðarvinna og smiði • Samskipti við framleiðsludeildir Menntunar- og hæfniskröfur: • Sveinspróf í vélvirkjun • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileiki til að vinna í hópi • Góðir samskiptahæfileikar • Almenn tölvuþekking kostur Störfin eru fjölbreytt, krefjast nákvæmni en jafnframt mikla öryggisvitund. Við bjóðum uppá góðan, fjölskylduvænan vinnustað ásamt góðum launum fyrir rétta aðila. Umsóknarfrestur er til 28. janúar 2021. Nánari upplýsingar um störfin og umsókn má finna á vef Rio Tinto, www.riotinto.is.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.