Fréttablaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 58
Meira að segja yfir sum- arið er ég með mjólk í frysti, því þó ég sé ein í dag veit ég ekki hversu margir verða á morgun. Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir síðan 1996 Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Sigurður Bjarni Jónsson útfararstjóriMagnús Sævar Magnússon útfararstjóri Guðmundur Baldvinsson útfararstjóri Jón G. Bjarnason útfararstjóri Til stendur að leggja ljósleiðara og þriggja fasa rafmagn út á Ingjaldssand, milli Dýrafjarðar og Önundarfjarðar, eins og bb sagði frá. Elísabet Pétursdóttir er eini íbúinn þar. gun@frettabladid.is „Það verður lúxus að fá rafmagnið í jörð og auðvitað góða netttengingu líka. Hvorutveggja eykur á öryggið," segir Elísabet Pétursdóttir bóndi, um fyrir- hugaða lagningu ljósleiðara og þriggja fasa rafmagns í sveitina hennar Ingjalds- sand. Hún er ein um að hafa fasta búsetu þar. Spurð hvort hún sé í einhverri klíku svarar hún: „Nei, þetta er ekki komið til af neinu slíku. Það er Bjössi í Snerpu sem hugsar svona vel til okkar. Hann og Orkubú Vestfjarða eiga heiðurinn af þessu. Svo er þetta ekki nýtt, það átti að koma ljósleiðara og þriggja fasa straum hingað fyrir þremur árum þegar Holt var tengt, en náttúran og f leira sá til þess að hægðist á fram- kvæmdum. Það náðist að koma strengj- um út í Valþjófsdal í fyrra og þaðan verð- ur plægt upp Klúku, gömlu reiðleiðina milli Önundarfjarðar og Ingjaldssands. Vonandi hefst það fyrir veturinn." Góugróðurinn svikull Vegurinn á Ingjaldssand liggur út með Dýrafirði norðanverðum, inn Gerðhamradal upp á Sandsheiði og niður Brekkudal. „Ég keyri tvisvar yfir 66°norður- línuna þegar ég fer á Flat- eyri," segir Elísabet glaðlega. Hún býr á Sæbóli II sem er, eins og nafnið bendir til, úti við hafið og hún segir þar allt gal- opið fyrir norðanáttinni og grassprettan sé seint á ferð þetta sumarið. „Gróðurinn fór af stað í hlýindum í vetur, svo kom þurrakuldi í maí og allt varð fjólublátt. Það er eins og gamla fólk- ið sagði. „Aldrei er góður góugróðurinn." Hún gerir vont úr veginum um Sands- heiðina. „Hann er bara hryllilegur. Það var reynt að hefla hann en ofaníburður- inn er enginn. Vegagerðin fyrir sunnan er ekki í liði með okkur en það vantar ekki viljann hjá þeim sem eru hér, þeir eru bara sviknir um peninginn sem þarf. Í fyrsta skipti hefur þó verið sett upp skilti á heiðinni sem á stendur Seinfarið." Kisur hvor í sínum stól Oft er líflegt í sveitinni yfir sumarið, að sögn Elísabetar, enda Sæból III leigt út. „17. júní helgin var löng og þá var hér fullt af fólki. Það fjölgar líka kringum mig nú um helgina." Ekki kveðst hún leigja út herbergi, frekar vilja létta undir með Kristínu á Sæbóli III og hafa sjálf pláss fyrir vini og vandamenn sem nenna að koma í heimsókn. „Ég að leigja út? - Nei, takk. Þá gæti ég ekki setið eins og ég geri núna með kisurnar mínar hvora í sínum stól við hliðina á mér. Það eru sko kattahár hér og hundahár þar." Hún kveðst alltaf hafa nóg að gera. „Ég er náttúrlega með fé á húsi allan veturinn og er í vinnu alla daga, eins og flestir. Svo þarf maður að versla og komast á eitt og eitt mannamót. En ég skýst ekkert þegar mér dettur í hug yfir veturinn og þarf að vera forsjál þannig að ég eigi nauðsynjar og fóður handa hundum, köttum og hænum. Meira að segja yfir sumarið er ég með mjólk í frysti, því þó ég sé ein í dag veit ég ekki hversu margir verða á morgun," segir Elísabet, sem á tvö börn, tengdason og tvö barnabörn á Flateyri. Á einmitt von á átta ára dóttursyni í heimsókn og hlakkar til. „Börnin eru f ljót að finna hvað þarf að gera og þó þau séu bara að fylgjast með ömmu sinni þá fá þau verk- vitið," segir hún og á líka vísa aðstoð við heyskapinn, meðal annars frá Þór, 23 ára syni sínum. Hún kveðst hafa aðgang að mörgum túnum í sveitinni og nú lítist henni best á sprettuna í sandræktinni. Notar WathsApp Elísabet er með bráðabirgða-netteng- ingu sem hefur dugað nokkuð vel í tvö ár. „Það er Bjössa í Snerpu að þakka," segir hún. „Sú tenging olli breytingum á lífi mínu því þá fór ég að vera í sambandi við fleira fólk – og lengra í burtu gegnum WathsApp. En ég held það verði léttir hjá mönnum í Orkubúinu þegar allt verður komið hér í jörð, svo þeir þurfi ekki að að redda ein- hverju á heiðinni í alls konar aðstæðum." Sjálf lætur hún sér aldrei leiðast. „Þegar rokið minnkar ætla ég út í garð og líka að snyrta kringum kirkjuna. Svo er ég í handverki,  en ekki eins dugleg og ég var. Samt er eitthvað til ef fólk vill kíkja við."n Kveðst ekki vera í neinni klíku Elísabet og tíkin Rósa við kirkjuna á Sæbóli. Til hægri Hrafnaskálarnúpur og handan fjarðar Sauðanes. MYND/ÞÓR ENGHOLM  Merkisatburðir 1921 Kristján X. stofnar Hina íslensku fálkaorðu. 1928 Bifreið fer um Öxnadalsheiði í fyrsta sinn. Ferðin frá Blönduósi til Akureyrar tekur 15 klukkustundir. 1948 Marshallaðstoðin berst Íslendingum frá Bandaríkja- mönnum, um 39 milljónir dala. 1954 Happdrætti DAS hefur göngu sína og dregið er í fyrsta sinn. Fyrsti vinningur er Chevrolet-bifreið. 1973 Vísindamenn tilkynna formlega um goslok í Vest- mannaeyjum. 1985 Bandaríska kvikmyndin Aftur til framtíðar er frum- sýnd. 1985 Francesco Cossiga er kjörinn forseti Ítalíu. 1986 Farsímakerfi er tekið í notkun á Íslandi með þjón- ustustöðvar á svæðinu frá Vík í Mýrdal til Vest- fjarða. 1992 Norski njósnarinn Arne Treholt er náðaður og honum sleppt lausum. 1996 Boris Jeltsín sigrar aðra umferð forsetakosninga og er endurkjörinn forseti Rússlands. 2016 Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu fellur úr keppni í EM2016 eftir 5:2 ósigur gegn Frökkum. Konur efndu til mikilla hátíðahalda í miðborg Reykjavíkur við setningu Alþingis þennan dag árið 1915 og fögnuðu nýfengnum kosningarétti. Dagskráin hófst á því að konur gengu fylktu liði inn á Austurvöll. Ungar konur voru þar fremstar í flokki og veifuðu allar íslenska fánanum, því þann 19. júní 1915, sama dag og konungur skrifaði undir lög um kosn- ingaþátttöku kvenna, tóku lög um íslenska fánann einnig gildi. Sendinefnd úr hópnum gekk inn í þinghúsið þar sem lesið var þakkar- ávarp og þingheimur hrópaði þrefalt húrra fyrir konum. Síðan hófst úti- fundur með söng og ræðum. Ingibjörg H. Bjarnason og Bríet Bjarnhéðinsdótt- ir töluðu. Mikil bjartsýni var ríkjandi í hópnum og Bríet lauk ræðu sinni á þessum orðum: „Við heilsum glaðar framtíðinni.“ n Þetta gerðist: 7. júlí 1915 Íslenskar konur fögnuðu kosningarétti Bríet Bjarnhéðinsdóttir. 30 Tímamót 3. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐTÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 3. júlí 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.