Fréttablaðið - 24.06.2021, Page 36
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa
@frettabladid.is
Nú er loksins runninn upp sá
tími ársins að hægt er að skella
sér í útilegu. Það er engin ástæða
til að gefa tískuna upp á bátinn
þótt gist sé í tjaldi og hægt er að
lúkka vel þótt skynsemin ráði
för.
Mikilvægt er að vera við öllu búinn
á Íslandi, allan ársins hring, líka
yfir hásumarið. Þótt veðurspáin sé
fín getur hún breyst á svipstundu
og þess vegna er eins gott að vera
vel búinn í útilegunni. Það er samt
engin ástæða til að skilja smart-
heitin eftir heima, því það er hægt
að vera töff í útilegu án þess að
frjósa úr kulda.
Ull og flís getur verið smart
Það sem er bráðnauðsynlegt með í
útileguna er vatnsheldur fatnaður
og hlý föt frá toppi til táar, helst úr
ull eða flís. Það hentar til dæmis
alls ekki að vera í bómullarfatnaði
í útilegu, því ef bómullin blotnar
er hún lengi að þorna og kælir
líkamann. Ullin er hins vegar fljót
að verða þurr og heldur alltaf hita,
hvort sem hún er þurr eða blaut.
Svipað má segja um flísið. Það er
hægt að fá alls konar fallegar ullar-
peysur og flíspeysur líka.
Best er að vera alltaf í þunnum
ullarbol innst og klæða sig í
nokkrum lögum til að verða aldrei
kalt.
Sítt föðurland úr mjúkri ull er
líka eitthvað sem ekki má gleyma
heima en það heldur vel á manni
hita. Það sést heldur ekki í gegnum
önnur föt en það má fá flott föður-
land með mynstri ef ætlunin er að
láta það sjást.
Regnkápan má ekki gleymast
Regnkápan verður að vera með í
för. Rauðar regnkápur, eða regn-
kápur í skærum litum, eru málið í
ár, en þær eru til í mörgum síddum.
Óneitanlega er fallegt að vera í
síðri regnkápu, og hana má nota
hvort sem það er rigning eða þurrt
í veðri. Gott er að vera í léttri regn-
kápu með góðri öndun. Það er líka
hægt að vera með létta regnslá í
Tískan í útilegunni
Íslenska sum-
arið getur verið
vætusamt og
þá er eins gott
að vera í rétta
fatnaðinum.
Góð regnkápa
er nánast
skyldueign fyrir
útilegurnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Góð stígvél gera verið mjög smart. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Íslenska lopapeysan fer aldrei úr
tísku. Hún er ekki aðeins falleg
heldur mjög nytsamleg flík.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Loksins er hægt
að fara í útlegu,
en margir hafa
beðið þess með
óþreyju frá því
í vor.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
töskunni og henda henni yfir sig ef
það fer að rigna.
Allar útivistarbúðir landsins
eru með góða og smekklega úti-
vistarjakka sem halda vel vatni og
vindum. Það er gott að hafa í huga
að þeir hafi góða öndun.
Skófatnaðurinn á að halda vatni
Nauðsynlegt er að taka með stígvél
eða gúmmískó í útileguna. Hægt
er að fá há og smart stígvél í fal-
legum litum og gúmmískórnir
standa alltaf fyrir sínu. Einnig eru
vatnsheld, lág stígvél alltaf flott en
þau fást frá mörgum góðum tísku-
merkjum.■
Óneitanlega er
fallegt að vera í síðri
regnkápu og hana má
nota hvort sem er í regni
eða þurru veðri.
6 kynningarblað A L LT 24. júní 2021 FIMMTUDAGUR