Fréttablaðið - 19.06.2021, Side 2
Ætli það sé sól að finna á Akureyri?
Það er sífellt algengari sjón að sjá ferðamenn spóka sig um í Reykjavík þessa dagana, þegar flugfélögin eru búin að taka upp áætlunarflug til Íslands. Þessir
ferðamenn virtust vel undir íslenska veðráttu búnir vopnaðir regnhlífum á Skólavörðustíg og létu rigninguna ekki trufla sig. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Joniada Dega segist viss um
að hún hefði ekki fengið sömu
tækifæri til náms í heima-
landi sínu, Albaníu, og henni
hafa hlotnast hér á Íslandi.
Hún útskrifast í dag, 23 ára.
með meistaragráðu í heil-
brigðisverkfræði.
birnadrofn@frettabladid.is
SAMFÉLAG „Ég sé framtíð mína fyrir
mér á Íslandi,“ segir Joniada Dega
heilbrigðisverkfræðingur. Joniada
fæddist í Albaníu en flutti til Íslands
ásamt fjölskyldu sinni, sem f lúði
pólitískar ofsóknir í heimalandi
sínu árið 2015. Í febrúar ári síðar var
fjölskyldunni neitað um hæli hér á
landi og send aftur til Albaníu í maí
sama ár, Joniada hafði þá stundað
nám við Flensborgarskólann.
Í júlí 2016 fékk fjölskylda Joniödu
dvalarleyfi til árs í senn, en börnin
hafa þó þurft að sækja um fram-
lengingu á dvalarleyfi á hálfs árs
fresti. Í dag útskrifast Joniada Dega
með meistaragráðu í heilbrigðis-
verkfræði frá Háskólanum í Reykja-
vík, aðeins 23 ára gömul.
„Að mínu mati er heilbrigðisverk-
fræði hlekkur á milli verkfræði og
læknisfræði og höfðaði til mín þar
sem þetta er starf sem stuðlar að því
að gera heiminn að betri stað,“ segir
Joniada. Þá segir hún menntunina
fela í sér fjölbreytta starfsmögu-
leika, svo sem við kennslu eða rann-
sóknir á sjúkrahúsum, hjá eftirlits-
stofnunum eða lyfjafyrirtækjum.
Joniada hefur nú þegar fengið
starf við rannsóknir hjá Svefnbylt-
ingunni, þverfaglegu rannsóknar-
verkefni við Háskólann í Reykjavík.
Hún segist spennt fyrir starfinu,
sem sé þó háð því að hún fái hér
atvinnuleyfi. „Ég er í þjálfun núna á
meðan ég bíð eftir leyfi Útlendinga-
stofnunar til að hefja störf þar í sam-
ræmi við lög.“
Joniada segist líta á Ísland sem
heimili sitt og vonast til að mennt-
un hennar geti nýst íslensku heil-
brigðiskerfi. Meistaraverkefni sitt
vann Joniada í samstarfi við Blóð-
bankann þar sem hún spáði fyrir
um þörf og framboð á blóði fyrir
bankann.
Niðurstöður verkefnisins sýna
fram á að árið 2028 verði eftirspurn
eftir rauðum blóðkornum orðin
meiri en framboð. Þó muni aukning
kvenblóðgjafa smám saman valda
framboðsskorti síðar en spáð var.
„Ég vil nota tækifærið og hvetja
konur til að gefa blóð,“ segir Joniada
og bætir við að konur séu einungis
30 prósent þeirra sem gefi blóð á
móti 70 prósentum karla.
Spurð að því hvort hún telji að
hún hefði getað menntað sig á
sama hátt í Albaníu og hér á Íslandi
segir Joniada svo ekki vera. „Ég hef
fengið tækifæri til þess að læra í
einum virtasta háskóla landsins
hjá af burðakennaraliði sem veitir
gagnvirka kennslu með því að nota
nútímalegar aðferðir og verkfæri,“
segir hún.
„Reynsla mín á Íslandi er orðin að
minningu sem mun endast alla ævi
og ég er þakklát fyrir að vera hér,“
segir Joniada. n
Útskrifast úr HR eftir að hafa
flúið ofsóknir í heimalandi
Joniada vann verkefni sitt í samstarfi við Blóðbankann. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Reynsla mín á Íslandi
er orðin að minningu
sem mun endast alla
ævi og ég er þakklát
fyrir að vera hér.
Joniada Dega heilbrigðisverk-
fræðingur.
GF ISABEL 4*
GISTING MEÐ HÁLFU FÆÐI
WWW.UU.IS | 585 4000 | INFO@UU.IS
COSTA ADEJE, TENERIFE
23. - 30. JÚNÍ
VERÐ FRÁ:99.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
BEINT FLUG TIL TENERIFE
INNIFALIÐ
FLUG, GISTING &
HÁLFT FÆÐI
benediktboas@frettabladid.is
VIÐSKIPTI „Þau eru búin að vera að
leigja hjá okkur við góðan orðstír og
við erum ekki búin að ákveða næstu
skref. Hvort það verði auglýst eftir
nýjum leigutaka eða lokað alfarið,“
segir Jón Árni Ólafsson, sviðsstjóri
hjá Olís. Í vikunni var tilkynnt að
Litlu kaffistofunni yrði lokað í lok
júní.
Katrín Hjálmarsdóttir hefur séð
um reksturinn í fimm ár. „Við erum
orðin sátt við þessa niðurstöðu.
Við eigum stóran kúnnahóp sem
verður söknuður af. En við sjáum
ekki grundvöll til að halda áfram,“
segir Katrín, sem hugsar með hlýhug
til síðustu fimm ára. „Ég hef hitt og
kynnst fullt af fólki og kunnings-
skapurinn náð lengra en fyrirtækið.“
Katrín ásamt fjölskyldu sinni var,
áður en þau tóku við rekstrinum,
fastagestur á Litlu kaffistofunni.
Hún þekkir því vel til. „Okkur
fannst gott að stoppa hjá Stebba. Við
komum oft og fengum okkur brauð
og þetta var svolítið eins og að koma
í heimsókn í sveitina. Við reyndum
að halda í það eins og við gátum og
bæta við,“ segir hún.
Jón Árni bætir við að fyrir liggi
að kaffistofan verði eitthvað lokuð
þegar Katrín og fjölskylda skella í lás
í lok mánaðar. n
Óvíst með framtíð Litlu kaffistofunnar
Litlu kaffistofunni verður lokað í lok
mánaðar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Myndin af dreifimiðanum kemur frá
Kvennasögusafninu á Landsbóka-
safni. Ingibjörg H. Bjarnason, fyrsta
konan á þingi er höfundur miðans.
ingunnlara@frettabladid.is
SAMFÉLAG Kjölur Fréttablaðsins er
með sérstöku sniði í tilefni af kven-
réttindadeginum.
Vitnað er í dreifimiða úr kosn-
ingabaráttu kvennaframboðsins
1922, en eins og margir vita skiluðu
kosningarnar 1916 engu fyrir konur.
Fjölmiðlar sögðu á sínum tíma að
kvennaframboð væri út í hött, þar
sem konur væru óreyndar í stjórn-
málum, en í dag birtast skilaboð
baráttukvennanna á kili mest lesna
dagblaðs landsins.
„Hvaðanæva berast fregnir af fylgi
C-listans. Trúið eigi þeim, sem annað
segja. Konur! Stöndum saman.“
Hægt er að lesa náið um baráttu
kvenna í stórvirkinu Konur sem
kjósa eftir Kristínu Svövu Tómas-
dóttur, Ragnheiði Kristjánsdóttur,
Erlu Huldu Halldórsdóttur og Þor-
gerði H. Þorvaldsdóttur. n
Kjölurinn heiðrar
konur sem kjósa
2 Fréttir 19. júní 2021 LAUGARDAGUR