Morgunblaðið - 04.03.2021, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 04.03.2021, Blaðsíða 72
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Nýtt lag eftir Bubba Morthens, „Ástrós“, kemur út í dag en í því fjallar Bubbi um heimilisofbeldi. Tvær vinsælustu tónlistarkonur landsins, þær Bríet og GDRN, syngja með Bubba í laginu. „Ég fékk Bríeti til að syngja með mér ákveðinn kafla í laginu og GDRN sem raddar,“ segir Bubbi frá en lag- ið kemur út á Spotify til að byrja með. Bubbi er spurður að því hvort hann hafi hlustað mikið á þær Bríeti og GDRN og segist hann hafa gert það. „Sólóplatan hennar Guðrúnar er algjörlega geggjuð, mikil vigt í henni, bæði í rödd, textum og spila- mennsku og Bríet er að koma mjög sterk inn sem lagasmiður,“ segir Bubbi. Bríet hafi gríðarlega dýpt og þroska langt umfram aldur. Hitti Guðrúnu á Laugavegi „Ég vissi að hún ætti til þessa dýpt sem ég taldi að gæti verið flott að hafa í þessu lagi. Þetta lag fjallar um heimilisofbeldi sem endar með hörmungum og einhvern veginn æxlaðist þetta til. Ég hitti Guðrúnu bara á Laugaveginum, ég var að fara í stúdíó og búinn að biðja Bríeti að koma og athuga hvort hún gæti sungið þetta erindi og svo sá ég Guð- rúnu og spurði hvort hún vildi ekki koma með og hún gerði það, labbaði með mér og raddaði,“ segir Bubbi. Guðrún hafi bara brosað og sagt já við þessari óvæntu beiðni hans. „Þetta er lag sem ég syng framan af og er frásögn um konu og að- stæður sem hún er komin í og svo tekur konan yfir í lokin, þessi kven- mannsrödd og klárar í rauninni sög- una,“ segir Bubbi um lagið en Bríet syngur lokaerindið og GDRN radd- ar. Öll þrjú syngja þau svo viðlagið, að sögn Bubba. Fólk verður að stíga fram Bubbi segir afskaplega mikilvægt að vekja athygli á því á að heimilis- ofbeldi hafi aukist gríðarlega hér á landi undanfarinn áratug. „Það er ekki að ástæðulausu að verið er að setja lög um nálgungarbann sem er auðvitað stórkostlegt framtak hjá hinum unga dómsmálaráðherra að koma í gegn. Núna í kóvídinu hefur ofbeldi gagnvart konum og börnum aukist alltof mikið,“ segir Bubbi. „Við þurfum að vera vakandi og meðvituð um að þetta er staðreynd og ekki bara eitthvað sem gerist í margra kílómetra fjarlægð frá okk- ur sjálfum,“ segir Bubbi um heim- ilisofbeldi og ítrekar að fólk verði að stíga fram verði það vart við slíkt of- beldi. Fólk megi ekki þegja yfir því og verði að vera meðvitað um vand- ann. „Og auðvitað gefur það líka lag- inu vigt að þær leggi því til raddir sínar,“ bætir Bubbi við um þær GDRN og Bríeti. Lagið er það þriðja sem gefið hefur verið út af væntanlegri breið- skífu Bubba sem kemur út 6. júní, á afmælisdegi hans. „Þurfum að vera vakandi“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Áminning Bubbi fjallar um heimilisofbeldi í nýjasta lagi sínu og minnir á að ekki megi sofa á verðinum gagnvart því. Slíkt ofbeldi hefur aukist í Covid. Morgunblaðið/Eggert GDRN Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir á bingókvöldi K100. Morgunblaðið/Eggert Bríet Tónlistarkonan vinsæla kom líka við í stúdíói K100 á dögunum.  Bubbi gefur í dag út lag um heimilisofbeldi  Bríet og GDRN syngja í laginu og er Bubbi mikill aðdáandi þeirra 72 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021 Hljómsveit Unnar Birnu og Björns Thoroddsen heldur tón- leika 4. og 5. mars og býður upp á fjölbreytta og skemmtilega efnis- skrá. Fyrri tónleikarnir fara fram í Gamla bíói kl. 20.30 og þeir seinni á Hótel Selfossi og líka kl. 20.30. Takmarkað magn miða er í boði en miðasala fer fram á Tix.is-miðasöluvefnum. Björn leikur á gítar, Unnur á fiðlu og syngur, Skúli Gíslason leikur á trommur og Sigurgeir Skafti Flosason leikur á bassa. Tónleikar í Gamla bíói og á Selfossi Kvartett Skúli, Unnur, Björn og Sigurgeir halda tvenna tónleika, í kvöld og annað kvöld. Áhorf á afhendingu bandarísku Golden Globe-verðlaunanna var um 60% minna í ár en í fyrra, að því er fram kemur í frétt á vef dagblaðsins The Guardian. Hefur áhorfið ekki verið jafnlítið frá árinu 1996 en þá hóf sjónvarps- stöðin NBC útsendingar frá verð- launahátíðinni. Vefurinn IndieWire greinir einnig frá þessu og að mögulega hafi áhorfið aldrei verið jafnlítið í sögu verðlaunanna en endanlegar tölur liggja þó ekki fyrir. Fyrirtækið Nielsen mælir áhorfið og segir um 5,4 milljónir manna hafa horft í ár en um 14,8 í fyrra. Er þar átt við fólk á aldrinum 18-49 ára. Verðlauna- hátíðin fór að hluta til fram á netinu vegna Co- vid-19 og voru kynnar hennar, Tina Fey og Amy Poehler, hvor á sínum staðnum. Hrun í áhorfi á Golden Globes Tina Fey Eva Ollikainen stjórnar Sinfóníu nr. 9, einnig nefnd „Úr nýja heim- inum“, eftir Antonín Dvorák og A Short Piece for Orchestra eftir Juliu Perry á tónleikum Sinfóníu- hljómsveitar Íslands (SÍ) í Eldborg Hörpu í kvöld kl. 20. „Sinfónían „Úr nýja heiminum“ er lykilverk í þjóðlegri sinfóníu- smíði 19. aldar, hrífandi samruni gamla heimsins og hins nýja, og býr yfir ljóðrænu og krafti. Julia Perry er meðal þeirra tónskálda 20. aldar sem gleymdust í tímans rás þrátt fyrir að hafa samið sérlega áhugaverða tón- list. Hún lærði við Juilliard- tónlistarskólann um 1950 og vakti allmikla athygli á sinni tíð þrátt fyrir að tvennt hamlaði tón- smíðaferli hennar: Hún var svört kona,“ segir í tilkynningu frá SÍ. Tónleikarnir verða í beinni á Rás 1. Úr nýja heiminum í Eldborg í kvöld Eva Ollikainen Uppfærsla leikhópsins Óskabarna ógæfunnar á Rocky! snýr aftur á svið frá og með kvöldinu og fara sýn- ingar fram á Nýja sviði Borgarleik- hússins. Verkið er eftir danska leik- skáldið Tue Biering og í leikstjórn Vignis Rafns Valþórssonar, en leik- ari er Sveinn Ólafur Gunnarsson. Sýningin var upphaflega frumsýnd í Tjarnarbíói haustið 2019 við góðar viðtökur og m.a. sögð vera „ein besta pólitíska ádeila sem sést hefur íslensku leiksviði í háa herrans tíð,“ eins og segir í tilkynningu frá leik- hópnum. Vignir Rafn var tilnefndur til Grímuverðlauna 2020 fyrir leik- stjórn sína á verkinu og Sveinn Ólaf- ur verðlaunaður fyrir bestan leik í aðalhlutverki. Um frammistöðu Sveins Ólafs sagði í leikdómi Morgunblaðsins á sínum tíma: „Sveinn Ólafur fer á kostum í Rocky! Hann hefur einstaklega fína nærveru og heldur góðu sambandi við áhorfendur hvort heldur hann stendur fremst á sviðsbrúninni eða við bakvegginn aftast í leikrýminu. Túlkun hans er full af blæbrigðum sem þjóna verkinu vel.“ Ljósmynd/Jóhanna Helga Þorkelsdóttir Hnefalögmál Sveinn Ólafur Gunnarsson ásamt svínsskrokki í Rocky! Rocky! á Nýja svið Borgarleikhússins Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is LÉTTU ÞÉR LÍFIÐ Fagfólk STOÐAR veitir nánari upplýsingar og ráðgjöf. Sturtustólar og kollar í miklu úrvali með og án snúningsdisks. Einfaldir í notkun, með hæðarstillanlegum og stöðugum fótum. Verð frá: 9.350,-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.