Morgunblaðið - 04.03.2021, Síða 41

Morgunblaðið - 04.03.2021, Síða 41
41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021 Árið 2019 ákvað UNESCO að 4. mars yrði alþjóðlegur Dagur verkfræði og sjálf- bærrar þróunar, þ.e. World Engineering Day (WED). Var hald- ið upp á daginn í fyrsta sinn á síðasta ári. Með þessari ákvörðun var vakin athygli á mik- ilvægu framlagi verk- fræðinnar og verk- fræðinga til sjálfbærrar þróunar og til að takast á við þær miklu áskor- anir sem mannkynið stendur frammi fyrir. Markmið þessa dags er einnig að vekja athygli á verk- fræðinni sem starfs- grein og hvernig hún felur í sér möguleika á að breyta heiminum til hins betra. Verkefnin eru næg á heimsvísu. Tryggja þarf öllum jarðarbúum aðgang að hreinu vatni, hreinlæt- isaðstöðu, endurnýj- anlega orku auk ann- arra grunnþarfa. Samhliða öllu þessu þarf að takast á við loftslagsbreytingar, verndun umhverfis, sífellt stækk- andi borgir og nýja tækni, til dæmis á sviði gervigreindar. Í ár er athyglinni beint að nýrri skýrslu UNESCO; Engineering for Sustainable Development: Deliver- ing on the Sustainable Development Goals. Í skýrslunni er fjallað um hversu mikilvægu hlutverki verk- fræðin gegnir við að ná markmiðum um sjálfbæra þróun. Bent er á að til að bregðast við skorti á verkfræð- ingum verði að tryggja nám án að- greiningar og jafnrétti innan verk- fræðinnar. Vakin er athygli á nýjum verkfræðilegum lausnum sem nýtast við að að ná markmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Skýrslan greinir einnig þær fram- farir sem hafa orðið og áskoranir í menntun verkfræðinga og þar eru teknar saman upplýsingar um þróun verkfræðinnar á einstökum svæðum. Að lokum eru í skýrslunni tillögur um hvernig hægt er að þróa verk- fræðina í þágu sjálfbærnimarkmið- anna og kallað er eftir alheims- samvinnu ólíkra hagsmunaaðila til að stuðla að þróun verkfræðinnar í þessum tilgangi. Tækifærin sem skapast með því að halda hátíðlegan Dag verkfræði og sjálfbærrar þróunar eru því margvísleg. Meðal annars að hvetja ungt fólk til dáða og benda á þá fjöl- breyttu möguleika sem verkfræðin býður upp á fyrir þau sem vilja hafa áhrif til góðs. Verkfræðingafélag Íslands hefur þegar tekið heimsmarkmiðin til skoðunar og vill leggja sitt af mörk- um. Félagið er stærsta og öflugasta félag tæknimenntaðra á Íslandi með um 4.800 félagsmenn. Starfsemi Verkfræðingafélagsins er mikilvæg, ekki aðeins félagsmönnum, heldur einnig íslensku samfélagi sem far- vegur og skynsöm rödd tækni- framfara sem framtíðarlífsgæði okk- ar byggjast á. Upplýsingar um Dag verkfræði og sjálfbærrar þróunar má nálgast á vefslóðinni: worldengineeringday.net. Eftir Svönu Helen Björnsdóttur »Meðal annars að hvetja ungt fólk til dáða og benda á þá fjöl- breyttu möguleika sem verkfræðin býður upp á fyrir þau sem vilja hafa áhrif til góðs. Svana Helen Björnsdóttir Höfundur er formaður Verkfræðingafélags Íslands. Dagur verkfræði og sjálfbærrar þróunar Það var efnahags- legu sjálfstæði Íslands mikilvægt þegar hafist var handa við bygg- ingu gömlu hafn- arinnar í Reykjavík á árunum 1913-1917. Þróun borgarinnar, stærri skip og auknir flutningar leiddu síðar til þess að megingátt flutninga færðist í Sundahöfn þar sem hafnarsvæðið hefur þróast frá því um 1970. Fyrir um 25 árum var rætt um stækkun hafnarsvæðisins upp í Geldinganes og Eiðsvík, en hætt var við þau áform árið 2004 þegar Reykjavíkurborg og sveit- arfélög á norðurströnd Hvalfjarðar sameinuðu hafnir á svæðinu í Faxa- flóahafnir. Eitt af leiðarljósunum þá var að nýta kosti Grundartangahafnar til aukinna flutninga. Sterkir innviðir í höfn- um eru jafn mik- ilvægir nú og í upphafi 20. aldar þar sem Ís- land er áfram háð inn- og útflutningi á varn- ingi og framleiðslu sjó- leiðina. Um margt er staðsetning Sunda- hafnar hagkvæm, m.a. út frá umhverfislegum sjónarmiðum þar sem meginhluti neyslu- varnings sem þangað er fluttur fer stuttar leiðir til neytenda. Hins vegar er ljóst að með þróun borgar og ákalli um lagningu Sundabrautar er mikilvægt að nýta kosti hafna við Faxaflóa þar sem horft verði til langrar framtíðar varðandi þróun sjóflutninga. Þar verður m.a. að horfa til vegtenginga við hafnarsvæði, mögulegt bakland farmsvæða og hagkvæmni við gerð viðlegubakka. Þessir þættir voru hafðir að leiðarljósi þegar ákveðið var að flytja flutningastarfsemina úr gömlu höfninni í Sundahöfn og eins þegar mikilvægir innviðir nýrrar flutningahafnar verða metn- ir til framtíðar. Þegar hafnarkostir á Suðvest- urhorninu eru skoðaðir má sjá að Grundartangi býr að öllum þeim kostum sem öflug flutningahöfn þarf að hafa, s.s. nálægð við meg- inmarkaðssvæði, landrými fyrir farmsvæði, sterka innviði í raf- magni, möguleika á hagkvæmri bakkagerð og góðri vegtengingu við höfuðborgarsvæðið, sem með vega- bótum á Kjalarnesi, Sundabraut og nýjum Hvalfjarðargöngum munu styrkja Grundartanga enn frekar sem hafnar- og atvinnusvæði. Í dag eru yfir 300 skipakomur til Grundartanga á hverju ári og höfn- in getur tekið á móti skipum með mikilli djúpristu. Um höfnina fara liðlega tvær milljónir tonna af hrá- efni og framleiðslu fyrirtækjanna á svæðinu. Hafnarbakkar eru nú þeg- ar um 850 metrar og hagkvæmt að lengja viðleguna um að minnsta kosti 700 metra til viðbótar. Dýpi er nægjanlegt fyrir viðlegu djúpristra skipa. Þessir staðarkostir skipa Grundartanga í fremstu röð þegar rætt er um tilfærslu jafn mikil- vægra innviða og flutningahafnar. Mikilvægt er, þegar ákvörðun um fjárfestingu í hafnarsvæðum er tekin, að horft sé til langrar fram- tíðar til þess að sú mikla fjárfesting skili sér. Á Grundartanga er unnt að þróa hafnarsvæðið í áföngum og án þess að ráðast í dýrar fram- kvæmdir við breytingar vegna dýp- is, landgerðar og skjólgarða. Það sýnir sig að þróun borgar og byggða krefst þess að skipuleggja þarf mikilvæga innviði til langrar framtíðar. Fjárfesting í höfnum er einn lyk- ilþátturinn í uppbyggingu atvinnu- lífs á Íslandi, aðgangi þjóðarinnar að erlendum mörkuðum og snurðu- lausum flutningum á nauðsynja- vöru til landsins. Þegar skynsamleg staðsetning flutningahafnar er metin verða allir lykilþættir góðrar hafnar að vera til staðar og þar kemur Grundartangi sterkur inn sem traustur valkostur til framtíðar. Lagning Sundabraut- ar færir hana nær meginmark- aðssvæði Íslands. Aðrir valkostir hafa sína kosti og galla – en ef litið er til þróunar á skipakosti og ná- lægðar við markaðssvæði – er hún öruggur kostur. Eftir Harald Benediktsson »Mikilvægt er, þegar ákvörðun um fjár- festingu í hafnarsvæð- um er tekin, að horft sé til langrar framtíðar til þess að sú mikla fjár- festing skili sér Haraldur Benediktsson Höfundur er 1. þingmaður NV-kjördæmis. Grundartangi framtíðarhöfn vöruflutninga Mannréttindi eru einn af hornsteinum íslenskrar utanrík- isstefnu og þess vegna tölum við í utanrík- isþjónustunni hvar- vetna fyrir mannrétt- indum, bæði á vettvangi al- þjóðastofnana og í tví- hliða samskiptum við önnur ríki. Í þessum efnum er mannréttindaráð Sameinuðu þjóð- anna mikilvægasti vettvangurinn. Fjögur ár eru síðan ég ávarpaði ráðið fyrstur íslenskra utanrík- isráðherra og í síðustu viku flutti ég þar ræðu í fimmta sinn. Reynslan sýnir að með skeleggri framgöngu getum við vel látið gott af okkur leiða þannig að eftir sé tekið. Mikilvægasta verkefnið Ísland átti sæti í mannréttinda- ráðinu á árunum 2018-2019 en um er að ræða eitt mikilvægasta verk- efni sem íslenskri utanríkisþjónustu hefur verið falið. Þótt kjör Íslands hafi borið brátt að náðum við öllum þeim meginmarkmiðum sem lagt var upp með. Þar bar hæst þegar Ísland leiddi hóp 36 ríkja í gagnrýni á stjórnvöld í Sádi-Arabíu og skor- aði á þau að bæta mannréttindi í landinu, ekki síst réttindi kvenna. Þetta var í fyrsta sinn sem staða mannréttinda í Sádi-Arabíu var tek- in fyrir með þessum hætti í mann- réttindaráðinu og vakti fyrir vikið heimsathygli. Mannréttindaráðið samþykkti einnig að okkar frum- kvæði ályktun sem fól í sér að tekin yrði saman skýrsla um gróf mannréttindabrot á Filippseyjum. Þótt erfitt sé að meta beinan árangur af málafylgju af þess- um toga er það stað- reynd að í kjölfar þessarar gagnrýni fundu stjórnvöld á hvorum stað sig knúin til að bregðast við. Hvað Filippseyjar varðar þá áttum við í kjölfar þess að umrædd skýrsla kom út samstarf við stjórnvöld þar um nýja ályktun sem fól í sér að þau eigi samstarf við skrifstofu mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna um úrbætur. Að því er varðar Sádi-Arabíu bárust þau gleðitíðindi fyrir skemmstu að stjórnvöld leystu úr haldi kunna baráttukonu fyrir mannréttindum, Loujain al-Hathloul. Hennar helsti glæpur var að tala fyrir því að kon- ur fengju að aka bifreiðum. Jafnréttis- og hinseginmál í forgrunni Á vettvangi mannréttindaráðsins lögðum við líka áherslu á að leiða í jákvæðan farveg umræður um brotthvarf hins sérstaka dag- skrárliðar mannréttindaráðsins um málefni Ísraels og Palestínu en ekk- ert annað ríki en Ísrael þarf að sæta því að heyra undir sérstakan dagskrárlið, hvorki Venesúela né Mjanmar, svo dæmi séu tekin. Þetta ójafnvægi í umfjöllun ráðsins hafa gagnrýnendur þess einmitt oft hent á lofti til að rökstyðja hvers vegna ekki eigi að virða það viðlits. Í núverandi fundarlotu ráðsins leiðum við nú í fyrsta sinn hóp ríkja sem leggur fram ályktun um stöðu mannréttinda í Íran en með henni er tryggt að sérstakur skýrslugjafi ráðsins um þau mál hefur áfram umboð til starfa. Þá hefur þegar farið fram sérstök umræða um stöðu mála í Mjanmar og tók Ísland þar drjúgan þátt. Jafnréttismál eru ætíð ofarlega á dagskrá í málflutningi okkar, í mannréttindaráðinu sem annars staðar, og við tölum líka skýrt og skorinort um réttindi hinsegin fólks. Við tökum þátt í starfi sér- staks kjarnahóps ríkja um LGBTI- málefni í mannréttindanefnd alls- herjarþings Sameinuðu þjóðanna, sem er auðveldara um að tala en í að komast, og við gerðumst líka að- ilar að Equal Rights Coalition, bandalagi ríkja sem beitir sér fyrir réttindum hinsegin fólks. Þá höfum við gerst aðilar að fjölmiðlafrels- isbandalagi sem Bretland og Kan- ada höfðu frumkvæði að því að stofna sumarið 2019 (Media Free- dom Coalition) og erum við þar virkir þátttakendur síðan. Leiðarljós þróunarsamvinnu Mannréttindi eru enn fremur höfð að leiðarljósi framvegis í allri þróunarsamvinnu Íslands og aukin áhersla lögð á málsvarastarf í sam- starfsríkjum okkar, m.a. með tilliti til réttindastöðu hinsegin fólks. Í þessu sambandi má nefna að við höfum beint fjármunum til verk- efnis í þágu hinsegin fólks, Free & Equal, sem skrifstofa mannrétt- indafulltrúa Sameinuðu þjóðanna stendur fyrir. Við höfum einnig styrkt Global Equality Fund en á vettvangi hans taka líkt þenkjandi ríki höndum saman og styðja við málsvara mannréttinda og grund- vallarréttinda hinsegin fólks í þró- unarlöndum. Þegar ég lít yfir farinn veg get ég ekki annað sagt en að ég sé stoltur af frammistöðu starfsfólks utanrík- isþjónustunnar og þeim árangri sem náðst hefur. Ég er einnig stolt- ur af því hversu góðan málstað Ís- land hefur að verja og beinskeyttan boðskap að flytja, boðskap sem byggist á trúnni á algild mannrétt- indi sem allir eiga að njóta, óháð uppruna, trú eða húðlit. Ég er sann- færður um að í náinni framtíð eig- um við eftir að ná að stíga enn fleiri skref saman í rétta átt. Öflug málafylgja á mannréttindasviðinu Eftir Guðlaug Þór Þórðarson » Þótt erfitt sé að meta beinan árangur af slíkri málafylgju er það staðreynd að gagnrýni Íslands og fleiri ríkja hreyfði við mannrétt- indabrjótunum. Guðlaugur Þór Þórðarson Höfundur er utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra UN Photo/Violaine Martin Mannréttindaráð SÞ „Reynslan sýnir að með skeleggri framgöngu getum við vel látið gott af okkur leiða þannig að eftir sé tekið.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.