Fréttablaðið - 24.06.2021, Side 12
Eiríksjökull er ekki aðeins eitt af fallegustu fjöllum
landsins, heldur jafnframt stærsti móbergsstapinn
og hæsta fjall á vestanverðu Íslandi, 1.675 metra hátt.
Helsta sérkenni hans er hvít jökulbungan sem blasir
við úr innsveitum Borgarfjarðar og af Arnarvatnsheiði.
Hún er 22 ferkílómetrar að stærð og renna frá henni
nokkrir nettir skriðjöklar, f lestir í norður. Sá stærsti
er Klofajökull, en skemmtilegasta nafnið ber bróðir
hans Brækur.
Nafn Eiríksjökuls má rekja til útilegumanns sem hét
Eiríkur. Segir í þjóðsögum að hann hafi ásamt félög-
um sínum hafst við í Surtshelli skammt frá jöklinum
og farið ránshendi um sveitir. Eltu bændur hann uppi
og náðu að höggva af honum annan fótinn við ökkla.
Komst hann eigi að síður undan á f lótta og faldi sig í
móbergsdranga í fjallinu vestanverðu, sem heitir Eiríks-
gnýpa. Færðist Eiríksnafnið yfir á jökulinn sjálfan í
byrjun 18. aldar, en áður hafði hann heitið Baldjökull
og þar áður Ballarjökull. Böllur var á fornmáli notað yfir
eitthvað sem er ávalt eða kúlulaga, og á vel við um jökul-
hettuna, en baldinn þýðir óþægur eða þver. Það nafn á
einnig vel við um Eiríksjökul sem getur verið snúinn
viðureignar vegna erfiðra veðra og hversu torsótt leiðin
að rótum hans er.
Oftast er fylgt vegarslóða norðan fjallsins Strúts, sem
liggur að Torfabæli með fallegu tjaldstæði við snotran
læk. Fyrstu brekkurnar upp á stall Eiríksjökuls eru
brattar og lausar í sér, en síðan minnkar brattinn og
jökulurð tekur við og eftir það jökullinn sjálfur. Sumum
finnst hann endalaus en samt eru aðeins 3 kílómetrar
að tindinum. Reyndar getur verið erfitt að sjá hvenær
hæsta punktinum er náð á ávalri jökulbungunni, en
með því að ganga í lítinn hring efst sést vel í allar áttir,
yfir Langjökul, Þórisjökul, Ok og Húsafell. Á jöklinum
geta ferða- eða fjallaskíði komið sér vel, sérstaklega í
vorferðum, en flestir kjósa þó tvo jafn fljóta. Skynsam-
legt er að halda sömu leið til baka að Torfabæli og fylgja
síðan vegarslóðanum norður fyrir Strút. Þessi torfæri
vegarslóði í Hallmundarhrauni er afar seinfarinn og
eiginlegra f ljótlegra að ganga hann en aka. Fjallahjól
eru einnig hentug eða að gera eins og útilegumaðurinn
Eiríkur, sem slapp lifandi og fæti styttri úr Surtshelli
með því að beita fyrir sig handahlaupum. n
Baldin jökulbunga
Eiríksjökull séður af Geitlandsjökli, sem er hluti Langjökuls. Myndin er tekin snemma vors þegar stallur fjallsins var hulinn snjó og þvi samlitur jökulhettunni. MYNDIR/ÓMB
Stallur Eiríks-
jökuls er
móbergsstapi
sem myndaðist
undir ísaldar-
jöklinum. Skrið-
urnar upp
stallinn eru
býsna brattar og
lausar í sér.
Horft úr brekkum Eiríksjökuls yfir Borgarfjörð.
FÓKUS Á HJARTA LANDSINS 24. júní 2021 FIMMTUDAGUR
Ólafur Már
Björnsson,
augnlæknir og
ljósmyndari
Tómas
Guðbjartsson,
hjartaskurð
læknir og náttúru
unnandi