Morgunblaðið - 21.01.2021, Page 67
MENNING 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021
www.gilbert.is
GEFÐU TÍMA
ÍSLENSKT ÚR MEÐ SÁL
101 ART DECO
Kleppsmýrarvegur 8 | 104 Reykjavík | 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is
NÝTT ÁR
NÝTT UPPHAF
Við tökum vel á móti
nýjum viðskiptavinum
Starfsmenn Grevin-vaxmynda-
safnsins í París sjást hér taka bind-
ið af vaxmyndinni af Donald Trump
fráfarandi Bandaríkjaforseta, áður
en myndin sjálf var fjarlægð og
eftirmynd nýja forsetans, Joes
Bidens, komið fyrir.
Forstöðumaður safnsins segir
það hafa verið vinsælt meðal gesta
að taka sjálfsmyndir með Trump en
sumir hafi kosið að bora í nef vax-
myndarinnar svo hana þurfi að lag-
færa. Þannig hefur aldrei þurft að
gera við aðrar vaxmyndir í safninu.
Vax-Trump
af stallinum
AFP
Tekinn niður Eftirmynd Trumps var fjarlægð úr vaxmyndasafni í París.
Tímabundin vinnustofa hönnuðarins
sem kallar sig Ýrúrarí verður opnuð
í Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ
á morgun, föstudag, frá kl. 12 til 17.
Þá býður safnið gestum líka ókeypis
aðgang að sýningunni 100% ULL.
Ýr Jóhannsdóttir er textílhönn-
uður og listakona sem starfar undir
nafninu Ýrúrarí. Verkefni hennar
eru að mestu unnin í prjóni þar sem
húmor, handverk og hreyfing mæt-
ast og hafa þau vakið mikla athygli
að undanförnu.
Ýr stundaði nám í textílhönnun
við Myndlistaskólann í Reykjavík og
lauk BA-gráðu í faginu í Glasgow
School of Art árið 2017. Hún stundar
nú nám í listkennsludeild LHÍ.
Á vinnustofu Ýrúrarí á Hönn-
unarsafni Íslands mun fara fram
vinna að framhaldi verkefnisins
Peysa með öllu sem hún vann í sam-
starfi við fatasöfnun Rauða krossins
fyrir HönnunarMars 2020. Í Peysu
með öllu vann Ýrúrarí með peysur
sem lent höfðu í óhöppum í fyrra lífi
og voru því ekki boðlegar til sölu í
verslunum Rauða krossins.
Hönnuðurinn Ýr, sem kallar sig Ýrúrarí, á vinnustofunni í safninu.
Ýrúarí með vinnustofu
í Hönnunarsafninu
Tónlistarmaðurinn Van Morrison
er ósáttur við bann við tónleika-
haldi á Norður-Írlandi og hefur nú
beðið lögmann sinn að ganga í mál-
ið og hefja mál gegn heimastjórn-
inni. Bannið er tilkomið vegna Co-
vid-19, nema hvað, og nær yfir staði
sem hafa leyfi til tónleikahalds.
Morrison er frá Norður-Írlandi
og hefur sent frá sér nokkur lög
hina síðustu mánuði þar sem hann
hefur mótmælt hinum ýmsu far-
sóttarreglum og -takmörkunum.
Hefur hann farið þess á leit við
hæstarétt í heimalandi sínu að
endurskoða tónleikabannið. Heima-
stjórnir Skotlands, Wales og Norð-
ur-Írlands hafa allar bannað fjölda-
samkomur og þeirra á meðal
tónleika innanhúss. Hafa yfirlýs-
ingar Morrison komið illa við
marga en hann hefur efast um
sannleiksgildi þeirra vísinda sem
búa að baki banni við fjöldasam-
komum og lýst sig andvígan út-
göngubanni. Ástandið er þó afar
slæmt í Bretlandi og það versta í
allri Evrópu sökum hins nýja og af-
ar smitandi afbrigðis veirunnar.
Morgunblaðið/Golli
Opinskár Van Morrison á tónleik-
um í Laugardalshöll árið 2004.
Van Morrison ósáttur
við tónleikabann
Streymisveitan Netflix hefur nú
komist yfir 200 milljóna áskrifta
markið og hefur aldrei verið í álíka
vexti og árið 2020, að því er fram
kemur á vef Variety. Á seinasta
ársfjórðungi ársins fjölgaði áskrift-
um um 8,5 milljónir og var það
langt umfram væntingar, um 2,5
milljónum fleiri áskriftir en áætl-
anir gerðu ráð fyrir. Voru áskriftir
í árslok 203,7 milljónir.
Þessi mikla fjölgun áskrifta er
fyrst og fremst farsóttinni að
þakka þar sem kvikmyndahús voru
víða lokuð eða með lítið úrval
mynda og fólk var mun meira
heima við en í venjulegu árferði.
Fjölgun áskrifta yfir árið allt var
36,6 milljónir og hefur hún aldrei
verið jafnmikil á einu ári í sögu
veitunnar. Fyrra met var 28,6
milljónir árið 2018.
AFP
Í sókn Streymisveitan Netflix sækir í sig veðrið með ári hverju.
Yfir 200 milljónir
áskrifenda að Netflix