Fréttablaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 20
Í hvert skipti sem eitthvað nýtt er reynt þá hækkar vonar- stigið. Fallið og vonbrigðin verða því oft aðeins hærri með hverju skiptinu sem maður fær nei- kvæða útkomu. Alexandra Helga Ívarsdóttir og eiginmaður hennar, knatt- spyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson, eignuðust á dög- unum dótturina Melrós Míu. Frumburðarins var beðið í fimm ár og ákvað Alexandra að opna sig um baráttuna við ófrjósemi til að veita öðrum í sömu stöðu von og styrk. Þrátt fyrir ungan aldur hafa þau Alexandra og Gylfi verið par í rúman áratug og gengu í hjóna-band árið 2019, eftir níu ára samband. „Við kynnumst haustið 2010 í gegnum frænku mína og frænda,“ segir Alexandra, aðspurð um upp- haf sambandsins. „Hann bjó þá í Þýskalandi og við töluðum saman klukkustundunum saman á spjall- forritinu MSN.“ Það var svo á Þor- láksmessu sama ár sem þau hittust í fyrsta sinn og þá var ekki aftur snúið að sögn Alexöndru. „Fyrstu sex mánuðina vorum við þó í fjar- sambandi, þar sem ég hafði ráðið mig til vinnu hjá flugfélaginu Emir- ates í Dubai og hann var að spila í Þýskalandi. Ég flutti svo út til hans sumarið 2011 og síðan þá höfum við átt heimili á fjórum stöðum,“ útskýrir Alexandra, en fjölskyldan býr nú í Liverpool þar sem Gylfi leikur með Everton. Það vakti athygli undir lok síðasta árs þegar Alexandra birti mynd á samskiptamiðlinum Instagram þar sem hún er með yfir 20 þúsund fylgjendur og sagði frá því að þau hjón ættu von á sínu fyrsta barni. Hún bætti þó um betur og opnaði sig um að biðin eftir barni hefði varað í fimm ár, parið sem barist hefði við ófrjósemi hefði loks verið bænheyrt. Maður upplifir sig hálf gallaðan Hjónin fengu fréttirnar um að líklega yrði ekki auðvelt fyrir þau að eignast barn þegar þau voru aðeins 26 ára gömul og segir Alexandra það hafa verið ótrúlega skrítið að heyra þær. „Maður upplifir sig hálf gallaðan, þegar þetta er eitthvað sem flestir í kringum mann hafa ekki þurft að hafa mikið fyrir. Þegar maður byrjar svo að reyna að eignast barn gengur maður að sjálfsögðu út frá því að allt gangi vel, þar til annað kemur í ljós.“ Alexandra lýsir því sem miklum vonbrigðum í hvert sinn sem tíða- hringurinn hófst að nýju, enda hafi vonin verið sterk og hausinn alltaf kominn dálítið lengra fram í tímann. Þetta var ákveðið sjokk „Við leituðum fyrst til læknis eftir að hafa reynt í sirka ár og fengum þá þær fréttir að líklegast yrði ekki auðvelt fyrir okkur að eignast barn. Við vorum rúmlega 26 ára og lifðum mjög heilsusamlegu lífi og erum bæði hraust, svo þetta var ákveðið sjokk.“ Úr varð að reyna glasameðferð og var sú fyrsta reynd árið 2016 án árangurs og segir Alexandra þá nei- kvæðu útkomu hafa reynst sér virki- lega erfiða. „Ég var svo spennt að vera komin í einhvers konar ferli og fá loksins hjálpina sem þurfti og hélt svo inni- lega að þá myndi allt ganga upp. Ég þurfti að hafa mikið fyrir því að koma mér aftur í gang eftir það,“ segir Alexandra, sem á sama tíma var að glíma við mikla króníska bakverki. „Blandan af þessu tvennu var mjög erfið andlega og líkam- lega.“ Hún lýsir því að eftir einhvern tíma sem að sjálfsögðu sé mislangur á milli para, komi aftur upp löng- unin til að reyna við meðferð og þá sé farið í undirbúning og að skoða kostina sem í boði eru. „Í hvert skipti sem eitthvað nýtt er reynt þá hækkar vonarstigið. Fallið og vonbrigðin verða því oft aðeins hærri með hverju skiptinu sem maður fær neikvæða útkomu. Við ákváðum til dæmis að taka okkur árs pásu frá öllu tengdu þessu fyrir Mikilvægt að missa ekki trúna Draumabarnið Melrós Mía hvílir vær í fangi móður sinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is brúðkaupið, þar sem við vildum einbeita okkur að gleðinni sem fylgdi því að plana það. Ég held að það hafi verið mjög hollt fyrir okkur bæði og sambandið að taka þetta aðeins út af borðinu í smá tíma og njóta lífsins,“ segir Alexandra, en þau hjónin giftu sig með pompi og prakt við Como vatn á Ítalíu fyrir tveimur árum síðan. Ófrjósemis herbúðir „Haustið eftir að við giftum okkur, eftir nokkrar misheppnaðar til- raunir, fundum við klíník í London sem okkur leist vel á. Það haust hófst mikill undirbúningur hjá mér í formi lyfjagjafar, til þess að reyna að fínstilla ákveðin gildi í líkamanum og undirbúa mig fyrir meðferðina,“ útskýrir hún. Það var svo í janúar 2020 sem meðferðin hófst fyrir alvöru og segir Alexandra í léttum tón að í raun megi líkja henni við „infer- tility bootcamp” eða „ófrjósemis herbúðir.“ „Ég þurfti að dvelja í London í nokkrar vikur þar sem eftirlitið hjá þeim var mikið. Sú meðferð gekk hins vegar ekki upp og áfallið var mikið,“ útskýrir hún alvarleg. „Mér fannst ég hafa lagt gjör- samlega allt undir, bæði líkamlega og andlega og hélt að með aukinni hjálp myndi þetta kannski loksins ganga upp. Ég fann þó fyrir ein- hverjum auknum krafti og ákvað að drífa mig mánuði seinna í næstu meðferð. Eftir stöðugar ferðir fram og til baka frá London skall Covid á og því miður varð að hætta meðferð þegar henni var nánast lokið.“ „Ég var gjörsamlega búin á því og ákvað að einbeita mér að því að styrkja mig andlega og líkamlega þar til kæmi í ljós hvenær við gætum haldið áfram.“ Hjónin héldu heim til Íslands um sumarið eftir langt útgöngubann í Bretlandi og Alex- andra hafði hafið undirbúning fyrir næstu meðferð, sem átti að hefjast í ágúst. Hlustaði á innsæið „Þegar heim var komið leið mér ein- staklega vel og innsæið sagði mér að fresta meðferðinni um mánuð og framlengja ferðina mína heima. Sem betur fer, því í lok ágúst komst ég óvænt að því að ég væri ófrísk.“ Alexandra segir þau hjón snemma hafa vitað að þau langaði að verða foreldrar saman og ófrjósemin hafi reynst henni ótrúlega erfið andlega. „Ég leitaði mér hjálpar eftir að hafa verið lengi í þessu ferli. Það fylgja þessu alls konar erfiðar til- finningar. Eftir mikla sjálfsvinnu og hjálp frá fagaðilum sem ég er inni- lega þakklát fyrir að hafa fengið, ákvað ég að reyna að líta á þetta ferli sem andlega vegferð. Ég hef þroskast ótrúlega mikið og kynnst sjálfri mér vel eftir þessa upplifun,“ útskýrir hún. „Ófrjósemi er mikill tilfinninga- rússibani og getur oft á tíðum verið einmana staður að vera á. Ég upp- lifði mig stundum svolítið einmana í sorginni sem fylgdi þessu, enda ekki margir í kringum mann sem skilja líðanina sem fylgir þessu.“ Alexandra viðurkennir að hafa verið frekar lokuð um erfiðleikana í upphafi og ekki talað mikið um þá. „Mér fannst það ákveðinn léttir þegar við sögðum fólkinu í kringum okkur frá stöðunni. Það er erfitt að vera stanslaust að fá spurningar 20 Helgin 3. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.