Fréttablaðið - 24.06.2021, Síða 4
Pattstaða er komin upp í
Skagafirði vegna bændaplasts
sem ekki fæst fjármagn til
þess að flytja til Hveragerðis í
endurvinnslu. 150 tonn hafa
safnast upp á Sauðárkróki, en
ráðherra segir kerfið í endur-
skoðun.
benediktboas@frettabladid.is
UMHVERFISMÁL Alls bíða 150 tonn
af bændaplasti eftir að vera endur-
unnin í móttökustöð Flokku ehf. á
Sauðárkróki. Fyrirtækið vill f lytja
plastið til Hveragerðis í verksmiðju
Pure North Recycling, þar sem
íslenskt hugvit er nýtt við endur-
vinnslu plastsins með umhverfis-
vænum orkugjöfum. Umhverfis-
og samgöngunefnd Skagafjarðar
hafnaði beiðni um að sveitarfélagið
styrkti flutninginn til Hveragerðis.
Vísaði nefndin beiðninni til
afgreiðslu hjá umhverfis- og auð-
lindaráðuneyti. Úrvinnslusjóður,
sem á að skapa skilyrði fyrir endur-
nýtingu úrgangs og endanlega
förgun spilliefna, hefur áður neitað
að koma til móts við kostnaðinn og
hækka f lutningsjöfnuð sem sam-
svarar flutningi frá Sauðárkróki til
Hveragerðis.
Flokka ehf., sem þjónustar Skaga-
fjörð, situr því uppi með 150 tonn
af bændaplasti frá svæðinu á sama
tíma og Pure North Recycling vant-
ar hráefni í verksmiðjuna. Það er
því komin upp pattstaða þrátt fyrir
nýsamþykkta löggjöf um hring-
rásarkerfið, sem styður við aukna
flokkun og endurvinnslu úrgangs.
Málið snýst um krónur og aura
því samvæmt bréfi sem Flokka ehf.
sendi nefndinni, kemur fram að
Pure North Recycling fái endur-
vinnslugjaldið frá Úrvinnslusjóði og
þeir séu tilbúnir að greiða 10 krónur
fyrir kílóið fyrir að skila efninu inn
til þeirra. Fyrirtækið spyr því hvort
sveitarfélagið sjái sér fært að taka
yfir og greiða 15 krónur fyrir kílóið
til að standa undir flutningskostn-
aði.
Nefndin telur þetta vera óeðli-
lega mismunun á f lutningskostn-
aði sem réttast væri að Jöfnunar- og
Úrvinnslusjóður kæmu að.
Það sitja því 150 tonn af bænda-
plasti hjá Flokku en samkvæmt bréfi
Flokku ehf. eru flestir erlendu aðil-
arnir ýmist hættir eða að hætta að
taka við bændaplasti frá Íslandi og
erfitt er að flytja plastið til útlanda.
Þess má geta að Alþingi samþykkti
skýrslubeiðni níu alþingismanna
um úttekt ríkisendurskoðanda á
starfsemi Úrvinnslusjóðs.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
umhverfis- og auðlindaráðherra,
sem einmitt mælti fyrir hring-
rársarfrumvarpinu, bendir á að
Úrvinnslusjóður sé með flutnings-
jöfnunarkerfið til heildstæðrar
endurskoðunar og vonast eftir
því að sú vinna verði farsæl. „Ég
er þeirrar skoðunar að við eigum
að endurvinna sem allra mest af
þeim úrgangi sem til fellur og gera
það sem næst upprunastað. Það er
að segja, það er betra ef við getum
gert það hérna heima heldur en að
senda hráefnin úr landi,“ segir Guð-
mundur. ■
Hundruð tonna af bændaplasti eru
föst á Sauðárkróki vegna kostnaðar
Í Hveragerði
stendur ný og
glæsileg verk-
smiðja sem
endurvinnur
plast. Þar á
meðal bænda-
plast.
FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN
Endurvinnslugjald
sem Pure North Recycl-
ing fær fyrir plastið
er 10 krónur á kílóið.
Flokka ehf. vill fá 15
krónur til að koma
plastinu frá Skagafirði
til Hveragerðis. Því
hefur verið hafnað.
K Y N N U M N ÝJ A N J E E P®
A L V Ö R U J E P P I – A L V Ö R U FJ Ó R H J Ó L A D R I F
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18
VERÐ HLAÐINN AUKABÚNAÐI
6.399.000 KR.*
N Á N A R I U P P LÝ S I N G A R Á J E E P. I S
• STÆRRI VÉL 240 HÖ
• 360° MYNDAVÉL
• LÁGT DRIF
• LEÐURSÆTI OG MÆLABORÐ
• SNERTILAUS OPNUN AFTURHLERA
• FJARLÆGÐARSTILLTUR HRAÐASTILLIR
N Ý H Ö N N U N
N Ý I N N R É T T I N G
N Ý TÆ K N I
N Ý R Ö R Y G G I S B Ú N A Ð U R
* S V A R T U R L I M I T E D. A Ð R I R L I T I R 6 . 5 6 2 . 0 0 0
PLUG-IN HYBRIDÁRA ÁBYRGÐ 8 ÁRA ÁBYRGÐ Á DRIFRAFHLÖÐU
thorgrimur@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Óreiða í fjármála- og
verkefnastjórn Norrænu ráðherra-
nefndarinnar olli því að ekki var
unnt að skila ársreikningi til ríkis-
endurskoðunar Danmerkur fyrr en
í júní.
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnaráðherra,
sem sótti fund ráðherranefndar-
innar í Finnlandi á þriðjudaginn,
segir vandræðin stafa af nýju fjár-
málakerfi sem tekið var upp fyrir
einu og hálfu ári.
„Hugbúnaðurinn í gamla kerf-
inu var orðinn gamaldags,“ segir
Sigurður Ingi. „Hugmyndin með
breytingunni var að hægt yrði að
sjá raunstöðu fjármálanna frá degi
til dags. En það gekk erfiðlega að
innleiða nýja kerfið og fyrir vikið
hefur komið í ljós að fylgigögn með
fjármunum til tiltekinna verkefna
hafa ekki verið nægilega góð. Ekkert
bendir þó til neins misferlis.“
Að sögn Sigurðar hefur danska
ríkisendurskoðunin farið gaum-
gæfilega yfir skjöl ráðherranefndar-
innar og utanaðkomandi aðilar hafa
jafnframt verið fengnir til að líta á
þau. Sigurður bætir við að ráðist
hafi verið í úrbætur með ráðningu
nýs fjármálastjóra og annarra nýrra
starfsmanna. „Á síðustu mánuðum
höfum við verið að styrkja innra
starfið, meðal annars með nýju og
öflugu fólki og með því að tryggja
að allir séu upplýstir um nýja verk-
ferla. Þetta er mikilvægt þar sem
norræn ríki eru nú þekkt fyrir eitt-
hvað annað en óreiðu.“
Sigurður segir að nefndin hafi
tekið ákveðin skref til að koma í
veg fyrir að þessi mistök endur-
taki sig. „Við höfum gert viðbótar-
kröfur á skrifstofunum sem lúta að
meira gegnsæi og skýrari ferlum í
hverju skrefi. Að auki höfum við
gert kröfur um að sérfræðingar séu
ráðnir á fjárhagseftirlitssviði og fjár-
stýringarsviði.“ ■
Stefna að endurbótum til að leiðrétta fjármálaóreiðu
Sigurður Ingi Jóhannsson.
kristinnhaukur@frettabladid.is
NEYTENDUR Kostnaður við húsnæði
er rúmlega 30 prósentum hærri hér
á landi en í ESB- og EFTA-ríkjunum
að meðaltali. Þetta kemur fram í
nýrri verðlagsgreiningu Eurostat,
tölfræðistofnunar ESB. Munurinn
á húsnæðiskostnaði hér á landi
og í Evrópu er þó mun minni en í
ýmsum öðrum flokkum.
Mestur er munurinn þegar kemur
að áfengi og tóbaki. Verðið hér er
það næsthæsta í álfunni og nærri 90
prósentum hærra en meðaltalið. Þar
eru reyndar Norðmenn langhæstir
með 120 prósentum hærra verð.
Verð á fjarskiptaþjónustu, pósti,
síma og netþjónustu er 70 prósent-
um yfir meðaltali og almennings-
samgöngur eru 66 prósentum yfir
meðaltali. Í þeim flokki eru Íslend-
ingar og Norðmenn efstir og jafnir.
Verð á veitingastöðum og hót-
elum er hér 47 prósentum yfir
meðaltali, skemmtanir og menn-
ing 37 prósentum og matvælaverð
30 prósentum. Þegar kemur að ein-
stökum matvælategundum er kjöt
og mjólk lengst frá meðaltalsverði
Evrópu, en fiskur næst því.
Þeir tveir f lokkar þar sem Ísland
kemst næst Evrópumeðaltalinu
eru húsgögn og teppi annars vegar
og bifreiða- og hjólreiðakostnaður
hins vegar. Báðir flokkar eru þó um
10 prósentum yfir meðaltali. ■
Mesti munurinn á
áfengi og tóbaki
Húsnæðisverð hefur hækkað mikið
undanfarna mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
4 Fréttir 24. júní 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ