Fréttablaðið - 03.07.2021, Side 4
n Tölur vikunnar
1
milljón var sektin sem Huppuís
var gert að greiða vegna rafrænnar
vöktunar.
9
hús voru rýmd í Varmahlíð eftir
aurskriðu sem þar féll.
4
milljarðar var andvirði hlutabréfa
sem sex erlendir sjóðir seldu í
Íslandsbanka á fyrstu þremur
dögunum eftir skráningu.
29
greindust með lekanda frá janúar
til maí á þessu ári.
19
tilkynningar hafa borist banda-
rískri miðstöð tilkynninga um
fljúgandi furðuhluti yfir Íslandi.
Kristrún
Frostadóttir
frambjóðandi
Samfylkingarinnar
í Reykjavíkurkjör-
dæmi suður.
Fólk þarf að þora
að taka áhættuna
sem felst í því að stofna fyrirtæki,
án þess að hafa áhyggjur af því
að eiga ekki fyrir grunnþörfum.
Þannig verða verðmæti til, með
hugmyndaleit einstaklinga og
velferðarkerfið sem bakhjarl. Við
viljum ekki lifa í samfélagi þar sem
tækifæri til slíkra ævintýra erfast.
Kolbrún
Baldursdóttir
oddviti Flokks
fólksins í
borgarstjórn
Reykjavíkur.
Hugsanlega má
reikna með að
eitthvað af umbótatillögum meiri-
hlutans á skóla- og velferðarsviði
verði orðnar að veruleika rétt fyrir
borgarstjórnarkosningar sem verða
í maí á næsta ári. Er það ekki dæmi-
gert að efna eigi loforð rétt fyrir
kosningar, sem gefin voru fyrir síð-
ustu kosningar? Nái þessi meirihluti
aftur kjöri má ætla að sama gerist og
síðast, hin fögru loforð fara í skúffu
og þegar líður aftur að kosningum
verði aftur dustað af þeim rykið.
Guðlaugur Þór
Þórðarson
utanríkis- og
þróunarsamvinnu-
ráðherra.
Alþjóðasam-
vinna og
alþjóða viðskipti
á grunni sjálfbærni verða áfram
undirstaða efnahagslegra og
félagslegra framfara, en raunveru-
leg framþróun mannréttinda getur
aldrei orðið undir kaldri hönd ein-
ræðis. Lýðræðið er þrátt fyrir allt
það skásta sem við höfum n
n Þetta sögðu þau
BJÓÐUM UPP Á 37” - 40” BREYTINGAPAKKA
BREYTINGAVERKSTÆÐI ÍSBAND,
SMIÐSHÖFÐA 5, SÉRHÆFIR SIG Í
BREYTINGUM Á RAM PALLBIFREIÐUM.
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
RAM 3500
BÍLL Á MYND RAM 3500 LARAMIE SPORT MEGACAB MEÐ 35” BREYTINGU
VERÐ FRÁ 7.421.210 KR. ÁN VSK.
9.202.300 KR. M/VSK.
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18
Virkni í eldgosinu í Geld-
ingadölum hefur minnkað
undanfarna sólarhringa.
Gosið hefur verið fengur
fyrir ferðaiðnaðinn og verður
áfram landkynning þótt
það lognist út af, að mati
framkvæmdastjóra Samtaka
ferðaþjónustunnar.
adalheidur@frettabladid.is
FERÐAÞJÓNUSTA „Það má kannski
segja að það væri kurteisi af gosinu
að halda svolítið áfram svo að fólk
sem er búið að bíða og bóka ferð geti
komið og séð það,“ segir Jóhannes
Þór Skúlason, framkvæmdastjóri
Samtaka ferðaþjónustunnar, um
lægðina á eldstöðvunum í Geldinga-
dal undanfarna sólarhringa.
„En það er svo sem ekki öll von úti
enn, skilst manni á jarðfræðingum,“
segir Jóhannes.
Um miðjan dag í gær var slokknað
í aðalgígnum, að sögn Kristínar Jóns-
dóttur, jarðeðlisfræðings og hóp-
stjóra náttúruvár hjá Veður stofunni.
Mikil virkni hafði verið í gos-
inu daginn áður og fram á nótt og
f læddi þá nýtt hraun ofan í Nátt-
haga. Virknin lognaðist svo út af
í gær og um tíma rann ekki hraun
úr gígnum. Seinnipartinn var hins
vegar aftur komin kvika upp á
yfirborðið. Að mati náttúruvár-
hóps Suðurlands var þetta goshlé,
en í gær sást í hraunbráð í fyrsta
skipti frá því að gosið hófst 19. mars.
„Það fer eftir því hvernig á það er
litið, segir Jóhannes, aðspurður um
þýðingu þess fyrir ferðaþjónustuna
ef hætti að gjósa.
„Gosið hefur náttúrulega valdið
mikilli umfjöllun sem við höfum
augljóslega notið góðs af. Ef gosið
hverfur hefur það náttúrulega ekki
sama aðdráttarafl fyrir fólk. En við
höfum þó séð til dæmis við eldgosið
í Holuhrauni og reyndar í Eyjafjalla-
jökli líka, að svona viðburðir lifa nú
töluvert eftir að þeim er lokið,“ segir
Jóhannes og telur að vel megi búast
við því að gosið muni eiga sér líf eftir
dauðann.
„Glænýtt hraun, eins og þarna er,
hefur alltaf aðdráttarafl þótt gosinu
sjálfu sé lokið,“ segir Jóhannes og
bætir við: „Það má gera ráð fyrir því
að gosstaðurinn muni hafa aðdrátt-
arafl sem áfangastaður, jafnvel í eitt
til tvö ár eftir að gosinu lýkur, en
auðvitað ekki á sama hátt.“
Jóhannes á ekki von á af bók-
unum þótt gosinu ljúki nú
„Þrátt fyrir allt er gosið nú bara
eitt af því sem fólk hyggst skoða
á ferð sinni um Ísland. Miðað við
þær kannanir sem við höfum séð
er gosið ekki helsti ákvörðunar-
þátturinn fyrir ferðalög til Íslands.
Það er meira svona „VÁ faktor“ og
eitt af því sem fólk hyggst þá skoða,
en ekki úrslitaþáttur.“ n
Segir að gosið muni lifa eftir dauðann
Þúsundir manna, bæði innlendra og erlendra hafa lagt leið sína að eldgosinu í Geldingadölum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Glænýtt hraun, eins og
þarna er, hefur alltaf
aðdráttarafl þótt
gosinu sjálfu sé lokið.
Jóhannes Þór
Skúlason, fram-
kvæmdastjóri
Samtaka ferða-
þjónustunnar.
Eldgosið í Geldingadölum
Kvöldið 19. mars síðastliðinn
hófst eldgos í Geldingadöl-
um við Fagradalsfjall og hefur
nú staðið yfir í 106 daga.
Jarðvísindastofnun skiptir
gosinu í þrjú tímabil. Það
fyrsta stóð yfir í um tvær
vikur og einkenndist af frekar
stöðugu hraunrennsli. Annað
tímabilið stóð yfir í svipaðan
tíma og einkenndist af opnun
nýrra gosopa og hreyfilegu
hraunrennsli. Þriðja tíma-
bilið stendur enn yfir og hefur
virknin öll verið í sama gígnum.
4 Fréttir 3. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ