Fréttablaðið - 24.06.2021, Síða 47
Kynslóðir, er yfirskrift
Sumartónleika í Skálholti sem
haldnir verða 1.–11. júlí. List-
rænir stjórnendur hátíðar-
innar eru Ásbjörg Jónsdóttir
og Birgit Djupedal.
kolbrunb@frettabladid.is
Sumartónleikar í Skálholti eru nú
haldnir í 46. sinn, en hátíðin er elsta
tónlistarhátíð landsins og elsta bar-
okkhátíð á Norðurlöndum.
„Á þessari hátíð erum við að tefla
saman tónskáldum af mismunandi
kynslóðum og erum um leið að
fagna öllum kynslóðunum sem hafa
komið að sumartónleikum frá upp-
hafi. Hátt í sjötíu f lytjendur koma
nú fram á hátíðinni, þar á meðal
hópar frá Danmörku, Finnlandi og
Svíþjóð,“ segir Ásbjörg.
Staðartónskáld eru að þessu
sinni Haukur Tómasson og Eygló
Höskuldsdóttir Viborg. Þau semja
verk fyrir hátíðina sem flutt verða
á lokatónleikunum. Eldri verk eftir
þau verða flutt á opnunartónleikum
hátíðarinnar.
Ný verk eftir Báru Grímsdóttur
og Huga Guðmundsson verða frum-
flutt á hátíðinni. Hljómeyki f lytur
verk Báru en kórinn kemur fram
með nýjum stjórnanda, Hreiðari
Inga Þorsteinssyni. Sönghópurinn
Cantoque og hin dansk/sænska
Camerata Öresund og finnska bar-
okksveitin Ensemble, f lytja meðal
annars verk Huga.
Dúó Freyja, mæðgurnar Svava
Bernharðsdóttir og Rannveig Marta
Sarc, flytja sex verk á hátíðinni, sem
þær létu sérstaklega semja fyrir sig,
öll verkin eru eftir konur. Þær koma
einnig fram á lokatónleikunum.
Barokk á harmóníku
Meðal annarra viðburða má nefna
að Ásta Soffía Þorgeirsdóttir harm-
óníkuleikari spilar barokktónlist á
hátíðinni. „Það er nokkuð sérstakt
að spila barokktónlist á harmóníku
og verður spennandi að heyra í Skál-
holtskirkju,“ segir Ásbjörg. „Það er
mikið af íslenskum harmóníkuleik-
urum að stíga fram. Harmóníkan er
að ganga í endurnýjun lífdaga.“
Tónlistarhópurinn Gadus Mor-
hua heldur tónleika, en þar má
meðal annars heyra í langspili og
barokksellói.
Fjölskylduviðburðir verða á dag-
skránni. Bergþór Pálsson og Guðný
Einarsdóttir f lytja tónlistarævin-
týri, en þar er orgelið kynnt. Guðný
sér einnig um listgjörning, en þar fá
börn að setja saman lítið orgel og
geta síðan skemmt sér við að leika
á það.
Stækkar tengslanet
Ásbjörg segir stemninguna á hátíð-
inni vera dásamlega. „Það er alltaf
sérstakur andi yfir Skálholti. Þarna
koma listamenn saman og f lestir
gista í nokkrar nætur. Þetta stækkar
tengslanetið hjá mörgum.“
Ekki er selt inn á tónleikana.
„Þannig hefur þetta verið frá upp-
hafi. Það er litið svo á að allir eigi
að geta sótt gæðatónleika í fallegu
umhverfi,“ segir Ásbjörg. ■
Á þessari hátíð erum
við að tefla saman
tónskáldum af mis-
munandi kynslóðum.
Ásbjörg Jónsdóttir er annar tveggja listrænna stjórnenda Sumartónleika í Skálholti. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Sérstakur andi í Skálholti
kolbrunb@frettabladid.is
Þýska forlagið Kiepenheuer &
Witsch hefur tryggt sér réttinn á
verðlaunaglæpasögu Evu Bjargar
Ægisdóttur, Marrið í stiganum.
Mörg af helstu útgáfufélögum Þjóð-
verja bitust um réttinn á bókinni á
æsispennandi uppboði sem lauk
með því að KiWi, eins og forlagið er
gjarnan kallað, bauð best.
Marrið í stiganum er tilnefnt til
CWA Daggers-verðlaunanna í Bret-
landi, en það eru hin virtu samtök
breskra glæpasagnahöfunda sem
standa að verðlaununum. Þau eru
veitt í ýmsum flokkum, þar á meðal
„nýtt blóð ársins“ eða frumraun árs-
ins („New Blood“). ■
Barist um Evu Björgu
Eva Björg Ægisdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
kolbrunb@frettabladid.is
Jón Gnarr verður í hlutverki Skugga-
Sveins í uppsetningu Leikfélags
Akureyrar á leikritinu.
Marta Nordal, leikhússtjóri Leik-
félags Akureyrar, mun leikstýra
Skugga-Sveini. „Það er hreint út
sagt stórkostlegt að fá náttúruaflið
og listamanninn Jón Gnarr í hlut-
verk Skugga-Sveins, einnar frægustu
persónu íslenskra leikbókmennta,“
segir Marta.
Leikritið Skugga-Sveinn eftir
þjóðskáldið Matthías Jochumsson
var fyrst sett á svið árið 1862. Áætl-
uð frumsýning Leikfélags Akur-
eyrar er um miðjan janúar 2022. ■
Jón Gnarr verður Skugga-Sveinn
Jón Gnarr leikari. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
MJÓLKURBIKAR KVENNA
8 LIÐA ÚRSLIT
Tryggðu þér áskrift á stod2.is
Í DAG
17:50
Menning 27FIMMTUDAGUR 24. júní 2021