Fréttablaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 26
Elín Albertsdóttir elin @frettabladid.is Brynhildur Björnsdóttir kabarettsöngkona verður með ýmislegt á prjónunum á Reykjavík Fringe hátíðinni sem hefst í dag, 3. júlí. Hún verður með tvenna tónleika í Bókabúð Máls og menning- ar, á morgun og föstudaginn, en kemur líka fram með kabaretthópnum Dömur og herra. „Ég hef verið að stúdera ástina í mörg ár, og ekki bara sem ein- staklingur eins og flestir, heldur líka á fræðilegan hátt,“ segir Bryn- hildur, aðspurð um yfirskrift tónleikanna sem er tilvitnun í eitt þekktasta lag Páls Óskars, Allt fyrir ástina,“ segir Brynhildur, en hún hefur verið virk í Hinu íslenzka ástarrannsóknafélagi frá stofnun þess. „Í félaginu skoðum við ástina á akademískum forsendum, skoðum áhrif hennar í samfélaginu og á einstaklinga. Meistararit- gerðin mín heitir til að mynda Vald ástarinnar og fjallar um hvernig hugmyndin um rómantíska ást hefur áhrif á samfélagið og menn- inguna. Síðan ég skilaði ritgerðinni í haust hefur mig langað að tengja hana við ýmis dægurlög sem fjalla um ástina frá öllum hliðum og læt nú verða af því með tvennum tónleikum í Bókabúð Máls og menningar, nýjum tónleikastað á Laugavegi 18. Þeir fyrri verða á morgun, sunnudag, klukkan fimm, en þeir seinni föstudaginn 9. júlí klukkan sex,“ segir hún. Með mér leikur Aðalheiður Þorsteinsdóttir píanóleikari en við köllum okkur Bibi Bioux og A La Dioux. Við munum leika nokkur alþekkt, íslensk ástarlög með örfáum erlendum í bland og á milli fer ég yfir ástarfræðin og krydda þau með eigin reynslu. Bur- lesklistakonan Vice Versa verður okkur svo til halds og trausts og fjallar um ástina á ögn líkamlegri hátt,“ segir Brynhildur, en tekur fram að tónleikarnir verði þó við hæfi allra aldurshópa. Hleypur á milli sýninga Sjálf hefur Brynhildur verið virkur þátttakandi í burlesk- og kabarettsenunni frá 2017 og gerði meðal annars útvarpsþáttaröð árið 2019 fyrir Rás 1 sem nefnist Daðrað af jaðrinum. Þar fór hún yfir stöðu jaðarlista á Íslandi, en til þeirra teljast uppistand, sirkus, spuni og drag, auk burlesk og kabaretts. „Það hefur lítið breyst síðan ég gerði þessa þætti þar sem jaðarlistirnar lögðust í dvala eins og allt annað með Covid. En nú er Fringe hátíðin að byrja og hún keyrir senuna aftur í gang.“ Reykjavik Fringe hátíðin er haldin í fjórða sinn í ár og Bryn- hildur ætlar að reyna að sjá sem Allt fyrir ástina Brynhildur mun flytja lög eftir Gunnar Þórðarson, Hauk Ingibergsson, Moses High­ tower, Pál Óskar, Suzanne Vega og marga fleiri. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Kabarettlistir sækja í sig veðrið með afnámi samkomu­ takmarkana. Hér má sjá hluta af kabaretthópnum Dömur og herra. MYND/ELÍN BJÖRG Brynhildur og Aðalheiður Þorsteinsdóttir kanna undar­ leik ástarinnar á morgun. MYND/HALLA KRISTÍN f lestar af þeim 150 sýningum sem verða í boði. „Ég hlakka samt mest til að koma fram með kabarett-og kætihópnum mínum, Dömur og herra, sem verður með sýningu á öðrum nýjum sýningarstað, Bar Ananas, næsta föstudag klukkan hálfníu. Þar er mjög skemmti- legt andrúmsloft og takmarkað sætaframboð, svo ég ráðlegg áhugasömum að festa sér miða í tíma. Ég klára seinni ástartón- leikana klukkan rúmlega sjö þann sama dag svo ég þarf að vera f ljót að skipta um föt og koma mér í annan karakter. Sem betur fer er Ananas bara hinum megin við götuna. En þetta er eitt af því sem er svo skemmtilegt við að vera á Fringe hátíð, að hlaupa á milli sýninga, ýmist til að sýna sig eða sjá aðra.“ Í Þjóðleikhúskjallaranum Dömur og herra er burlesk- listahópur sem hóf göngu sína í Kramhúsinu 2017 en hefur farið víða síðan og sýndi meðal annars á Brighton Fringe hátíðinni vorið 2019. Sýningin næsta föstudag verður fyrsta sýning hópsins í heilt ár, en svo fara hjólin heldur betur að snúast. „Við finnum að skemmtanalífið er að fara í gang aftur og erum afar tilbúin að leggja okkar af mörkum. Við verðum með tvær sýningar í Tjarnarbíói á næstunni, 22. júlí og 13. ágúst, sem verða hluti af metnaðarfullri sumardagskrá þar. Og svo má segja frá því núna að á næsta leikári verðum við með sýningar á sjóðheitustu klassabúllu landsins, Þjóðleikhús- kjallaranum, þar sem jaðarlistir munu eiga sér heimavöll í bland við ýmislegt annað. Mjög spenn- andi að taka þátt í því ævintýri.“ Ástin er heillandi En næst á dagskránni eru tónleik- arnir í Bókabúð Máls og menning- ar á morgun. „Það er staðreynd að flestöll dægurlög fjalla um ástina svo það var úr mörgu að velja á prógrammið en að lokum ákvað ég að láta hjartað ráða för og velja lög og eða texta sem snerta mig með einum eða öðrum hætti. Þarna verða lög eftir Gunnar Þórðarson, Hauk Ingibergsson, Moses High- tower, Pál Óskar, Suzanne Vega og marga fleiri. Ástin er heillandi viðfangsefni og getur bæði verið upphafin alsæla og ormagryfja þjáninga svo það verður eitthvað fyrir alla, meira að segja þá sem eru komnir með nóg af henni, “ segir Brynhildur að lokum. Tónleikarnir Allt fyrir ástina! verða í Bókabúð Máls og menn- ingar sunnudaginn 4. júlí kl. 17 og föstudaginn 9. júlí kl. 18. Miðasala er á tix.is. nFERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is SUMARVARNIR (ÓÞOL OG OFNÆMISVAKAR) Boðið verður upp á flott viðtöl og fróðlega umfjöllun um hinar ýmsu sumarvarnir. Tryggðu þér au lýsingapláss í mest lesna dagblaði landsins. Föstudaginn 9. júlí gefur Fréttablaðið út sérblaðið Nánari upplýsingar um blaðið veitir: Jón Ívar Vilhelmsson, markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 550 5654/ jonivar@frettabladid.is 4 kynningarblað A L LT 3. júlí 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.