Morgunblaðið - 04.03.2021, Side 58

Morgunblaðið - 04.03.2021, Side 58
58 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021 Byggingarfulltrúi Húnaþing vestra er staðsett miðja vegu milli Akureyrar og Reykjavíkur. Hvammstangi er stærsti þéttbýliskjarni sveitarfélagsins með um 600 íbúa en heildarfjöldi íbúa er um 1.220. Húnaþing vestra er fjölskylduvænt samfélag með hátt þjónustustig, metnaðarfullt leik-, grunn- og tónlistarskólastarf ásamt því að rekin er dreifnámsdeild frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á staðnum. Gott framboð er af íþrótta- og tómstunda- starfi. Sveitarfélagið er útivistarparadís, með góða sundlaug, íþróttahús og fjölbreytt félagsstarf. Blómlegt menningarlíf er til staðar. Hjá sveitarfélaginu starfa um 120 manns. Nánari upplýsingar má finna á: www.hunathing.is Menntunar- og hæfniskröfur: Húnaþing vestra auglýsir starf byggingarfulltrúa laust til umsóknar. Um er að ræða 100% starf með starfsstöð á Hvammstanga. Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri (rjona@hunathing.is) í síma 455 2400. • Framkvæmd skipulags- og byggingarmála • Áætlanagerð og eftirfylgni, mælingar og úttektir • Undirbúningur og eftirfylgni funda skipulags- og umhverfisráðs • Ábyrgð á skráningu mannvirkja, úttektum, staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga, gjaldtöku, skráningu, varðveislu og miðlun upplýsinga um mannvirki til íbúa • Samstarf við aðila utan og innan stjórnsýslunnar sem sinna verkefnum á sviði byggingarmála • Önnur verkefni sem viðkomandi er falið hverju sinni og undir embættið heyra Helstu verkefni og ábyrgð: Starf byggingarfulltrúa er lögbundið, sbr. 8. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Hlutverk hans er að veita embættinu faglega forystu og móta framtíðarstefnu innan ramma laga og reglugerða. Jafnframt að hafa eftirlit og eftirfylgni með að lögum um mannvirki nr. 160/2010, reglugerðum og öðrum lögum byggingarmála sé framfylgt. • Löggilding sem hönnuður skv. 25. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010 • Þekking og reynsla á sviði byggingarmála • Þekking og reynsla af úttektum og mælingum • Þekking á lögum um mannvirki, skipulagslögum og byggingarreglugerð • Þekking á opinberri stjórnsýslu er æskileg • Hæfni í mannlegum samskiptum, góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti • Góð almenn tölvukunnátta Umsóknarfrestur er til og með 10. mars 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda í starfið. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Samkvæmt jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um starfið. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Launanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Lausar eru til umsóknar tvær kennara- stöður við Laugalandsskóla í Holtum, Rangárþingi ytra skólaárið 2021-2022 Um er að ræða umsjónarkennslu á yngsta stigi og íslensku kennslu á mið og elsta stigi. Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem getur unnið með okkur að einkunnarorðum skólans; “samvinna, traust og vellíðan í leik og star“. Kennsluréttindi og hæfni í mannlegum samskiptum eru nauðsynleg. Laugalandsskóli er í um 90 km fjarlægð frá Reykjavík. Leikskóli er rekinn á Laugalandi og öll venjuleg þjónusta er á Hellu. Húsnæði í boði á staðnum eða í nágrenni. Umsóknarfrestur er til 12 mars. Veffang: http://www.laugaland.is Netfang: laugholt@laugaland.is Upplýsingar veitir skólastjóri í vs. 487 6540, gsm. 896 4841 og aðstoðarskólastjóri vs. 487 6544 LAUGALANDSSKÓLI Í HOLTUM Hæstiréttur Íslands Embætti skrifstofustjóra laust til umsókanar Við Hæstarétt er laust til umsóknar embætti skrifstofustjóra réttarins. Embættið verður veitt frá 1. ágúst n.k. en gert er ráð fyrir að viðkomandi geti hafið störf fyrr eftir nánara samkomulagi. Skrifstofustjóri stýrir daglegum rekstri í umboði forseta Hæstaréttar og ber ábyrgð á að stefnumarkandi ákvörðunum sé hrint í framkvæmd. Viðkomandi mun vinna að innleiðingu á rafrænni málsmeðferð auk annarra breytinga er lúta að tæknimálum og stafrænni þróun sem framundan eru. Leitað er eftir kraftmiklum og drífandi einstaklingi með áhuga á starfsemi dómstólsins, innleiðingu nýjunga og vilja og getu til að ná árangri í starfi með samvinnu og liðsheild að leiðarljósi. Menntunar- og hæfniskröfur: • Menntunar- og hæfniskröfur: • Embættispróf í lögfræði eða grunnnám ásamt meistaraprófi í lögum. • Þekking á rekstri og starfsemi dómstóla. • Þekking á sviði réttarfars og stjórnsýslu. • Góð tölvu- og tækniþekking. • Þekking eða reynsla af verkefnastjórnun er kostur. • Góð leiðtoga- og samskiptafærni. • Jákvæð og lausnamiðuð viðhorf, þjónustulund og metnaður til að ná árangri í starfi. • Skipulagshæfni, fagleg og sjálfstæð vinnubrögð. • Færni í að miðla upplýsingum í máli og myndum. • Þekking á skjalavörslu er kostur. • Góð færni í íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli. Forseti Hæstaréttar skipar í embættið til fimm ára. Laun og starfskjör skrifstofustjóra fara eftir ákvörðun stjórnar dómstólasýslunnar. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir kröfur sem gerðar eru. Umsóknir skulu berast á netfangið haestirettur@haestirettur.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið liggur fyrir. Nánari upplýsingar veitir Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, en netfang hans er benedikt@haestirettur.is Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2021    

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.