Morgunblaðið - 04.03.2021, Blaðsíða 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Tónleikunum sem Víkingur Heiðar
Ólafsson ætlaði upphaflega að koma
fram á í Hörpu í júní í fyrra, og áttu í
senn að vera opnunartónleikar
Listahátíðar í Reykjavík og útgáfu-
tónleikar nýjustu plötu hans, var
frestað vegna veirufaraldursins.
Eins og allir þeir sem höfðu tryggt
sér miða vita mæta vel. Þeir voru
settir á nýjan tíma um haustið, en
var aftur frestað þegar veiran náði
sér aftur á strik. En nú er loksins
komið að tónleikunum og mun Vík-
ingur Heiðar alls koma fram á sjö
tónleikum, þeim fyrstu í Eldborgar-
salnum annað kvöld, föstudagskvöld,
og aukatónleikum var verið að bæta
við á laugardag. Hann leikur full-
burða efnisskrá með hléi; fyrst lunga
verkanna á plötunni Rameau
Debussy og eftir hlé Myndir á sýn-
ingu eftir Mussorgskíj.
Fyrstu fernu tónleikanir verða í
Hörpu, á föstudag, laugardag,
sunnudag og á þriðjudag. Þá leikur
Víkingur í Ísafjarðarkirkju á
fimmtudag í næstu viku, í samstarfi
við Tónlistarfélag Ísafjarðar, og á
laugardag og sunnudag eftir rúma
viku heldur hann tvenna tónleika í
Hofi á Akureyri.
„Þetta verður álag“
Vegna sóttvarnatakmarkana, þar
sem alls 800 gestir geta verið í
Hörpu í fjórum sóttvarnahólfum,
hefur þurft að dreifa gestum yfir
fleiri tónleika en áætlað var í Hörpu,
en starfsfólk í miðasölu hússins vinn-
ur nú hörðum höndum að nauðsyn-
legri endurskipulagningu. Þegar er
uppselt á suma tónleikana en nokkr-
ir miðar lausir á laugardag og þriðju-
dag.
„Þetta verður álag – fyrst fjögur
kvöld í Hörpu! Ég hef aldrei gert
neitt svona áður,“ segir Víkingur
Heiðar glaðbeittur og það er ekki
annað að heyra en hann hlakki til að
takast á við þá áskorun.
„Fyrst það fá núna bara að vera
800 gestir í salnum í stað 1.600 þá
verð ég að spila þetta oft á fáum dög-
um. Vegna eftirspurnar vorum við að
bæta við tónleikum.
Þetta er vissulega mikið álag. Ég
er ekki að fara að spila neina stutta
Covid-efnisskrá. Það verður hlé og
fyrst við verðum komin þarna saman
og getum gert þetta þá ætla ég að
gefa ALLT í þetta. Ég ætla að spila
grand prógramm!“ segir hann
ákveðinn.
„Fyrri hálfleikur verður stytt út-
gáfa af plötunni Rameau Debussy.
Eftir hlé er svo Myndir á sýningu og
það er ástæða fyrir því. Debussy
dýrkaði tónlist Mussorgskíjs og lét
senda sér allar nótur eftir hann sem
komu út í Rússlandi. Þessir menn
mála báðir myndir í tónum og segja
oft mjög skýrar sögur í gegnum
abstrakt tónmálið.“
Víkingur hnykkir síðan á því hvað
honum þykir vænt um að geta bæði
sótt tónleika og leikið opinberlega.
„Þegar ég sat á Sinfóníutónleik-
unum í Hörpu í síðustu viku, í alvöru-
sal, með fólki, þá fann ég svo vel fyrir
þeirri fallegu mannlegu tilfinningu
að vera að upplifa viðburðinn saman,
mér finnst bara ekkert koma í stað
þess. Og það gefur manni trú á
listina og lífið að finna það, rétt eins
og ég fann fyrir sorginni eftir síðustu
tónleikana sem ég lék á í Berlín í
haust, í Konzerthaus með Camerata
Salzburg, þegar búið var að tilkynna
að öllu yrði lokað daginn eftir og
samkomur bannaðar. Fólk fór ekk-
ert úr salnum heldur klappaði enda-
laust. Það vildi ekki yfirgefa þá upp-
lifun að vera saman á tónleikum.
Kvöldið var gott en það var líka viss
heimsendablær yfir þessu og við
fundum svo sterkt hvað fólki þykir
vænt um þessar upplifanir – ég finn
vel hvað samkomur sem þessar eru
stór hluti af mínu lífi, rétt eins og svo
ótal margra annarra.“
Þrátt fyrir samkomutakmarkanir
úti um heimsbyggðina hefur Vík-
ingur Heiðar náð að ferðast nokkuð
til tónleikahalds, meðal annars til
Japans og Noregs og hefur hlotið
mikið lof fyrir frammistöðuna. En
ferðalögin á tímum veirunnar hafa
líka þýtt að hann hefur alls eytt 61
degi í sóttkví.
Loksins út á land að spila
Hina fernu tónleika í Hörpu má
kalla fyrri hluta þessa tónleikagjörn-
ings Víkings þar sem þrennir til bæt-
ast við svo minnir á úthaldsgjörning
eftir Ragnar Kjartansson.
„Þetta eru já sjö langir einleiks-
tónleikar á 11 dögum. Ég er að reyna
á þolmörkin hjá mér,“ segir Víkingur
Heiðar um þann samanburð. „En
mig hefur lengi langað til að fara hér
út á land að spila. Tónleikahald mitt
er allt svo skipulagt, tvö til fjögur ár
fram í tímann, og prógrammið er
yfirleitt það þétt og það mikil pressa
á mér erlendis að ég á varla stakan
dag á Íslandi þar sem ég get skellt í
tónleika. En nú er óskastaða hvað
það varðar og mér þykir mjög gam-
an að geta loksins farið til Ísafjarðar
og leikið í Hofi á Akureyri. Ég teng-
ist báðum þessum stöðum á
skemmtilegan hátt. Ég lék við vígslu
Hofs árið 2010 og svo spilaði ég mína
fyrstu einleikstónleika á Ísafirði, áð-
ur en ég spilaði í Reykjavík, þegar ég
var 16 ára. Ég spilaði verk sem ég
var svo að fara að spila á lokaprófi
við Tónlistarskólann í Reykjavík.
Þessir tónleikar fyrir vestan voru
mikilvægt móment fyrir mig, ég var
bara stráklingur en það var fullt hús
og ég fékk mjög hlýjar móttökur. En
nú eru rúm 10 ár frá tónleikunum í
Hofi og 20 ár frá tónleikunum á Ísa-
firði. Og nú er ég farinn að rifja tón-
leikana upp í áratugum, sem er svo-
lítið skrýtið,“ segir hann og brosir.
„Fyrst búið er að leyfa tónleika
aftur þá geri ég þetta svona, sjö á
ellefu dögum – svo hvíli ég mig í vik-
unni á eftir.“
Ný systurplata kemur út
Víkingur Heiðar segir að lokum
að þótt platan Rameau Debussy sé
löngu komin út verði tónleikarnir nú
samt sem áður útgáfutónleikar.
„Það hittist nefnilega svo á að
Deutsche Grammophon er að fara
að gefa út eins konar systurplötu
hennar sem heitir Reflections. Hún
kemur út 12. mars en ég hef fengið
eintök send og leyfi til að byrja að
selja í Hörpu. Þetta er mjög
skemmtilegt efni. Sumt er nýtt með
mér, til dæmis lítið tónverk sem ég
gerði út frá einni prelúdíunni eftir
Debussy. Það er mitt fyrsta tónverk,
ef svo má segja með hátíðlegum
hætti. En svo eru líka upptökur með
íslenska bandinu Hugar, sem ég
held mikið upp á, og Helga Jónssyni,
sem vinnur meistaralega með prelú-
díu Debussys, „Fótspor í snjónum“;
þá eru upptökur með erlendum raf-
tónlistarsnillingum sem hafa tekið
mínar upptökur og endurhugsað
þær.“
Þegar spurt er hvort þessi nýja
plata sé einhvers konar tilbrigði við
efnið á Rameau Debussy segir Vík-
ingur svo vera að hluta en á henni sé
líka til dæmis glæsilegt verk eftir
Debussy sem upphaflega átti að
vera á fyrri plötunni. „Debussy
samdi það í barokkformi en með im-
pressjóníska tónmálinu sínu. Meðal
þess sem ég var einmitt að gera á
plötunni var að sýna hvað Debussy
var mikill barokkmaður og Rameau
mikill fútúristi.“
„Er að reyna á þolmörkin hjá mér“
Víkingur Heiðar leikur á sjö tónleikum á ellefu dögum, í Hörpu, Ísafjarðarkirkju og í Hofi „Ég
ætla að spila grand prógramm!“ lofar hann Vegna eftirspurnar var bætt við aukatónleikum
Morgunblaðið/Eggert
Einleikari „Þetta verður álag … Ég hef aldrei gert neitt svona áður,“ segir
Víkingur Heiðar um tónleikaröðina fram undan. Hann leikur á sjö tónleikum.
Sýningarstjórinn Birta Guðjóns-
dóttir verður í kvöld, fimmtudags-
kvöld, kl. 20 með leiðsögn um sýn-
ingu Huldu Rósar Guðnadóttur
WERK – Labor Move í Hafnarhúsi.
Á þessari einkasýningu sinni í A-
sal safnsins beinir Hulda Rós
Guðnadóttir sjónum að samfélags-
legum viðfangsefnum í staðbund-
inni innsetningu sem er unnin sér-
staklega fyrir salinn en Hafnar-
húsið var upphaflega byggt sem
vörugeymsluhús á hafnarbakk-
anum og vinnur listakonan meðal
annars út frá þeirri sögulegu stað-
reynd. Sýnt er meðal annars vídeó-
verk um íslenska löndunarmenn
sem unnu að löndun í gjörningi
Huldu Rósar í Þýskalandi. Þá eru
kassar fyrir frystan fisk stór hluti
innsetningarinnar.
Aðgöngumiði á safnið gildir á
leiðsögnina en vegna samkomu-
takmarkana er nauðsynlegt að skrá
sig á vef Listasafns Reykjavíkur.
Leiðsögn um sýningu Huldu Rósar
Morgunblaðið/Einar Falur
Listakonan Hulda Rós á sýningu sinni.
„Ég upplifi engin eymsli í dag g
njóta þess að styðja við heilsu mína með hreyfingu,
þökk sé Nutrilenk.“
Kristófer Valdimarsson.
Öflugur
liðstyrkur!
Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
o
2-3ja
mánaða
skammtur í
hverju glasi
Sífellt bætist í hóp þeirra
Íslendinga sem hafa náð
frábærum árangri með
NUTRILENK
Að lokinni sýningu á heimildar-
kvikmyndinni A Song Called Hate,
sem fjallar um hljómsveitina Hat-
ara, í Háskólabíói í kvöld, fimmtu-
dagskvöld, verður boðið upp á um-
ræður. Sýningin hefst kl. 19.30 og
umræður strax að sýningu lokinni,
um kl. 21.
Fríða Björk Ingvarsdóttir rektor
Listaháskóla Íslands stýrir umræð-
unum en hollnemar Listaháskólans,
þeir Matthías Tryggvi Haraldsson
og Klemens Hannigan, sem eru for-
sprakkar Hatara, sitja fyrir svörum
ásamt leikstjóranum Önnu Hildi
Hildibrandsdóttur.
Kvikmyndin fjallar um þátttöku
Hatara í Eurovision í Ísrael árið
2019. Fylgst er með ferðalagi Hat-
ara-hópsins frá upphafi til enda,
hvernig honum tókst að brjótast í
gegn með boðskap sinn og hvernig
ferðalagið breytti listamönnunum.
Umræður eftir sýningu á Hataramynd
Hatari Úr myndinni A Song Called Hate.