Fréttablaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 2
Ég heyri ekki annað á tali fólks og í fjölmiðl- um. Þeir eru bjartsýnir og mikil spenna. Sturla Sigurjónsson, sendiherra. Vatnslitað við vatnsbakkann „Það er skemmtilegt að mála úti, það er bara ekki alltaf hægt hérna á Íslandi með vatnslitum,”segir Óskar Thorarensen lögmaður, sem kveðst hafa lagt stund á listmálun í fimmtán til tuttugu ár. Óskar var í gær við iðju sína við Reykjavíkurtjörn, sem er hans eftirlætismyndefni. Þar hefur Óskar lent í ýmsu. „Fyrir nokkrum árum var ég að gera mynd og bakkaði aðeins til að virða hana fyrir mér og þá fauk hún út í Tjörn. Ég náði henni aldrei,“ segir hann. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Sendiherra Íslands í Bretlandi, Sturla Sigurjónsson, kíkti við í bækistöðvar Konung- lega breska flughersins við Lossie mouth fyrir skömmu og skoðaði þar flugvélina Spirit of Reykjavík. Hann segir að Englendingar séu bjartsýnir á gott gengi á EM, mikil spenna sé fyrir liðinu. Fótboltinn gæti jafnvel verið á leiðinni heim en Englendingar mæta Úkraínu í dag á mótinu. benediktboas@frettabladid.is SAMFÉLAG „Mér fannst við hæfi í ljósi sögunnar og verkefnisins að líta til þeirra og mér var afar vel tekið,“ segir Sturla Sigurjónsson, sendiherra Íslands í Bretlandi, en hann fór í heimsókn í bækistöðvar Konunglega breska f lughersins við Lossiemouth í Skotlandi fyrir skömmu, þar sem hann skoðaði meðal annars eftirlitsf lugvélina Spirit of Reykjavík. Flugvélin er nefnd eftir Reykjavík til að heiðra hlutverk Íslendinga í sigri bandamanna í orrustunni um Atlantshafið í seinni heimsstyrjöld- inni. Sú sveit sem hér var, 120. flug- sveitin, er með fálka í merkinu sínu. „Flugsveitin var staðsett á Íslandi 1943-1945 og eltist við þýska kaf- báta á Atlantshafi. Flugherinn hefur verið að endur- nýja f lotann sinn og er að taka í notkun Poseidon eftirlitsflugvélar. Fyrstu fimm hafa fengið nöfn eins og Pride of Moray, City of Elgin, Spi- rit of Reykjavik og Fulmar. Sturla segir að heimsóknin, sem hann fór í ásamt konu sinni Elínu Jónsdóttur, hafi verið bæði fróðleg og skemmtileg. Hann segir að síðan í maí hafi hann verið að reyna að bæta upp fyrir tapaðan tíma sem Covid-far- aldurinn olli. Sturla segir að bjartsýni ríki nú um allt England, þar sem knatt- spyrnulandsliðið hafi verið að gleðja landsmenn með góðum árangri á Evrópumótinu í fótbolta. Samfélagið hafi þjáðst í Covid-far- aldrinum en nú megi sjá bros á vör víða um götur London. „Þeir gera sér vonir um að gera góða hluti á Evrópumótinu. Ég heyri ekki annað á tali fólks og í fjölmiðlum. Þeir eru bjartsýnir og mikil spenna.“ Englendingar mæta Úkraínu í Rómarborg í dag og tekur Sturla undir það að ensk þjóðarsál hafi þurft á smá gleði að halda. „Algjör- lega. Sigurinn gegn Þýskalandi skipti þá miklu máli og fyrst það tókst held ég að þeir hyggi á frekari landvinninga – ef ég get tekið þann- ig til orða.“ n Andi Reykjavíkur sveif yfir vötnum í Norður-Skotlandi Sturla og Layden ofursti fyrir framan eftirlitsflugvélina Spirit of Reykjavik á Lossiemouth herstöðinni í Skotlandi. MYND/RAF TENERIFE 09. - 20. júlí | 11. dagar! www.sumarferdir.is | info@sumarferdir.is | 514 1400 verð frá 79.990 kr. á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn Innifalið: Flug, gisting, handfarangur og ferðataska arnartomas@frettabladid.is AUSTURLAND Vinna að hönnun Fjarðarheiðarganga, bæði jarð- ganga og aðkomuvega, er á áætlun og miðað er við að henni verði lokið vorið 2022. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Þar segir að áætlað sé að verkið verði boðið út síðsum- ars 2022 og að undirritun við verk- taka gæti farið fram snemma árs 2023. Gangagröftur gæti þá hafist um haustið 2023. Göngin verða yfir þrettán kíló- metrar að lengd og mun fram- kvæmdin taka langan tíma, en áætlað er að verkinu verði að fullu lokið 2034. Áætlaður heildarkostnaður við gerð Fjarðarheiðaganga mun nema um 35 milljörðum króna. n Fjarðarheiðargöng boðin út 2022 gar@frettabladid.is ELDGOS „Gosið er búið að jafna sig á þessari truflun sem hefur orðið og núna er það bara komið aftur í gírinn,“ segir Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur hjá Jarðvísinda- stofnun Íslands. Nokkurt hlé varð á sýnilegu kvikustreymi frá gosinu í Geld- ingadölum í gær og svipað var uppi á teningnum í fyrradag. Mikil virkni var hins vegar í gígnum í fyrrakvöld og fram á nótt. Um kvöldmatar- leytið í gær tók kvikan aftur að vella úr gígnum eftir að svo hafði virst fyrr um daginn að slokknað væri í honum. „Hann jós úr sér, alveg svakalega mikið,“ segir Þorvaldur. Þessi mikla gusa sem kom í fyrrakvöld hafi tæmt efri hluta gosrásarinnar. „Þá hefur bara hrunið í gíginn og hann stíflast. En núna er hann búinn að hreinsa sig,“ segir hann og útskýrir að veggir gígsins séu svo óstöðugir að ef yfirborðið í gígnum lækki, jafnvel aðeins í stuttan tíma, geti hrunið mikið inn í hann. Og það sé sennilega það sem hafi gerst í fyrri- nótt. Upp úr klukkan eitt í gærdag hafi gosóróinn svo farið að gera vart við sig aftur. „Gígurinn er kominn aftur af stað og virknin er bara nákvæmlega eins og hann er búinn að vera með,“ segir Þorvaldur, sem aðspurður kveðst telja mjög ólíklegt að komið hafi stopp í það kvikustreymi sem verið hefur upp á yfirborð frá um sautján kílómetra dýpi. Rishraðinn á kvik- unni sé ekki það mikill að breyting- ar á því myndu sjást svo fljótt. Þannig segir Þorvaldur ekkert benda til þess að eldgosinu í Geld- ingadölum sé að ljúka. „Eins og ég hef alltaf sagt þá getur þetta hætt á morgun þess vegna, en mér finnst ekkert vera að benda til þess að gosið sé að hætta – þótt það komi kannski svona smá pásur.“ n Eldgosið komið aftur í gírinn Hann jós úr sér, alveg svakalega mikið. Þorvaldur Þórðarson, eld- fjallafræðingur. 2 Fréttir 3. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.