Fréttablaðið - 24.06.2021, Page 19
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FIMMTUDAGUR 24. júní 2021
Heilbrigð melting er
grunnur að góðri heilsu
Heilsan er dýrmætust
www.eylif.is
Auður Marín Adolphsdóttir er með mörg járn í eldinum. Hún leggur stund á nám í hagfræði og stjórnun, vinnur hjá Fjársýslu ríkisins og býður gesti velkoma á
IceDocs á Akranesi. Auður Marín fylgist með tískunni en lætur tískubylgjur ekki stjórna sér, heldur klæðist því sem henni sjálfri finnst flott. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ég klæðist því sem gleður mig
Auður Marín Adolphsdóttir er 21 árs háskólanemi, sem starfar hjá Fjársýslu ríkisins í sumar
auk þess sem hún sér um gestastofuna fyrir heimildamyndahátíðina IceDocs sem var sett í
gær. Auður Marín hefur gaman af tísku og klæðist því sem henni líður vel í. 2
Minnismerki um Nínu Tryggvadótt-
ur stendur á planinu við aðalinngang
Kjarvalsstaða. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
johannamaria@torg.is
Kjarvalsstaðir bjóða í kvöld upp
á skemmtilega kvöldgöngu á
löngum fimmtudegi. Fjöldi safna
og sýningastaða býður upp á
lengdan opnunartíma síðasta
fimmtudagskvöld hvers mánaðar.
Gangan hefst klukkan 20.00 við
verk Sigurjóns Ólafssonar, Minnis-
merki um Nínu Tryggvadóttur,
fyrir framan Kjarvalsstaði. Þaðan
verður gengið um Klambratún.
Meðal listaverka á Klambratúni
eru Rek (1990) eftir Kristin E.
Hrafnsson og Reykjavíkurvarðan
(1970) eftir Jóhann Eyfells, sem
verða skoðuð sérstaklega.
Í leiðsögninni verður rætt um
samspil listaverka og umhverfis í
ljósi sögunnar og þeirrar þróunar
og breytinga sem fram undan eru
á svæðinu. Meðal framkvæmda
sem eru í vinnslu er nýtt torg
sem tengir betur Kjarvalsstaði og
Klambratún. Fyrirhugaðar eru
framkvæmdir sem snúa að auknu
aðgengi að nýju útisvæði sunnan
við Kjarvalsstaði og að færa til
stíga, með það að markmiði að
auka aðgengi fyrir alla.
Ókeypis í göngurnar
Kvöldgöngur eru viðburðaröð sem
Borgarbókasafnið, Borgarsögusafn
Reykjavíkur og Listasafn Reykja-
víkur standa fyrir. Göngurnar fara
fram á fimmtudagskvöldum yfir
sumarið. Þátttaka er ókeypis en
fólk er vinsamlegast beðið um að
skrá sig í göngurnar á heimasíðum
viðkomandi safna, að þessu sinni,
listasafnreykjavíkur.is. ■
Kvöldganga
um Klambratún
KOMIN
AFTUR!