Morgunblaðið - 04.03.2021, Page 30

Morgunblaðið - 04.03.2021, Page 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021 www.gilbert.is N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is AYJA - K129 3ja sæta, 2ja sæta og stóll. Margir litir af áklæði eða leðri. Komið og skoðið úrvalið Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Lífið á hjúkrunarheimilum lands- ins er smám saman að færast í eðlilegra horf. Á sumum heimilum hefur verið aflétt skiptingu heim- ila í sóttvarnahólf en á öðrum tak- markar slík hólfun félagsstarf og önnur samskipti innan heimila. Von er á að leiðbeiningar um rýmkaðar heimildir til heimsókna verði gefnar út eftir um það bil hálfan mánuð, þegar ákveðinn tími er liðinn frá því bólusetningum starfsmanna lýkur. Unnið hefur verið að bólusetn- ingum starfsmanna og lýkur fyrri bólusetningu almennt á morgun. Búist er við að tíu til tólf dögum eftir það verði tilkynnt um frekari tilslakanir á varúðarráðstöfunum vegna sóttvarna. Fyrir nokkru lauk bólusetningum heimilisfólks en enn eru að flytja inn nýir óbólusettir heimilismenn. Lifnar yfir starfinu Gísli Páll Pálsson, forstjóri Grundarheimilanna, segir að fé- lagsstarf og afþreying fyrir heim- ilisfólk hafi verið að aukast en á Grund séu enn sóttvarnahólf og takmarki það slíkt starf nokkuð. Öll hólfun á Hrafnistuheim- ilunum hefur verið afnumin. „Fé- lagsstarfið er allt að hrökkva í gang og lifna yfir á heimilunum. Meðal annars er komið með söng- skemmtanir,“ segir María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistu- heimilanna. Þegar sóttvarnahólf eru afnum- in getur starfsfólkið hætt að nota andlitsgrímur og það liðkar strax fyrir samskiptum við heimilisfólk. Enn eru takmarkanir á heim- sóknum til heimilisfólks hjúkr- unarheimila. Þannig mega koma tveir í heimsókn á dag. Gestir þurfa að bera andlitsgrímur. Til- gangur þessara takmarkana er að draga úr hættu á að smit berist inn á heimilin. Af samtölum við forstjóra hjúkrunarheimila að ráða verður væntanlega slakað á heim- sóknarreglum á næstunni, hægt og rólega, en þó líklega ekki fyrr en tíu til tólf dagar verða liðnir frá því allt starfsfólkið hefur feng- ið fyrri bólusetningu og þá sam- kvæmt leiðbeiningum samstarfs- hóps hjúkrunarheimila og heilbrigðisyfirvalda. „Heimilisfólkið tekur þessu vel og er ánægt með að geta færst nær eðlilegu ástandi. Við höfum lært heilmikið um sóttvarnir sem við munum nýta í framtíðinni. Til dæmis vonumst við til þess að ár- leg inflúensa og nóró-veirusýking verði ekki eins útbreiddar og verið hefur,“ segir María að lokum. Félagsstarfið er að komast í gang  Lífið á hjúkrunarheimilum að færast nær eðlilegu ástandi  Skipting deilda í sóttvarnahólf takmarkar samskipti sums staðar  Vonast eftir rýmkun á reglum um heimsóknir á næstu vikum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hrafnista Skipting heimilanna í sóttvarnahólf hefur verið afnumin. Skólayfirvöld í Kópavogi hafa ákveð- ið að loka einni álmu í Álfhólsskóla vegna myglu sem greinst hefur í þaki byggingarinnar. Byggingin sem um ræðir kallast Hjalli, eða álma 5, og í henni eru meðal annars stofur fyrir list- og verkgreinar auk sér- kennslustofa. Hjalla verður lokað frá og með deginum í dag og vinna stjórnendur Álfhólsskóla nú að því ásamt starfsfólki að endurskipu- leggja kennslu. Að því er fram kem- ur í tilkynningu frá Kópavogsbæ verður nemendum tryggð kennsla og mun niðurstaða endurskipulagn- ingar liggja fyrir á allra næstu dög- um. Í Álfhólsskóla, Hjalla, eru 5. til 10. bekkur Álfhólsskóla, alls um 400 nemendur. Starfsmaður skólans fór að finna fyrir einkennum sem fylgja raka- og mygluskemmdum og við eftir- grennslan kom í ljós raki undir gólf- dúk. Við ítarlegri skoðun á húsnæð- inu greindist myglusveppur í þaki álmunnar. „Verið er að rannsaka hvort mygl- an hefur náð að hafa áhrif á loftgæði í kennslustofum, niðurstaða liggur ekki fyrir, en með öryggi nemenda og starfsfólks að leiðarljósi er álm- unni lokað,“ segir í tilkynningu frá Kópavogsbæ. „Ekki er talið að um sambærilegar aðstæður sé að ræða í öðrum álmum byggingarinnar þar sem þakupp- bygging er ólík. Þak álmu 5 hefur þá sérstöðu að þar er upphitað rými á 2. hæð og einangrað milli sperra. Í álmu 1-4 er loftrýmið kalt og ein- angrað beint ofan á steyptar lofta- plötur. Engu að síður verða tekin sýni í öðrum hlutum hússins og send til frekari greiningar,“ segir þar enn fremur. Skólastjórnendur munu halda fund með öllum nemendum skólans í dag og útskýra stöðu mála. Samkvæmt upplýsingum frá Kópavogsbæ er unnið að undirbún- ingi útboðs fyrir endurbætur en stefnt er að því að framkvæmdum ljúki fyrir skólasetningu í haust. Mygla greindist í skóla í Kópavogi  Heilli álmu í Álfhólsskóla var lokað Álfhólsskóli Mygla hefur greinst í Hjalla og hefur álmunni verið lokað.Þórshöfn | Höfnin er lífæð sjávarþorpa og þarfnast stöðugs viðhalds og endurbóta. Dýpkunarfram- kvæmdir hafa staðið yfir um skeið og lýkur væntanlega upp úr miðjum mars, að sögn hafnarvarðar. Pramminn Pétur mikli er nú við dýpkun á athafnasvæði uppsjáv- arskipa en einnig var hreinsað og dýpkað í smábáta- höfninni. Við flotbryggjuna voru kafarar að störfum, þeir Erlendur Guðmundsson og Brynjar Lyngmo, og skiptu um festingar bryggjunnar eftir dýpkun, nýjar keðjur og steina. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Kafað við flotbryggjuna á Þórshöfn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.