Morgunblaðið - 04.03.2021, Page 29
Átt þú rétt á
viðspyrnustyrk?
Kynntu þér málið á Skatturinn.is
skatturinn@skatturinn.is 442 1000
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
Viðspyrnustyrkir eru ætlaðir þeim fyrirtækjum,
þar með talið einstaklingum í sjálfstæðum
rekstri, sem orðið hafa fyrir miklu tekjufalli
vegna áhrifa frá heimsfaraldri kórónuveirunnar.
Leitaðu nánari upplýsinga á Skatturinn.is,
í þjónustusíma 442 1000 eða með
tölvupósti til covid@skatturinn.is
Styrkurinn reiknast miðað við tekjur í hverjum almanaksmánuði fyrir sig
á tímabilinu nóvember 2020 til og með maí 2021 í samanburði við tekjur
í sömu mánuðum árið 2019
Ein umsókn er fyrir hvern almanaksmánuð
Tekjufall á milli umsóknarmánaðar og viðmiðunarmánaðar á árinu 2019
þarf að vera a.m.k. 60%
Uppfylla þarf ýmis skilyrði m.a.:
- að vera ekki í vanskilum með skatta og gjöld sem greiða átti
fyrir árslok 2019
- að hafa staðið í skilum með skattframtöl, staðgreiðsluskilagreinar,
virðisaukaskattsskýrslur, ársreikninga o.fl.
Fjárhæð viðspyrnustyrks er byggð á rekstrarkostnaði og stöðugildum
í hverjum umsóknarmánuði með tilteknum skilyrðum og hámörkum
Sótt er um í gegnum þjónustusíðu umsækjanda hjá Skattinum.
Umsóknarfrestur er til 30. júní 2021.