Morgunblaðið - 04.03.2021, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021
var dreift um miðin með tilvilj-
unarkenndum hætti.
Helsta markmið er að fylgjast
með breytingum á stofnstærðum,
aldri, fæðu, ástandi og útbreiðslu
botnfisktegunda við landið. Einnig
verður sýnum safnað vegna ýmissa
rannsókna, t.d. á mengunarefnum í
sjávarfangi, og mat lagt á magn
ýmiskonar rusls á sjávarbotni. Í
marsralli 2019 hóf Hafrannsókna-
stofnun aftur merkingar á þorski
eftir nokkurt hlé. Í ár er stefnt að
merkingum á þorski á Vestfjarða-
miðum og úti fyrir Norðurlandi.
aij@mbl.is
Auk rannsóknaskipanna Árna Frið-
rikssonar og Bjarna Sæmundssonar
taka togararnir Breki frá Vest-
mannaeyjum og Gullver frá Seyðis-
firði þátt í stofnmælingu botnfiska á
Íslandsmiðum. Þjálli heiti á verk-
efninu, sem hófst á mánudag og
stendur í þrjár vikur, eru marsrall
og togararall.
Togað verður á tæplega 600
stöðvum á 20-500 m dýpi umhverfis
landið. Rallið hefur verið fram-
kvæmt með sambærilegum hætti á
hverju ári síðan 1985. Helmingur
togstöðva var í upphafi staðsettur
af skipstjórum, en öðrum stöðvum
Ljósmynd/Jónas P. Jónasson
Togararall Starfsfólk Hafrannsóknastofnunar og skipverjar á Breka mæla
og meta afla úr togi á Selvogsbanka í upphafi leiðangursins, á myndinni eru
Matthías Ragnarsson, Elzbieta Baranowska, Mario Santos og Jóhannes
Leite. Allt er mælt og talið og mikið kvarnað til að fá aldursdreifingu.
Tæplega 600 tog-
stöðvar í marsralli
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auð-
lindamála hefur hafnað kröfu jarð-
eigenda í innanverðu Ísafjarðar-
djúpi um ógildingu ákvörðunar
Matvælastofnunar um að veita Arc-
tic Sea Farm hf. rekstrarleyfi fyrir
kynslóðaskiptu sjókvíaeldi á regn-
bogasilungi með 5.300 tonna há-
markslífmassa við Snæfjallaströnd
í Ísafjarðardjúpi.
Kröfum Náttúruverndarsamtaka
Íslands, náttúruverndarfélagsins
Laxinn lifi, Veiðifélags Laxár á Ás-
um, svo og Akurholts ehf. og Geit-
eyrar ehf., eigenda Haffjarðarár,
var vísað frá á grundvelli þess að
nefndin taldi umrædda aðila ekki
hafa lögvarða hagsmuni í málinu.
Í úrskurðinum segir að útgáfa
rekstrarleyfisins brjóti ekki í bága
við markmið laga um fiskeldi, þess
efnis að skapa skilyrði til uppbygg-
ingar fiskeldis og efla þannig at-
vinnulíf og byggð í landinu, stuðla
að ábyrgu fiskeldi og tryggja
verndun villtra nytjastofna.
Hafnaði ógildingu rekstrarleyfis regnboga-
silungaeldis í sjókvíum í Ísafjarðardjúpi
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Talsmenn fimm mismunandi sam-
taka sjómanna lýstu í gær yfir, í
sameiginlegri ályktun, áhyggjum af
þeirri stöðu sem upp er komin í
kjölfar þess að í ljós kom umfangs-
mikil viðhaldsþörf á varðskipinu Tý.
Kom fram í umfjöllun mbl.is á
þriðjudag að það sé alls óvíst hvort
og þá hvenær skipið kemst aftur í
rekstur Landhelgisgæslunnar, en
þarfagreining og áhættumat stofn-
unarinnar gerir ráð fyrir því að þörf
sé á að búa yfir þremur varðskipum.
Í svari við fyrirspurn um rekstr-
arhæfni tækja Landhelgisgæslunn-
ar segir um flugvélina TF-SIF að
hún og áhöfn sinni nú landamæra-
eftirliti fyrir Frontex, landamæra-
stofnun Evrópu, við Miðjarðarhaf
og er vélin því stödd á Möltu. Þá er
flugvélin í skoðun sem lýkur í dag.
Þyrlan TF-LIF, sem er 35 ára,
verður seld úr landi að loknu við-
haldsferli sem stendur nú yfir í
samræmi við ákvörðun stjórnvalda
þar um. „Í stað hennar er þriðja
leiguþyrlan væntanleg af gerðinni
Airbus Super Puma EC225. Sú fær
einkennisstafina TF-GNA og gert
er ráð fyrir að vélin komi til lands-
ins um mánaðamótin,“ segir í
svarinu.
TF-EIR var í reglubundnu við-
haldi í gær og átti því að ljúka í
gærkvöldi samkvæmt svari Gæsl-
unnar. Mun sú þyrla sinna leit,
björgun, eftirliti, sjúkraflugi, æfing-
um og öðrum verkefnum. TF-GRO
var eina loftfar Landhelgisgæslunn-
ar sem var tiltækt samkvæmt
svarinu.
Hvað skipakostinn varðar er
ástandið á Tý þekkt og sinnir varð-
skipið Þór nú eftirliti umhverfis Ís-
land sem og aðgerðabáturinn Óðinn.
Ægir er í söluferli en fjórir hafa
gert tilboð í varðskipið gamla. Eft-
irlits- og sjómælingaskipið Baldur
er gert út á vorin og sumrin sam-
kvæmt svarinu. „Baldur er í reglu-
bundnu og skipulögðu viðhaldi um
þessar mundir. Báturinn er orðinn
þrjátíu ára og ber aldurinn vel.“
Þetta bara gengur ekki
„Auðvitað hef ég áhyggjur, eins
mikið og gerist í náttúrunni í kring-
um okkur. Það að það sé bara eitt
varðskip við landið er auðvitað
óboðlegt,“ svarar Artúr Bogason,
formaður Landssambands smábáta-
eigenda, inntur álits á stöðunni.
Hann segir öryggismálin ávallt
ofarlega í huga smábátasjómanna
enda fáir sem verða jafn mikið fyrir
barðinu á veðri og vindum.
„Við eigum ekki að láta þetta
spyrjast út um okkur að það sé eitt
varðskip sem eigi að sinna 738 þús-
und ferkílómetra lögsögu og sex
þúsund kílómetra strandlengju.
Þetta bara gengur ekki.“
Skert viðbragðsgeta
Landhelgisgæslunnar
Aðeins var eitt varðskip og ein þyrla til taks í gær
Tækjakostur Landhelgisgæslunnar
Sinnir verkefnum Í viðhaldi Viðhaldi lokið Ekki í rekstri/óvissa Í söluferli/seld
Heimild: Landhelgisgæslan
Skip Tegund Staða Aldur (ár)
Þór Varðskip Sinnir hefðbundnum verkefnum 10
Týr Varðskip Í slipp og óljóst hvort komi í rekstur á ný 46
Ægir Varðskip Í söluferli 53
Óðinn Aðgerðabátur Sinnir hefðbundnum verkefnum 6
Baldur Eftirlits- og
sjómælingaskip
Í viðhaldi 30
Loftför Tegund Staða Aldur (ár)
TF-SIF Flugvél Á Möltu og er í skoðun sem lýkur í dag 12
TF-LIF Þyrla Seld og fer úr landi að loknu viðhaldi 35
TF-EIR Þyrla Viðhaldi lauk í gærkvöldi (miðvikudag) 11
TF-GRO Þyrla Sinnir hefðbundnum verkefnum 11
Mynd: Morgunblaðið/Hari
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á sjó Sjómenn hafa áhyggjur af þeirri stöðu sem upp er komin hjá LHG.
Ferðaþjónustan Brekkulækur í Miðfirði
Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi
er með til sölu jörðina og ferðaþjónustuna Brekkulæk í Miðfirði.
Ferðaþjónustan sem hefur verið með hestaferðir, gönguferðir og gistingu hefur gott orðspor og mikil sambönd. Nánar tiltekið er
um að ræða jörð og hlunnindi, húsakost og búnað fyrir ferðaþjónustu. Öll aðstaða við rekstur ferðaþjónustu er til fyrirmyndar og
allt til alls og allt mjög áhugavert. Húsakostur sem er umtalsverður er almennt í góðu ástandi. Staðsetning er góð í gróinni sveit
á jörð með umtalsverð hlunnindi í einni albestu laxveiðiá landsins.