Fréttablaðið - 24.06.2021, Síða 26
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@
frettabladid.is
„Töfrarnir við starfið eru við-
skiptavinirnir. Að geta hjálpað
fólki að líða vel í eigin skinni og
svo tengslin sem myndast á milli
hársnyrtisins og kúnnans. Stofan
okkar er beint á móti Grensás-
deildinni og við fáum oft og
iðulega fólk þaðan inn á stofuna
okkar, og það er dásamlegt að geta
hjálpað fólki sem hefur kannski
ekki farið í klippingu lengi, að líða
eins og því sjálfu á ný,“ segir Krist-
jana Ólöf Árnadóttir, hársnyrtir
á hársnyrti- og förðunarstofunni
LaBella í Furugerði 3.
Kristjana, sem er fædd og uppalin
í Kópavogi, hóf störf á LaBella þegar
hún fór á samning í hársnyrtinám-
inu og hefur unnið þar frá útskrift,
eða í tæp tvö og hálft ár.
„Ég ákvað ekki fyrr en í 10. bekk
að fara í hársnyrtinám og hafði í
raun ekkert pælt í því fyrr en ég fór
á kynningu um námið og hélt að
það myndi henta mér vel. Þegar
ég byrjaði í náminu uppgötvaði
ég almennilega að háriðnin væri
í fjölskyldunni, því afi minn var
rakari og kenndi hárskurð í Iðn-
skólanum í Reykjavík á sínum
tíma, en hann dó löngu áður en ég
fæddist,“ upplýsir Kristjana.
Þurfti tvo hárlakksbrúsa í fermingarkrullurnar
Kristjana Ólöf
segir kúnnana
mest heillandi
við starfið.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Verkfræðineminn Hildur Björg Jónsdóttir með splunkunýtt permanent sem Kristjana setti í hár hennar í vikunni.
Hársnyrtirinn Kristjana Ósk
Árnadóttir uppgötvaði að afi
hennar hafði kennt hárskurð
fyrir hennar tíð, þegar hún
fann sína fjöl í hárinu. Hún
segir hártískuna í sumar
einfalda og að permanent-
krullur séu aftur í móð.
Hennar fyrsta minning um að
vera fín um hárið var á fermingar-
daginn.
„Það var í fyrsta skipti sem ég
fór í alvöru greiðslu. Ég var með
svo sítt og þykkt hár að það þurfti
tvo hárlakksbrúsa svo krullurnar
héldust í hárinu, en þær voru þó
allar farnar úr mér um kvöldið.“
Krullur, fléttur og snúðar
Kristjana segir allan gang á því
hvort fólk hafi gert upp við sig
hvernig klippingu eða hárgreiðslu
það vill þegar það sest í stólinn hjá
henni.
„Sumir vita upp á hár hvað
þeir vilja og hvað þeim fer best, á
meðan aðrir vilja endilega breyta
til og leyfa mér að gera það sem
mér þykir klæða þá best.“
Hún segir hártískuna í sumar
vera með einfaldara móti.
„Við erum flest að fara að hitta
fólkið okkar í sumar, sumt eftir
langan tíma og ég held að fólk vilji
frekar verja tímanum með sínum
nánustu en að gera flóknar upp-
greiðslur. Léttar krullur eða fléttur
og snúðar til að losna við hárið úr
andlitinu er málið, og ljósar strípur
eru alltaf vinsælar yfir sumar-
tímann.“
Permanent færir líf í hárið
Permanent-krullur sækja líka í sig
veðrið í sumar.
„Grófar og óreglulegar krullur í
sítt hár gefa skemmtilega hreyfingu
í hárið. Permanent er mikil og
skemmtileg breyting og hefur þann
kost að það færist mikið líf í hárið,
hvort sem krullurnar eru stórar
og grófar, eða þéttar og smáar.
Permanent er varanleg breyting á
hárinu og helst þar til það er klippt
úr, en það dofnar með tímanum.
Fólki með sítt hár dugar kannski að
fara tvisvar á ári, á meðan mann-
eskja með stutt hár þarf að fara
oftar, gjarnan á þriggja mánaða
fresti, því ella væri búið að klippa
allt permanentið úr,“ útskýrir Krist-
jana og heldur áfram:
„Tími þeirra náttúrulega krull-
hærðu er svo sannarlega runninn
upp og óreglulegar, stórar krullur
sem gefa góða lyftingu í hárið
en eru ekki of þéttar, eru hæst-
móðins.“
Herrar sýna krullurnar líka
Herrarnir vilja líka tolla í tískunni
yfir sumarmánuðina.
„Síðustu árin hafa mjög stuttar
herraklippingar verið í tísku en
undanfarna mánuði hafa klipp-
ingarnar lengst og krullur fengið
að líta dagsins ljós. Þá fær íslenski,
skollitaði liturinn oftar að njóta
sín, en er gjarnan frískaður upp
með ljósum strípum hjá báðum
kynjum, sérstaklega yfir sumarið,“
segir Kristjana. n
Samband hár-
snyrtisins og
kúnnans er heillandi.
Sumir vita upp á hár
hvað þeir vilja og fer
þeim best. Aðrir vilja
breyta til og leyfa mér að
gera það sem mér þykir
klæða þá best.
4 kynningarblað 24. júní 2021 FIMMTUDAGURHÚÐ OG HÁR