Morgunblaðið - 04.03.2021, Qupperneq 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021
Ferðalög á
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
KAUPHLAUP
% AF ÖLLUM
ECCO SKÓM20
&
4.-8. MARS
KRINGLUKAST
S K Ó V E R S L U N
STEINAR WAAGE
Í inngangsorðum höfundar, Ólafs
Arnar Haraldssonar segir svo:
Laugavegurinn og nærsvæði hans
ásamt Fimmvörðuhálsi hafa verið
helstu starfssvæði Ferðafélags Ís-
lands í hart nær hálfa öld. Félagið
hefur viljað greiða götu ferðamanna
um svæðið þannig að þeir geti
kynnst þessu fjölbreytta og fagra
landsvæði og notið gönguferðar og
góðs aðbúnaðar. Vinsældir göngu-
leiðarinnar hafa vaxið ár frá ári og
hefur félagið mætt því með upp-
byggingu á aðstöðu og þjónustu.
Á þessu svæði á Ferðafélagið
sæluhús á átta stöðum, í Land-
mannalaugum, við Hrafntinnusker,
Álftavatn, Hvanngil, Emstrur, í
Langadal og Húsadal í Þórsmörk og
á Fimmvörðuhálsi. Félagið hefur
unnið að endurbótum á gönguleið-
inni bæði á stígum og mannvirkjum,
gefið út fræðsluefni og veitt marg-
víslegri þjónustu. Enn fremur hefur
félagið skipulagt fjölda ferða um
svæðið á eigin vegum og greitt götu
annarra sem þar vilja starfa. Það var
því komið að því að Ferðafélagið
gæfi út árbók um svæðið en áður
hafa verið skrifaðar árbækur um af-
markaða hluta þess og voru þær
gefnar út árin 1960, 1972, 1976 og
2010. Með þessari árbók er ætlunin
að þeir sem vilja fræðast um svæðið
geti fundið slíkt efni í einni bók til
viðbótar þeim fróðleik sem finna má
í fyrri árbókum. Síðust þeirra bóka
var gefin út árið 2010 og fjallaði um
Friðlandið að Fjallabaki.
Augljóslega er töluverður munur
á efnistökum árbókar um óbyggða-
svæði og svæði í byggð. Í óbyggð er
saga mannvistar ekki mikil og fárra
nafngreindra manna er getið. Heim-
ildir og sagnir eru fáorðar og örnefni
Ferðafélag Íslands gaf út sína fyrstu
árbók árið 1928. Árbókin hefur síðan
komið út árlega í óslitinni röð og er
einstæður bókaflokkur um land og
náttúru. Hver bók fjallar venjulega
um tiltekið afmarkað svæði á land-
inu og nær efni þeirra nú um landið
allt, víða í annað eða jafnvel þriðja
sinn. Árbækurnar eru því í raun al-
tæk Íslandslýsing og gefa í senn
ferðafólki góðar ferðaupplýsingar
ásamt því að veita innsýn í sögu og
þjóðlegan fróðleik. Ferðafélagið hef-
ur alla tíð kostað kapps um að gera
árbækur sínar sem best úr garði og
jafnan fengið heimamenn á hverjum
stað og sérfræðinga til liðs við gerð
árbókar. Mikinn fróðleik um nátt-
úrufar er að finna í bókunum, gróð-
ur, fugla og aðra landsins prýði, en
ekki síst um jarðfræði og mynd-
unarsögu landsins. Saga og menning
skipa háan sess í umfjöllun um
byggðirnar.
Árbók Ferðafélags Íslands 2021
sem fjallar um Laugaveginn er nú
farin í prentun og verður tilbúin til
dreifingar í apríl.
tiltölulega fá í samanburði við þétt
setin og gamalgróin héruð. Flest
hafa örnefnin orðið til við fjárleitir
og að nokkru leyti vegna ferðalaga.
Þetta á ekki síst við um stóran hluta
árbókarsvæðisins sem hér er fjallað
um. Það var því leitað fanga hjá
bændum og öðru þrautkunnugu fólki
um sagnir og örnefni og fjallkóngar
afréttanna leggja til lýsingar á fyr-
irkomulagi í fjallferðum og smala-
mennsku eins og þeim er nú háttað.
Árbók FÍ 2021 um Laugaveginn
lýsir gönguleiðinni sjálfri og stóru
svæði í nágrenni Laugavegarins. Af-
markast það af Markarfljóti að vest-
an og Mýrdalsjökli að austan. Með
þessu móti getur lesandinn fundið
annars vegar tiltölulega einfalda
leiðsögn um Laugaveginn og hins
vegar ítarlegri fróðleik um ná-
grannasvæði. Má segja að bókin eigi
að vera ferðabók og landlýsing.
Náttúrufar óbyggðanna er fjöl-
breytt og stórfenglegt. Áhersla er
því lögð á að lýsa því og sérfróðir
náttúrufræðingar Náttúru-
fræðistofnunar leggja þar til mikinn
fróðleik.
Páll Guðmundsson palli@fi.is
Ljósmynd/Daníel Bergmann
Ljósmynd/Daníel Bergmann
Laugavegurinn – árbók FÍ 2021
Ferðafélag Íslands gaf út sína fyrstu árbók árið 1928. Árbókin hefur síðan
komið út árlega í ólitinni röð og er einstæður bókaflokkur um land og náttúru.
Hver bók fjallar venjulega um tiltekið afmarkað svæði á landinu og nær efni
þeirra nú um landið allt, víða í annað eða jafnvel þriðja sinn. Árbækurnar eru
því í raun altæk Íslandslýsing og gefa í senn ferðafólki góðar ferðaupplýsingar
ásamt því að veita innsýn í sögu og þjóðlegan fróðleik.
Litafegurð
Landmannalaugar.
Fjölbreytt Á Laugaveg-
inum og að Fjallabaki er
mikill fjölbreytileiki í
landslagi og náttúru.