Morgunblaðið - 04.03.2021, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021
„Komdu í Bílanaust þar færð þú allt fyrir bílinn og meira til“
rafgeymar olíurvarahlutir vetrarvörur
3
7 verslanir um land allt
Hafnargötu 52Vatnagörðum 12
104 Reykjavík
S. 535 9000
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Óróapúls við Litla-Hrút við Fagradalsfjall,
suður af Keili á Reykjanesskaga, mældist á
jarðskjálftamælum klukkan 14.20 í gær. Tal-
ið var að hann gæti bent til yfirvofandi eld-
goss.
Hraunflæði líklega til suðurs
Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Há-
skóla Íslands gaf út nýja spá um mögulega
stefnu hraunflæðis ef kæmi til eldgoss.
Hermilíkanið var miðað við hvar óróinn
mældist og mögulega staðsetningu á gos-
sprungu. Talið er að hraun muni fara til suð-
urs gjósi á þessum stað. Líkanið er háð því
að staðsetning gossprungunnar breytist
ekki.
Dr. Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur og
prófessor emeritus við Háskóla Íslands,
sagði síðdegis í gær að það væri mjög
óvenjulegt að sjá gosóróa áður en kæmi eld-
gos. Venjulega fylgdi gosóróinn eldgosunum.
Verið var að gaumgæfa merkin sem jarð-
skjálftamælarnir námu í gær. Einn mögu-
leikinn var sá að komið hefði þétt röð af
jarðskjálftum sem litu út líkt og órói.
Páll sagði að atburðarásin sem gaf þessi
merki hefði verið í suðvesturendanum á því
sem hefur verið túlkað sem kvikugangur.
Staðurinn er undir austurhlíðum Fagradals-
fjalls.
Um 17 þúsund jarðskjálftar
Rétt vika var í gær frá því að kröftug jarð-
skjálftahrina hófst á Reykjanesskaga mið-
vikudaginn 24. febrúar. Síðdegis í gær höfðu
sjálfvirkir jarðskjálftamælar Veðurstofunnar
staðsett um 17.000 jarðskjálfta síðan hrinan
hófst.
Jafn langdregnar jarðskjálftahrinur og
þessi eru óvenjulegar á Reykjanesskaganum,
að sögn Páls. Hann sagði að jarðskjálftahrin-
ur hefðu stundum staðið svo dögum skipti en
það væri alveg nýtt að fólk á höfuðborg-
arsvæðinu og á Suðurnesjum fyndi jafn mik-
ið fyrir jarðskjálftunum og nú. Ekkert lát
var á jarðskjálftahrinunni í gær og byrjaði
sérstök hrina í eftirmiðdaginn.
Páll sagði ómögulegt að segja fyrir um það
hvort eitthvað myndi draga úr jarðskjálft-
unum ef eldgos hæfist við Fagradalsfjall.
„Það er svo stórt svæði sem er undir og
nær eftir endilöngum Reykjanesskaganum.
Þetta getur hlaupið fram og til baka. Þótt
það gjósi á einum stað þarf það ekki endi-
lega að þýða að allt annað sé afskrifað,“
sagði Páll. En má ætla, miðað við eldgos-
asögu Reykjanesskaga, að nú sé hafin at-
burðarás sem geti orðið nokkuð löng? „Ef
kvika er á annað borð komin inn í kerfið er
erfitt að spá nákvæmlega um hvað gerist í
framhaldinu.“
Talið er víst að kvikugangur hafi myndast
undir yfirborðinu á milli Fagradalsfjalls og
Keilis. Ekki lá fyrir með vissu í gær hve
djúpt hann liggur og á hve miklu dýpi. Von
var á nýrri InSAR-gervitunglamynd síðdegis
í gærkvöldi af svæðinu. Páll sagði að vænt-
anlega yrði hægt að lesa meiri upplýsingar
um kvikuhlaupið úr henni.
Þróun skjálftavirkni á Reykjanesskaga frá 24. febrúar til kl. 13 í gær
Tími og upptök skjálfta frá 24. febrúar Gangur í efstu kílómetrum jarðskorpunnar – afl ögun á yfi rborði Mögu legt um fang hraun rennsl is
5
4
3
2
1
0
Graf og upplýsingar um stærð skjálfta:
Veðurstofa Íslands, Skjálfta-Lísa
miðvikud. 24. feb. fi mmtud. 25. feb. föstud. 26. feb. laugard. 27. feb. sunnud. 28. feb. mánud. 1. mars þriðjud. 2. mars miðvikud. 3. mars
24.2. kl. 10.05
Stærð 5,72
24.2. kl. 12.47
Stærð 4,75
24.2. kl. 10.30
Stærð 4,97
27.2. kl. 08.07
Stærð 5,15
25.2. kl. 14.35
Stærð 3,47
28.2. kl. 00.19
Stærð 4,7
1.3. kl. 01.31
Stærð 4,90
26.2. kl. 22.38
Stærð 4,86
1.3. kl. 16.35
Stærð 5,04
2.3. kl. 03.05
Stærð 4,62
3.3. kl. 11.05
Stærð 3,83
3.3. kl. 02.12
Stærð 4,07
Kvika berst upp í átt að yfi rborði sem lóðrétt
innskot og myndar gang. Samhliða gliðnar
skorpan. Oft stöðvast gangurinn áður en
hann nær til yfi rborðs.
Gangur á nokkurra kílómetra dýpi
Þegar gangur nálgast yfi rborð myndast sprungur
og sigdalur. Nái gangurinn yfi rborði hefst eldgos.
Gangur nálgast yfi rborð og
siggengi myndast
Lan
dris
Lan
dris
Lan
dsig
Sigd
alur
Gan
gur Gan
gur
Berg Berg
Kvika
Kvika
24.2. 25.2. 26.2. 27.2. 28.2. 1.3. 2.3. 3.3
Kefl avík
Höfuðborgar-
svæðið
Vogar
Grindavík
Hafnir
Sandgerði
Garður
Kefl avík
Höfuð-
borgar-
svæðið
Njarðvík Vogar
Grindavík
Keilir
Kleifarvatn
Krýsuvík
Fagradalsfjall
Mögulegt
hraunrennsli
Miðað við gos á tveggja kíló metra langri
sprungu milli Keil is og Litla Hrúts
Ko
rt
: V
eð
ur
st
of
a
Ís
la
nd
s
Kort: Veðurstofa Íslands, Skjálfta-Lísa
Teikning: Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands
Litli-Hrútur
Sprunga
Vikulöng jarðskjálftahrina
Óróapúls mældist í gær Hraunflæði til suðurs miðað við mögulegan gosstað Óvenjuleg hrina
Morgunblaðið/Eggert
Órói Björgunarsveitarfólk við Keili í gær.
Skjálftahrina á Reykjanesskaga