Morgunblaðið - 04.03.2021, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.03.2021, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ný tækni hefur verið að ryðja sér rúms sem gerir fólki kleift að fjarstýra tækjum og búnaði á heimilum sínum í gegnum tölvur og síma. Eru slík heimili gjarnan köll- uð snjallheimili. „En margt þarf að varast þegar fólk ákveður að búa heimilum sínum slíka tækni,“ segir Helgi Þórður Þórðarson rafvirkjameistari og kennari við Raftækniskólann. Mörg dæmi séu um að fólk kaupi búnað beint af netinu frá Asíu og setji hann upp sjálft. Þessi búnaður sé í mörgum tilfellum ekki vottaður og geti skapað tjón. „Þar sem um er að ræða raf- magnstengda hluti tel ég að fólk eigi að fá fagmann í verkið sem teikni upp breytingar og skili þeim inn svo allt sé samkvæmt lögum og reglum,“ segir Helgi. Það sé stórhættulegt þegar fólk sé sjálft, án þess að hafa á því þekkingu, að setja ýmsa skynj- ara í loftdósir, rofadósir og raf- magnstöflur. Helgi segir að fólk eigi að kaupa búnað sem er framleiddur af viðurkenndum aðila og samkvæmt staðli og vottaður. Hann segir að öll snjalltæki noti ýmiskonar sam- skiptatækni til að senda frá sér merki og taka á móti skipunum. Samskiptin fara fram á fyrirframákveðnu tungumáli sem tækið tjáir sig á og skilur. „En snjallheimurinn í dag einkennist af miklu flækjustigi, miklu framboði, og flestir framleiðendur bjóða upp á eyjulausnir sérsniðnar að ákveðnum þörf- um. Þannig er t.d. öryggiskerfi ekki í stakk búið að stjórna ljósum eða stýra hitanum og öfugt. Til að ná ut- an um allt þarf að innleiða mörg mismunandi kerfi og búnað sem tala oftast ekki saman, því getur flækjustig- ið verið mikið,“ segir Helgi. Tækin sem eru hönnuð og framleidd í dag séu í auknum mæli með opna gátt sem geri notanda kleift að fá allar upplýsingar úr tækjum í gegnum einhvers konar app. Þannig geti fólk fylgst með og stýrt tækjunum hvenær og hvar sem er. Helgi spáir því að snjalltækni eigi eftir að ryðja sér til rúms í auknum mæli á næstu árum og vill hvetja fólk til að sýna varkárni. Annars geti illa farið og fólk setið uppi með tjón á húsum sínum. Hættur geta leynst á snjallheimilum  Fólk fái fagmann í verkið  Kaupi ekki beint frá Asíu Óvarlegt Getur reynst dýrkeypt þegar fólk tengir sjálft. Helgi Þórður Þórðarson Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við bíðum spenntir og ætlum að hefja framkvæmdir við veitingahúsið þegar deiliskipulagið liggur fyrir,“ segir Gísli Björnsson veitingamaður. Gísli áformar ásamt félögum sín- um, þeim Jóni Ágústi Hreinssyni og Viktori Má Kristjánssyni, að opna veitingastað í Ráðagerði á Seltjarn- arnesi í sumar. Hann segir að þeir fé- lagar hafi lengi unnið saman, séu van- ir veitingamenn og rekstraraðilar á ýmsum veitingastöðum í Reykjavík. Ráðagerði var byggt á árunum 1880-1885 og er vestasta húsið á Sel- tjarnarnesi. Húsið hefur verið um- deilt en Seltjarnarnesbær keypti það í byrjun árs 2018 og horfði til menn- ingar- og ferðatengdrar starfsemi. Bærinn seldi húsið svo á síðasta ári og er nú verið að kynna nýtt deili- skipulag sem leyfir breytta notkun þess. Margir sækja í útivist á vestur- svæði Seltjarnarness og úti í Gróttu. Fyrirhugað er að Náttúruminjasafn Íslands verði skammt undan auk þess sem nýtt hverfi mun rísa á Bygggarðasvæðinu sem liggur að Ráðagerði. Ekki mun því vanta um- ferð um svæðið. Gísli segir að veit- ingahúsið í Ráðagerði sé spennandi verkefni. „Við ætlum að bjóða upp á mat og drykk með ítölsku ívafi með áherslu á aperitivo-stemninguna sem hefur svo lengi verið í hávegum höfð á Ítalíu. Boðið verður upp á ýmsa smárétti, eldbakaðar pítsur, tartine-samlokur og ýmislegt fleira spennandi. Mark- miðið er að gera notalegan stað sem allir aldurshópar geta notið sín frá klukkan 9-23. Þarna verður huggu- legt útisvæði og gróðurhús verður reist á lóðinni til að hámarka upplifun af þessu einstaka útsýni norðurljósa og sólseturs sem gerast varla fallegri en á Nesinu,“ segir Gísli. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ráðagerði Gestir veitingahússins geta séð sólina setjast við Gróttu. Ítölsk stemning í einstöku umhverfi www.heild.isfyrirspurn@heild.is HEILD fasteignafélag Iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði Vesturvör 32B, 200 Kópavogi Til leigu glæsilegt iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði við Vesturvör í Kópavogi. Húsnæðið er Góð malbikuð bílastæði eru allt í kringum húsið. • 400m2 3.200m2 rými í boði • Góð • Laust fljótlega
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.