Morgunblaðið - 04.03.2021, Blaðsíða 65
ÍÞRÓTTIR 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021
Þær ákvarðanir sem teknar
voru á 75. ársþingi KSÍ um síð-
ustu helgi um lengingu tímabils-
ins í efstu deild karla voru ekki
teknar með hag knattspyrnunnar
að leiðarljósi.
Af þeim fjórum tillögum sem
voru upphaflega lagðar fyrir
þingið fannst mér tillaga Fylk-
ismanna mest heillandi, það er
að segja spila þrefalda umferð
með tíu liða deild. Þá fannst mér
tillaga stjórnar KSÍ um áfram-
haldandi tólf liða deild, hefð-
bundna tvöfalda umferð, og auka
umferðir fyrir efstu sex liðin og
neðstu sex liðin heillandi líka.
Fylkismenn ákváðu hins veg-
ar að draga tillögu sína til baka
sem og Skagamenn sem höfðu
lagt til tólf liða deild með þre-
faldri umferð. Eftir stóð því til-
laga KSÍ og tillaga fyrstudeild-
arliðs Fram um að fjölga liðum í
efstu deild úr tólf í fjórtán.
Tilfinningarnar virðast hafa
borið menn ofurliði á þinginu því
menn settu eigin hagsmuni, og
eigið rassgat, framar hags-
munum íslenskrar knattspyrnu.
Þetta setur líka strik í reikning-
inn varðandi innkomu félaganna
enda taka nýir sjónvarpssamn-
ingar gildi tímabilið 2022 og
hefði verið hægt að kreista út
meira fjármagn með fleiri leikj-
um og nýju, spennandi fyrir-
komulagi.
Íslensk félagslið eru komin
í ruslflokk hjá UEFA eftir dapurt
gengi í Evrópukeppnum undan-
farin ár. Við eigum ekki að bera
okkur saman við önnur lönd þeg-
ar ákvarðanir eru teknar um
efstu deild en fjölgun liða úr tíu í
tólf hefur ekkert gert fyrir ís-
lenskan fótbolta. Af hverju ætti
fjölgun liða úr tólf í fjórtán að
gera það? Félög í efstu deild eiga
að taka ákvörðun um framtíð
deildarinnar, ekki félög í 1. deild-
inni, og það hlýtur að vera kom-
inn tími á ný hagsmunasamtök,
eða þá algjöra uppstokkun í
þeim gömlu.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Meistaradeild karla
B-RIÐILL:
Barcelona – Motor Zaporozhye......... 42:34
Aron Pálmarsson skoraði fjögur mörk
fyrir Barcelona sem vann alla 14 leiki sína í
riðlakeppninni.
Svíþjóð
Skövde – Guif ....................................... 27:27
Bjarni Ófeigur Valdimarsson var ekki í
leikmannahóp Skövde.
Daníel Freyr Ágústsson varði þrettán
skot í marki Guif.
Danmörk
Vendsyssel – Odense........................... 25:33
Steinunn Hansdóttir skoraði tvö mörk
fyrir Vendsyssel. Elín Jóna Þorsteinsdóttir
varði níu skot í marki liðsins.
Þýskaland
B-deild:
Hamburg – Gummersbach................. 29:22
Elliði Snær Viðarsson skoraði fjögur
mörk fyrir Gummersbach. Guðjón Valur
Sigurðsson þjálfar liðið.
Efstu lið: Hamburg 35, Gummersbach
29, N-Lübbecke 27, Lübeck-Schwartau 24,
Dormagen 23, Elbflorenz 22, Aue 20.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Hertz-hellir: ÍR – Tindastóll ............... 18.15
HS Orkuhöllin: Grindavík – Höttur.... 19.15
Blue-höllin: Keflavík – Þór Ak ............ 19.15
Njarðtaksgryfjan: Njarðvík – KR ...... 20.15
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Varmá: Afturelding – Fram ................ 19.30
Í KVÖLD!
Fari svo að ein kona tryggi sér sæti á
leikunum með formlegum hætti má
sambandið svo tilnefna stigahæsta
karlinn í einni grein að auki, og öfugt.
Voru ekki látin vita af
rafíþróttamótinu
Undirbúningur Guðbjargar gæti
þó orðið vandkvæðum bundinn. Hún
og annað frjálsíþróttafólk sér fram á
að missa æfingaaðstöðu sína í frjáls-
íþróttahöllinni í Laugardal um sex
vikna skeið eftir að tilkynnt var að
stærðarinnar rafíþróttamót verði
haldið í Laugardalshöll í maí.
„Það er svo leiðinlegt að það er í
reglunum hjá ÍBR og forsvars-
mönnum frjálsíþróttahallarinnar að
það verði að tala við okkur í félögun-
um ef það á að halda einhverja við-
burði í höllinni. Það var ekki gert. Við
fréttum þetta bara í fjölmiðlum á
mánudaginn,“ sagði Guðbjörg ósátt.
En hvernig sér hún fram á að und-
irbúa sig fyrir mót þegar frjáls-
íþróttahöllin verður ekki laus í sex
vikur?
„Ég þarf aðeins að tala við þjálf-
arann minn eftir að við fáum upplýs-
ingar frá Frjálsíþróttasambandinu
um hvað verður gert í staðinn fyrir
okkur. Þetta væri í rauninni ekkert
mál ef við gætum æft utanhúss en
það er bara engin aðstaða fyrir okkur
úti.
Það eru mörg félög sem missa að-
stöðuna á meðan mótið stendur yfir,
þetta eru ekki bara við hjá ÍR. Laug-
ardalsvellinum var klúðrað mjög mik-
ið, það er bara tartan á helmingi af
brautinni. Síðan er ÍR-völlurinn ekki
tilbúinn eftir endalaust ég veit ekki
hvað. Hann átti að vera tilbúinn árið
2017. Það er engin æfingaaðstaða fyr-
ir okkur úti þannig að við vorum að
treysta á að geta æft í höllinni þangað
til við gætum farið út að keppa en
núna veit maður ekki hvað maður á
að gera,“ sagði Guðbjörg.
Óljóst hvar verður hægt að æfa
Þessa dagana æfir hún ásamt koll-
egum sínum í frjálsíþróttahöllinni og
og munu þau gera það þar til höllinni
verður lokað, en þá þurfa þau að fara
eitthvað annað. „Ég held að þau séu
ekkert að fara að breyta þessu raf-
íþróttamóti. Ég held að þau muni
reyna að senda okkur eitthvað annað,
kannski í Kaplakrika, til að æfa þar.
Það væri mjög gott að geta farið
inn að æfa í Kaplakrika en það kostar
mikinn pening fyrir okkur því við
þyrftum að borga aðstöðugjald. Við
myndum þá væntanlega þurfa að æfa
seint á kvöldin. Við höfum nokkrum
sinnum þurft að æfa fram að lokun í
höllinni af því að það er alltaf verið að
loka henni. Þá höfum við verið að æfa
frekar seint, sem hefur áhrif á svefn-
inn og við getum ekki borðað kvöld-
mat fyrir þær æfingar, þannig að
þetta hefur mikil áhrif,“ sagði Guð-
björg að lokum í samtali við Morg-
unblaðið.
Stefnir ótrauð á sína
fyrstu Ólympíuleika
Eygir sæti í 200 metra hlaupi Reynir við stigaleiðina Minnst einn úr
frjálsum á ÓL Frétti af rafíþróttamóti í fjölmiðlum Undirbúningur í óvissu
Morgunblaðið/Eggert
Fljótust Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir er handhafi þriggja Íslandsmeta í spretthlaupum, utanhúss og innanhúss.
Japanska ríkisstjórnin er með fyr-
irætlanir um að engir erlendir
áhorfendur fái að mæta á Ólympíu-
leikana í Tókýó í sumar, af ótta við
að það myndi stuðla að frekari út-
breiðslu kórónuveirunnar í landinu.
Endanleg ákvörðun í þessum efn-
um verður tekin síðar í þessum
mánuði eftir viðræður við Al-
þjóðaólympíunefndina og fleiri að-
ila tengda leikunum samkvæmt
heimildum í Japan. Leikarnir eiga
að hefjast 23. júlí og lýkur 8. ágúst.
Þeir áttu að fara fram síðasta sum-
ar en var frestað vegna veirunnar.
Engir erlendir
áhorfendur?
AFP
Tókýó Kórónuveiran hefur gert
mótshöldurum erfitt fyrir í Japan.
Teitur Örn Einarsson, handknatt-
leiksmaður hjá Kristianstad í Sví-
þjóð, er orðaður við þýska félagið
Melsungen, sem Guðmundur Þ.
Guðmundsson landsliðsþjálfari
stýrir, í þýska netmiðlinum HNA.
Þar er sagt að Teitur sé einn þeirra
leikmanna sem félagið sé að horfa
til að fá fyrir næsta tímabil. Teitur,
sem er 22 ára gamall Selfyssingur,
hefur verið lykilmaður sem örvhent
skytta hjá Kristianstad undanfarin
ár en lítil tækifæri fengið með ís-
lenska landsliðinu undir stjórn Guð-
mundar enn sem komið er.
Teitur til liðs
við Guðmund?
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skytta Teitur Örn Einarsson hefur
gert það gott með Kristianstad.
Hún er nítján ára gömul, fædd
24. desember 2001, og keppir fyr-
ir ÍR.
Hún setti Íslandsmet í 100 m
hlaupi kvenna 29. júní 2019 þegar
hún hljóp á 11,56 sekúndum í
Þýskalandi og sló 15 ára gamalt
met Sunnu Gestsdóttur.
Ólympíulágmarkið í 100 m
hlaupi kvenna er 11,15 sekúndur.
Hún setti Íslandsmet í 200 m
hlaupi kvenna 16. júní 2019 þegar
hún hljóp á 23,45 sekúndum á Sel-
fossi og sló 22 ára gamalt met
Guðrúnar Arnardóttur.
Ólympíulágmarkið í 200 m
hlaupi kvenna er 22,80 sekúndur.
Hún setti Íslandsmet í 60 m
hlaupi innanhúss um síðustu helgi
þegar hún hljóp á 7,46 sekúndum
og bætti met sem hún og Tiana
Ósk Whitworth áttu um 0,01 sek.
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir
FRJÁLSAR
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Hin 19 ára gamla Guðbjörg Jóna
Bjarnadóttir, spretthlaupari í ÍR,
stefnir ótrauð á að komast á sína
fyrstu Ólympíuleika í sumar og keppa
þar í 200 metra hlaupi. Guðbjörg er
Íslandsmetshafi í 60 metra hlaupi
innanhúss og í 100 og 200 metra
hlaupi utanhúss, og hefur stöðugt
verið að bæta sig undanfarin ár.
Lágmörk eru hins vegar afar
ströng til þess að komast á Ólympíu-
leikana í Tókýó í Japan og telur hún
það því henta sér best að safna stig-
um á svokölluðum stigamótum til
þess að komast inn á leikana. Þann
29. júní næstkomandi verður Guð-
björg annaðhvort að vera búin að ná
tilteknum lágmarkstíma eða búin að
safna nægilega mörgum stigum á
heimslistanum til þess að tryggja sér
keppnisrétt á leikunum. Hún er sem
stendur í 90. sæti heimslistans í 200
metra hlaupi.
„Ég þarf að keppa á stigamótum
því ég er að reyna að ná lágmörkum
til þess að komast upp stigalista. Þá
þarf ég að vera í topp 56. Ég átti að
fara á EM innanhúss, ég var búin að
vinna mér inn keppnisrétt þar, en ég
sleppti því til þess að geta keppt á
Meistaramótinu innanhúss í 200
metra hlaupi um síðustu helgi til þess
að safna stigum fyrir Ólympíu-
leikana,“ sagði Guðbjörg í samtali við
Morgunblaðið. Þar vísaði hún til
Meistaramóts 15-22 ára þar sem hún
sló Íslandsmet fullorðinna í 60 metra
hlaupi og hljóp á 7,46 sekúndum.
Best að fara þessa leið núna
„Ég keppi núna í lok maí eða byrj-
un júní, þá er annað stigamót innan-
húss. En þess á milli þarf ég að finna
tvö meistaramót utanhúss, þau gilda
líka til stigasöfnunar. Það væru tvö
stigamót sem gætu gefið góð stig.
Það væri auðvitað bónus að ná
þessu lágmarki, en lágmörkin eru
bara það góð að ég er meira að ein-
beita mér að stigunum. Ég held að
það sé best fyrir mig núna að fara
þessa stigaleið en síðan eftir þrjú ár
einbeitir maður sér meira að lág-
mörkum,“ bætti hún við, og vísaði þar
til Ólympíuleikanna árið 2024.
Ef svo færi að Guðbjörg næði
hvorki lágmarkstíma né nægilega
mörgum stigum ætti hún að vísu einn
möguleika til viðbótar. Í tilfelli þjóða
sem ná engum keppanda inn á Ól-
ympíuleikana í Tókýó með annarri af
þessum formlegu leiðum mega Ól-
ympíunefndir þeirra þjóða tilnefna
annaðhvort stigahæsta karlinn eða
stigahæstu konuna á heimslistum, í
einni grein, til keppni á leikunum.