Morgunblaðið - 04.03.2021, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021
Hlaðvörp eru alls ekki ný af nálinni en undan-
farið hafa þau rokið upp í vinsældum og nú
virðast allir og amma þeirra vera að hlusta á
eitthvað áhugavert.
Hlaðvörpin eru jafn misjöfn og þau eru mörg
og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi. Má þar taka sem dæmi að hægt er að
finna hlaðvörp sem fjalla um glæpi, geðheilsu,
viðtalsþætti, grín, óuppgerð mál, heimildar-
þætti í ýmsum formum, einfalda spjallþætti og
allt þar á milli.
Það getur því verið erfitt að feta sig áfram í
þeim frumskógi af hlaðvarpsþáttum sem til
eru.
Við hér á K100 erum mikið áhugafólk um
hlaðvörp og ákváðum við að ræða við það fólk
sem heldur úti hlaðvarpi hér á Íslandi og fá þau
til þess að gefa okkur upp hvaða hlaðvarps-
þætti, fyrir utan sína eigin, þau hlusta á í sínum
frítíma.
Það ætti að geta gefið fólki góðar hugmyndir
um áhugaverð hlaðvörp sem henta áhugasviði
hvers og eins.
Hlaðvörpin sem Inga Kristjáns hlustar á:
Fyrsti hlaðvarpsálitsgjafinn er hún Ingi-
björg Katrín Kristjánsdóttir, alltaf kölluð Inga
Kristjáns. Hún heldur úti hlaðvarpinu Illverk
þar sem hún fjallar um morð og glæpi.
Hvernig myndir þú lýsa þínu hlaðvarpi og
fyrir hverja er það?
„Illverk er hlaðvarp þar sem glæpa-
áhugamenn geta komið saman, hlustað á
áhugaverðar sannar sögur af raðmorðingjum
og annars konar glæpafólki. Ég legg mikið upp
úr því að segja söguna, fræða fólk um
uppvaxtarár morðingjanna, geðsjúkdóma
þeirra og reyni að kryfja aðeins dýpra en glæp-
inn sjálfan. Ég myndi segja að það væri ekki
fyrir viðkvæma. Illverk er fyrir fólk sem elskar
að spá og spekúlera í því sem er fjarri raun-
veruleika manns. Þeim sem elskuðu þættina
Sönn íslensk sakamál mun líklega líka vel við
mína þætti. Enda er Sigursteinn ofurhetjan
mín,“ segir Inga.
Inga segist hlusta rosalega mikið á hlaðvörp
og viðurkennir að hún sé í rauninni með eitt-
hvað í eyrunum allan daginn. Hún segir það
líklega koma fólki á óvart að sjálf hlusti hún
mjög lítið á „true crime“-hlaðvörp.
Hlaðvarpslisti Ingu Kristjáns:
Háski Podcast: „Sögur af fólki sem hefur lent í
lífsháska en blessunarlega komist lífs af. Ótrú-
legt í hvaða aðstæðum fólk hefur lent!“
Podcastalinn: „Finnst Emmsjé Gauti, sem er
rauði þráðurinn í þáttunum, svo ótrúlega
skemmtilegur náungi. En með honum er Arnar
Úlfur og Arnar sem er ekki með neitt andlit,
eins og hann er alltaf kallaður. Finnst þetta fá-
ránlega fyndnir þættir og gott „vibe“ að hlusta
á.“
Félagsmiðstöðin: „Þeir Huginn og Herra
hnetusmjör eru með það. Þeir eru algerlega
bráðfyndnir náungar og með svo fallegt sam-
band sín á milli, ég bíð spennt eftir hverjum
þætti! Þeir eru líka með skemmtilegar spurn-
ingakeppnir og tala oft um samsæriskenn-
ingar, bæði klárir og fyndnir.“
Draugasögur Podcast: „Ég gjörsamlega dýrka
þau Katrínu og Stefán. Ég myndi segja að
Draugasögur væri vandaðasta podcastið þarna
úti. Þau segja svo ótrúlega skemmtilega frá og
rannsaka staði á Íslandi þar sem reimt er.“
Tvíhöfði: Mitt allra uppáhaldsdúó, þeir Sigur-
jón Kjartansson og Jón Gnarr. Ég myndi segja
að það hlaðvarp væri mitt „save place“. Ef mér
líður illa eða ef mig vantar eitthvað til að
gleyma mér í finnst mér svo gott að hlusta,
enda þeir tveir snillingar og eðalmenn af Guðs-
náð.“
Teboðið: „Ekta stelpupodcast! Ég er ekki
þekkt fyrir að vera mikil stelpustelpa. En
manni finnst alltaf gaman að heyra „gossip“ úr
Hollywood og hinar ýmsu kenningar um fræga
fólkið. Ekki skemmir hvað Sunneva og Birta
eru miklar gullkonur.“
Þarf alltaf að vera grín: „Það sem ég hef gaman
af þeim! Ef þig vantar eitthvað til að gleðja þig
og kútveltast úr hlátri þá er þetta podcast klár-
lega eitthvað sem þú ættir að skoða!“
Sword and Scale: „Það er eitt glæpapodcast
sem ég hlusta alltaf á og ég fæ mikinn inn-
blástur þaðan en það er Sword and Scale. Ég
fíla svo hvað þáttastjórnandinn er hrár og gróf-
ur. Málin sem hann tekur fyrir eru áhugaverð
og eitthvað sem ekkert annað podcast hefur
fjallað um. Hann fer klárlega sínar eigin leiðir
og ég er alltaf fljót að hlusta á nýjustu þætt-
ina.“
Áhugaverð hlaðvörp: Inga Kristjáns gefur álit
Vinsældir hlaðvarpa hafa aukist
gífurlega undanfarið og ættu
allir að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi. Það getur þó verið erf-
itt að finna eitthvað sem snýr
að eigin áhugasviði í þeim frum-
skógi af hlaðvörpum sem til eru.
K100 fær því til sín góða álits-
gjafa úr hlaðvarpsheiminum til
þess að deila þeim hlaðvörpum
sem þau hlusta á.
Mælir með hlaðvörpum
Inga heldur sjálf úti hlað-
varpinu Illverk, en þar
fjallar hún um morð og
glæpi.
Fjölskyldubingó mbl.is fór aftur af
stað á fimmtudaginn í síðustu viku
eftir að fyrsta þáttaröðin kláraðist
um síðustu áramót. Í fyrsta þættinum
af nýju þáttaröðinni kom söngvarinn
Valdimar fram ásamt Erni Eldjárn.
Í þessari viku er það rapparinn
Ragna Kjartansdóttir, betur þekkt
sem Cell 7, sem kemur fram í þætt-
inum og mun hún taka lagið fyrir
áhorfendur.
Þau Siggi Gunnars og Eva Ruza
sjá svo til þess að færa fjölskyldum
landsins bingótölurnar beint heim í
stofu.
„Það var geggjað að fara aftur af
stað í síðustu viku með bingóið, góð
orka frá áhorfendum og mikil þátt-
taka,“ segir Siggi Gunnars bingó-
stjóri sem bíður spenntur eftir því að
útsending hefjist í kvöld klukkan
19:00.
Ásamt þeim verður furðu DJ-inn í
setti, tóm gleði og fullt af stórglæsi-
legum vinningum.
Allar upplýsingar um þátttöku og
útsendingu má finna með því að fara
inn á heimasíðu bingósins á
www.mbl.is/bingo. Allar fyrirspurnir
vegna bingósins er hægt að senda á
bingo@mbl.is.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fjölskyldubingó Bingóið hefst í kvöld klukkan 19.00
Rapparinn Cell 7 verður
í bingóinu í kvöld
Ljósmynd/Aðsend
Rapparinn Cell 7 Kemur fram í
bingóþætti kvöldsins.