Morgunblaðið - 04.03.2021, Page 46

Morgunblaðið - 04.03.2021, Page 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021 Ferðalög á KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS KAUPHLAUP % AF ÖLLUM ECCO SKÓM20 & 4.-8. MARS KRINGLUKAST S K Ó V E R S L U N STEINAR WAAGE Í inngangsorðum höfundar, Ólafs Arnar Haraldssonar segir svo: Laugavegurinn og nærsvæði hans ásamt Fimmvörðuhálsi hafa verið helstu starfssvæði Ferðafélags Ís- lands í hart nær hálfa öld. Félagið hefur viljað greiða götu ferðamanna um svæðið þannig að þeir geti kynnst þessu fjölbreytta og fagra landsvæði og notið gönguferðar og góðs aðbúnaðar. Vinsældir göngu- leiðarinnar hafa vaxið ár frá ári og hefur félagið mætt því með upp- byggingu á aðstöðu og þjónustu. Á þessu svæði á Ferðafélagið sæluhús á átta stöðum, í Land- mannalaugum, við Hrafntinnusker, Álftavatn, Hvanngil, Emstrur, í Langadal og Húsadal í Þórsmörk og á Fimmvörðuhálsi. Félagið hefur unnið að endurbótum á gönguleið- inni bæði á stígum og mannvirkjum, gefið út fræðsluefni og veitt marg- víslegri þjónustu. Enn fremur hefur félagið skipulagt fjölda ferða um svæðið á eigin vegum og greitt götu annarra sem þar vilja starfa. Það var því komið að því að Ferðafélagið gæfi út árbók um svæðið en áður hafa verið skrifaðar árbækur um af- markaða hluta þess og voru þær gefnar út árin 1960, 1972, 1976 og 2010. Með þessari árbók er ætlunin að þeir sem vilja fræðast um svæðið geti fundið slíkt efni í einni bók til viðbótar þeim fróðleik sem finna má í fyrri árbókum. Síðust þeirra bóka var gefin út árið 2010 og fjallaði um Friðlandið að Fjallabaki. Augljóslega er töluverður munur á efnistökum árbókar um óbyggða- svæði og svæði í byggð. Í óbyggð er saga mannvistar ekki mikil og fárra nafngreindra manna er getið. Heim- ildir og sagnir eru fáorðar og örnefni Ferðafélag Íslands gaf út sína fyrstu árbók árið 1928. Árbókin hefur síðan komið út árlega í óslitinni röð og er einstæður bókaflokkur um land og náttúru. Hver bók fjallar venjulega um tiltekið afmarkað svæði á land- inu og nær efni þeirra nú um landið allt, víða í annað eða jafnvel þriðja sinn. Árbækurnar eru því í raun al- tæk Íslandslýsing og gefa í senn ferðafólki góðar ferðaupplýsingar ásamt því að veita innsýn í sögu og þjóðlegan fróðleik. Ferðafélagið hef- ur alla tíð kostað kapps um að gera árbækur sínar sem best úr garði og jafnan fengið heimamenn á hverjum stað og sérfræðinga til liðs við gerð árbókar. Mikinn fróðleik um nátt- úrufar er að finna í bókunum, gróð- ur, fugla og aðra landsins prýði, en ekki síst um jarðfræði og mynd- unarsögu landsins. Saga og menning skipa háan sess í umfjöllun um byggðirnar. Árbók Ferðafélags Íslands 2021 sem fjallar um Laugaveginn er nú farin í prentun og verður tilbúin til dreifingar í apríl. tiltölulega fá í samanburði við þétt setin og gamalgróin héruð. Flest hafa örnefnin orðið til við fjárleitir og að nokkru leyti vegna ferðalaga. Þetta á ekki síst við um stóran hluta árbókarsvæðisins sem hér er fjallað um. Það var því leitað fanga hjá bændum og öðru þrautkunnugu fólki um sagnir og örnefni og fjallkóngar afréttanna leggja til lýsingar á fyr- irkomulagi í fjallferðum og smala- mennsku eins og þeim er nú háttað. Árbók FÍ 2021 um Laugaveginn lýsir gönguleiðinni sjálfri og stóru svæði í nágrenni Laugavegarins. Af- markast það af Markarfljóti að vest- an og Mýrdalsjökli að austan. Með þessu móti getur lesandinn fundið annars vegar tiltölulega einfalda leiðsögn um Laugaveginn og hins vegar ítarlegri fróðleik um ná- grannasvæði. Má segja að bókin eigi að vera ferðabók og landlýsing. Náttúrufar óbyggðanna er fjöl- breytt og stórfenglegt. Áhersla er því lögð á að lýsa því og sérfróðir náttúrufræðingar Náttúru- fræðistofnunar leggja þar til mikinn fróðleik. Páll Guðmundsson palli@fi.is Ljósmynd/Daníel Bergmann Ljósmynd/Daníel Bergmann Laugavegurinn – árbók FÍ 2021 Ferðafélag Íslands gaf út sína fyrstu árbók árið 1928. Árbókin hefur síðan komið út árlega í ólitinni röð og er einstæður bókaflokkur um land og náttúru. Hver bók fjallar venjulega um tiltekið afmarkað svæði á landinu og nær efni þeirra nú um landið allt, víða í annað eða jafnvel þriðja sinn. Árbækurnar eru því í raun altæk Íslandslýsing og gefa í senn ferðafólki góðar ferðaupplýsingar ásamt því að veita innsýn í sögu og þjóðlegan fróðleik. Litafegurð Landmannalaugar. Fjölbreytt Á Laugaveg- inum og að Fjallabaki er mikill fjölbreytileiki í landslagi og náttúru.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.