Fréttablaðið - 24.06.2021, Page 30
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@
frettabladid.is
Blágrænir þörungar eru undra
efni fyrir húðina, samkvæmt
niðurstöðum fjölda rannsókna.
Þá er bæði hægt að taka inn í
töflu eða duftformi eða bera þá
beint á húðina.
Blágrænir þörungar eru einfruma
blágerlar sem finnast bæði í vatni
og saltvatni. Þekktustu tegundirn-
ar eru spirulina og chlorella. Þeirra
hefur verið neytt í aldaraðir vegna
hás vítamín- og steinefnainni-
halds. Spirulina inniheldur einnig
mjög hátt hlutfall próteins, sem er
sjaldgæft þegar um plöntu er að
ræða. Mörg hundruð rannsóknir
hafa verð gerðar á spirulinu sem
sýna fram á jákvæð áhrif hennar
fyrir heilsuna.
Nýlegar rannsóknir á blágræn-
um þörungum hafa leitt í ljós enn
meiri ávinning af notkun þeirra
fyrir húðina en áður var talið.
Andoxunarefnin í þörungunum og
efnasamsetning þeirra virðast vera
töfraformúla fyrir húðina enda eru
þeir mikið notaðir í ýmiss konar
snyrtivörur sem eiga að vernda
húðina og seinka öldrun hennar.
Rannsóknir hafa meðal annars
sýnt að andoxunarefnin í blá-
grænum þörungum, sem gefa þeim
þennan djúpa, grænbláa lit, hjálpa
til við að berjast gegn sindurefnun.
Sindurefnin geta skaðað erfða-
efni frumanna og valdið öldrun
húðarinnar.
Andoxunarefnin í blágrænum
þörungum geta líka dregið úr
bólgum sem ýta undir unglinga-
Blágræna undraefnið
Blágræna
þörunga eða
efni úr þeim má
finna í fjölda
húðvara.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Það er gott að
blanda dufti
úr blágrænum
þörungum út í
hollan þeyting.
Blágræna þörunga má finna bæði í saltvatni og ferskvatni.
bólur og húðsjúkdóma. Ein rann-
sókn leiddi í ljós að astaxanthinið
í þörungunum getur dregið úr
bólguefnasamböndum og hægt á
húðhrörnun.
Getur jafnað húðlit
Sólarskemmdir, unglingabólur og
öldrun geta leitt til litabreytinga
í húðinni svo húðliturinn verður
ójafn. Vísindamenn hafa komist
að því að ensímið týrósínasi
getur hjálpað til við að draga úr
ójöfnum húðlit. Þetta er vegna
þess að týrósínasi sem er til staðar í
vefjum plantna og dýra hefur áhrif
á framleiðslu melaníns, litarefnis
húðarinnar. Nýlegar rannsóknir
benda til þess að blágrænir þör-
ungar geti virkað eins og náttúrlegir
hemlar fyrir týrósínasa og geta þeir
því hugsanlega dregið úr dökkum
blettum á húðinni.
Húð fólks verður yfirleitt fyrir
miklu áreiti í daglegu lífi. Meðal
annars vegna mengunar, streitu
og vegna eiturefna í umhverfinu.
Þetta getur valdið húðinni skaða,
þurrkað hana og valdið hrukku-
myndun.
Þegar húðin er sterk og vel varin
af náttúrulegum olíum verður hún
síður fyrir skaða frá umhverfinu.
Hún getur betur hrint frá sér eitur-
efnum og bakteríum og þornar
síður og er teygjanlegri.
Rannsóknir hafa sýnt að með-
ferð með blágrænum þörungum á
stofnfrumum manna jók merki í
frumunum sem gefa til kynna vel
varða húð. Það er að segja, með-
ferðin styrkti húðfrumur. Með-
ferðin dró einnig úr vökvatapi sem
dregur úr öldrun húðarinnar.
Þessar rannsóknir styðja það sem
fólk hefur haft trú á frá örófi alda,
að blágrænir þörungar séu sann-
kallað undraefni.
Það er tiltölulega auðvelt að finna
vörur sem innihalda blágræna
þörunga. Þær fást til dæmis í apó-
tekum, heilsubúðum eða á netinu.
Blágræna þörunga er hægt að
taka inn sem duft, sem hægt er að
blanda út í þeyting eða grænan safa.
Margar húðvörur eins og krem og
skrúbbar innihalda einnig efni úr
blágrænum þörungum. Það er því
úr nógu að velja og um að gera að
prófa og sjá hvort árangur náist.■
Andoxunarefnin í
blágrænum þör
ungum geta líka dregið
úr bólgum sem ýta undir
unglingabólur og húð
sjúkdóma. Ein rannsókn
leiddi í ljós að astaxan
thinið í þörungunum
getur dregið úr bólgu
efnasamböndum og
hægt á húðhrörnun.
8 kynningarblað 24. júní 2021 FIMMTUDAGURHÚÐ OG HÁR