Morgunblaðið - 21.01.2021, Side 60
60 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021
England
Manchester City – Aston Villa ................ 2:0
Fulham – Manchester United .............. (1:1)
Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í
prentun í gærkvöld. Sjá mbl.is/sport/enski.
B-deild:
Huddersfield – Millwall .......................... 0:1
Jón Daði Böðvarsson lék fyrstu 76 mín-
úturnar með Millwall.
Derby – Bournemouth............................. 1:0
Reading – Coventry ................................. 3:0
Rotherham – Stoke .................................. 3:3
Watford – Barnsley.................................. 1:0
Norwich – Bristol City............................. 2:0
Brentford – Luton.................................... 1:0
Cardiff – QPR........................................... 0:1
Nottingham F. – Middlesbrough............ 1:2
Þýskaland
Augsburg – Bayern München................ 0:1
Alfreð Finnbogason kom inn á hjá Augs-
burg á 72. mínútu en nýtti ekki vítaspyrnu
á 76. mínútu.
Schalke – Köln .......................................... 1:2
Arminia Bielefeld – Stuttgart ................. 3:0
Freiburg – Eintracht Frankfurt............. 2:2
RB Leipzig – Union Berlín...................... 1:0
Grikkland
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
PAOK – Larissa ....................................... 5:0
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
með PAOK og skoraði eitt markanna.
Panetolikos – Olympiacos ...................... 0:3
Ögmundur Kristinsson varði mark
Olympiacos í leiknum.
HM karla í Egyptalandi
MILLIRIÐILL 3:
Sviss – Ísland ........................................ 20:18
Frakkland – Alsír ................................. 29:26
Portúgal – Noregur.............................. 28:29
Staðan:
Frakkland 3 3 0 0 82:74 6
Noregur 3 2 0 1 84:81 4
Portúgal 3 2 0 1 79:71 4
Sviss 3 1 0 2 69:74 2
Ísland 3 1 0 2 80:69 2
Alsír 3 0 0 3 69:94 0
MILLIRIÐILL 4:
Norður-Makedónía – Slóvenía ............ 21:31
Rússland – Egyptaland ....................... 23:28
Svíþjóð – Hvíta-Rússland .................... 26:26
Staðan:
Svíþjóð 3 2 1 0 82:69 5
Egyptaland 3 2 0 1 89:66 4
Slóvenía 3 2 0 1 85:77 4
Rússland 3 1 1 1 86:85 3
Hvíta-Rússland 3 0 2 1 83:87 2
N-Makedónía 3 0 0 3 60:101 0
Forsetabikarinn, 2. riðill:
Síle – Suður-Kórea ............................... 44:33
Austurríki – Marokkó .......................... 36:22
Leikir í dag:
14.30 Úrúgvæ – Pólland .......................... M1
14.30 Japan – Argentína.......................... M2
17.00 Ungverjaland – Brasilía ................ M1
17.00 Króatía – Barein............................. M2
17.00 Angóla – Kongó............................... F1
19.30 Spánn – Þýskaland......................... M1
19.30 Danmörk – Katar........................... M2
Danmörk
Skanderborg – Vendsyssel ................ 24:28
Steinunn Hansdóttir skoraði 2 mörk fyr-
ir Vendsyssel. Elín Jóna Þorsteinsdóttir
varði 14/1 skot í marki liðsins, 38 prósent.
Dominos-deild kvenna
Breiðablik – Skallagrímur ................... 71:64
Fjölnir – KR.......................................... 75:68
Valur – Snæfell ..................................... 80:68
Haukar – Keflavík ............................. (42:48)
Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í
prentun í gærkvöld.
Staðan fyrir leik Hauka og Keflavíkur:
Fjölnir 6 4 2 425:401 8
Valur 5 4 1 325:261 8
Skallagrímur 5 3 2 336:364 6
Keflavík 3 3 0 252:188 6
Haukar 5 3 2 315:292 6
Breiðablik 6 2 4 322:345 4
Snæfell 5 1 4 354:398 2
KR 5 0 5 344:424 0
Evrópubikarinn
16-liða úrslit, D-riðill:
Mornar Bar – Andorra ....................... 71:74
Haukur Helgi Pálsson lék ekki með An-
dorra vegna meiðsla.
NBA-deildin
Denver – Oklahoma City ................. 119:101
Utah – New Orleans......................... 118:102
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Hertz-hellirinn: ÍR – Þór Ak ............... 18.15
HS Orkuhöll: Grindavík – Haukar...... 19.15
DHL-höll: KR – Höttur ....................... 19.15
Sauðárkrókur: Tindastóll – Valur....... 20.15
1. deild karla:
Dalhús: Fjölnir – Álftanes ........................ 20
Í KVÖLD!
um á meðan KR hefur tapað öllum
fimm leikjum sínum.
Ariel Hearn skoraði 30 stig fyrir
Fjölni og tók auk þess 15 fráköst.
Lina Pikciuté skoraði 15 stig og tók
13 fráköst.
Taryn McCutcheon skoraði 24
stig fyrir KR og Annika Hopopai-
nen var með 21 stig og 9 fráköst.
Valskonur styrktu stöðu sína
þegar þær tóku á móti Snæfelli á
Hlíðarenda. Valur sigraði, 80:68, eft-
ir að staðan var 37:32 í hálfleik.
Valskonur hafa þar með unnið
fjóra af fyrstu fimm leikjum sínum
og eru með átta stig en þetta var
hins vegar fjórða tap Snæfells í
fimm leikjum og liðið er með tvö stig
í næstneðsta sætinu.
Hallveig Jónsdóttir skoraði 21
stig fyrir Val og Helena Sverr-
isdóttir var með 17 stig, 13 fráköst
og 8 stoðsendingar.
Haiden Palmer skoraði 17 stig
fyrir Snæfell og Emese Vida var
drjúg í fráköstunum en hún tók 12
slík ásamt því að skora 10 stig.
Leik Hauka og Keflavíkur var
ekki lokið þegar blaðið fór í prentun.
Sjá mbl.is/sport/korfubolti.
Blikar skelltu
Borgnesingum
Nýliðar Fjölnis með fjórða sigurinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Átök Jessica Kay Lorea úr Breiðabliki og Maja Michalska úr Skallagrími
gáfu ekkert eftir í þessu návígi í Smáranum í gærkvöld.
KÖRFUBOLTINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Breiðablik gerði sér lítið fyrir og
vann bikarmeistara Skallagríms
þegar liðin mættust í úrvalsdeild
kvenna í körfuknattleik, Dominos-
deildinni, í Smáranum í Kópavogi í
gærkvöld, 71:64.
Skallagrímur hafði unnið þrjá af
fyrstu fjórum leikjum sínum en er
nú með sex stig að fimm leikjum
loknum. Breiðablik hafði hins vegar
tapað fjórum af fyrstu fimm leikjum
sínum.
Jessica Kay Lorea átti stórleik
með Blikum og skoraði 28 stig en hjá
Skallagrími var Sanja Orozovic með
19 stig og Keira Robinson 17.
Nýliðar Fjölnis halda áfram að
festa sig vel í sessi í deildinni á með-
an Vesturbæingarnir í KR sitja sem
fastast á botninum.
Fjölnir vann leik liðanna í Graf-
arvogi á allsannfærandi hátt, 75:68,
eftir að hafa verið yfir í hálfleik,
44:32. Fjölniskonur hafa þar með
unnið fjóra af fyrstu sex leikjum sín-
Arnór Ingvi Traustason landsliðs-
maður í knattspyrnu og leikmaður
sænsku meistaranna Malmö var í
gær orðaður við bandaríska félagið
New England Revolution og ítalska
félagið Lecce í netútgáfu Kvälls-
posten. Þar er sagt að hann hafi
fengið mjög gott tilboð frá New
England, sem er frá Foxborough í
Massachusetts og leikur í MLS-
deildinni. Arnór hefur leikið með
Malmö undanfarin þrjú ár og á eitt
ár eftir af samningi sínum við félag-
ið sem vann sannfærandi sigur í
sænsku úrvalsdeildinni á síðasta ári.
Arnór Ingvi á för-
um frá Malmö?
Morgunblaðið/Eggert
Malmö Arnór Ingvi Traustason
gæti yfirgefið sænsku meistarana.
Landsliðsmiðvörðurinn Sverrir
Ingi Ingason heldur áfram að raða
inn mörkum fyrir gríska knatt-
spyrnufélagið PAOK en í gær skor-
aði hann í sínum þriðja leik í röð og
í fjórða sinn í síðustu sex leikjum.
Sverrir skoraði fjórða mark PAOK
í stórsigri liðsins á Larissa, 5:0, í
sextán liða úrslitum grísku bikar-
keppninnar. Hann skoraði í tveim-
ur síðustu deildaleikjum, gegn
Olympiacos og Volos, og einnig
gegn Panathinaikos rétt fyrir jól.
Fram að því hafði Sverrir ekki
skorað síðan á Þorláksmessu 2019.
Sverrir áfram
á skotskónum
Morgunblaðið/Eggert
PAOK Sverrir Ingi Ingason skoraði í
bikarleik gegn Larissa í gær.
Frakkar fóru ekki létt með að vinna
Alsír í milliriðli okkar Íslendinga í
gær. Frakkland fékk þó bæði stigin
og vann 29:26 en þurfti að hafa
verulega fyrir því. Frakkar eru því
áfram efstir í milliriðlinum.
Þegar rúmar tvær mínútur voru
eftir höfðu Frakkar aðeins eins
marks forskot en til samanburðar
vann Ísland lið Alsír 39:24 í riðla-
keppninni. Dika Mem, Ludovic
Fabregas og Kentin Mahe skoruðu
fjögur mörk hver fyrir Frakka sem
eru með sex stig í milliriðli 3.
Noregur er nú með fjögur stig og
fór upp að hlið Portúgals. Noregur
hafði betur gegn Portúgal 29:28 og
var sá leikur ekki síður spennandi.
Portúgal sem vann Ísland í fyrsta
leik í keppninni var yfir þegar um
fimm mínútur voru eftir. Norð-
menn reyndust þó sterkari á loka-
sprettinum og unnu 29:28 en Portú-
gal fékk síðustu sóknina í leiknum
og gat því jafnað. Hefði Portúgal
náð að kreista fram sigur hefði
Noregur ekki átt möguleika á að
komast í 8-liða úrslit.
AFP
Barátta Portúgalar gerðu Sander Sagosen erfitt fyrir í gærkvöld.
Naumt hjá Frökkum
og Norðmönnum
Landsliðsmaðurinn Elvar Örn Jónsson bætist í hóp ís-
lensku handknattleiksmannanna í sterkustu deild í
heimi, þýsku 1. deildinni, frá og með næsta keppn-
istímabili. Vísir greindi frá því í gær að Elvar væri búinn
að semja við Melsungen um að ganga til liðs við félagið í
sumar og að formlega yrði greint frá félagaskiptum
hans eftir heimsmeistaramótið í Egyptalandi.
Elvar, sem er 23 ára gamall, er á sínu öðru ári með
Skjern í dönsku úrvalsdeildinni og er þar í stóru hlut-
verki en áður hafði hann verið valinn tvívegis í röð besti
leikmaður íslensku úrvalsdeildarinnar með Selfyss-
ingum.
Guðmundur Þ. Guðmundsson landsliðsþjálfari er jafnframt þjálfari Mel-
sungen og línumaðurinn Arnar Freyr Arnarsson, samherji Elvars í lands-
liðinu, er leikmaður liðsins. Melsungen, sem er frá litlum samnefndum bæ í
miðju Þýskalandi, er í 13. sæti af 20 liðum í 1. deildinni en hefur unnið sex
leiki og gert eitt jafntefli í tíu leikjum í vetur og á fimm til sex leiki til góða
á keppinautana vegna tíðra frestana á yfirstandandi keppnistímabili.
Elvar er á leið til Þýskalands
Elvar Örn
Jónsson
Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir er í liði
ársins hjá evrópska knattspyrnusambandinu, UEFA.
Kosning í lið ársins fór fram á vef UEFA en Sara varð
Evrópumeistari og franskur bikarmeistari með Lyon í
sumar, ásamt þvi að verða Þýskalandsmeistari og bikar-
meistari með Wolfsburg.
Leikmenn Evrópumeistara Lyon eru í meirihluta í lið-
inu eða sex talsins en ásamt Söru eru þær Sarah Bou-
haddi, Kadeisha Buchanan, Wendie Renard, Amandine
Henry og Delphine Cascarino allar í liðinu. Þá er besta
knattspyrnukona heims árið 2020 einnig í liðinu, Lucy
Bronze frá Englandi, en hún varð Frakklands-, Evrópu-
og bikarmeistari með Lyon en hún gekk til liðs við Manchester City. Aðrar
í liðinu eru Magdalena Eriksson (Chelsea) frá Svíþjóð, Kheira Hamraoui
(Barcelona) frá Frakklandi, Danielle van de Donk (Arsenal) frá Hollandi og
Pernille Harder (Wolfsburg/Chelsea) frá Danmörku.
Sara Björk í úrvalsliði Evrópu
Sara Björk
Gunnarsdóttir