Fréttablaðið - 19.06.2021, Page 20

Fréttablaðið - 19.06.2021, Page 20
bók. „Það bjargaði mér og ég fór frá því að fá 2 í einkunn á söguprófi í að fá 9,8.“ Greind með geðhvarfasýki Eftir að hafa útskrifast úr háskóla lygndi sjóinn og allt var á uppleið. „Næstu tvö ár var ég edrú en fann samt að það var eitthvað að. Ég fór mikið upp og niður, ég vaknaði og allt var geðveikt og ég var með svakalegan drifkraft og svo vaknaði ég daginn eftir og sá ekki tilgang í að fara á fætur.“ Sveif lukenndar tilfinningarnar skýrðust síðan þegar Ragga var greind með geðhvarfasýki tvö. „Að greinast með bipolar útskýrði margt fyrir mér, vegna þess að fólk með þennan sjúkdóm á alls ekki að drekka.“ Taugaboðin í heilanum stangist á hvert við annað og kalli iðulega fram maníu þegar áfengi er haft um hönd. „Yfirleitt þegar ég er í maníu verð ég rosalega sjálfhverf. Í þessu ástandi umturnast ég og verð skel af sjálfri mér og breytist í einhvern djöful.“ Viðeigandi lyf kölluðu fram áður óþekktan stöðugleika og það var þá sem Ragga byrjaði í rappsveitinni Reykjavíkurdætrum sem hafði lengi verið hennar uppáhaldshljómsveit. „Ég sendi lag á eina þeirra sem var þvílíkt skref fyrir mig þar sem ég hafði eiginlega ekki gefið neitt út.“ Ragga hafði þó lengi verið þekkt nafn í plötusnúðaheiminum hér á landi og því ekki að undra að dæt- urnar tóku vel í uppástunguna. Töluvert stress hafi fylgt því að hitta hljómsveitina í fyrsta skipti. „Þær voru ekki vinkonur mínar á þessum tíma svo ég var allt í einu að fara að vinna með stelpum sem ég leit ótrúlega mikið upp til en þekkti ekki neitt.“ Úr grúppíu í hljómsveit Úr samstarfinu kom lagið Reppa heiminn sem sló rækilega í gegn og ekki leið á löngu þar til Röggu var boðið að vera fastur meðlimur í hljómsveitinni. „Heppilega fíluðu þær mig en ég var enn þá geðveikt lítil í mér því þær voru bara stjörn- urnar mínar.“ Fljótlega fór Ragga úr því að vera grúppía í að vera vinkona og ferð- aðist um allan heim með sveitinni. „Ég var eiginlega í sjokki þegar við stóðum allt í einu fyrir framan sex þúsund manns að spila. Það var tryllt.“ Lífið lék við Röggu sem taldi það því öruggt að byrja að fikta aftur með áfengi. „Við tók þriggja mánaða tímabil þar sem ég hætti að taka lyfin mín og fór í sturlaða maníu,“ viðurkennir Ragga alvarleg. Tónlistarhátíðin Sónar varð síðan til þess að Ragga klessti á vegg. „Ég var búin að vera á þriggja daga fyll- eríi þegar ég mætti í hljóðprufu um morguninn.“ Hljómsveitarmeðlimir sögðu henni að fara heim að hvíla sig og koma aftur um kvöldið ef hún treysti sér til. „Ég kom og spilaði mitt versta gigg í lífinu,“ segir Ragga og strýkur ennið. Textinn hafi gleymst og sum lögin líka. „Eftir að hafa jarmað þarna á sviðinu áttaði ég mig á því að ég var búin að missa tökin og hætti aftur að drekka.“ Ragga mælir ekki með því að fólk með greiningar á pari við hennar reyni að drekka. „Fyrir þau sem halda að maður geti stjórnað þessu vil ég segja af minni reynslu að það er ekki hægt. Það hreinlega virkar ekki.“ Árið 2018 gaf Ragga út plötuna Bipolar sem fjallar um geðhvarfa- sýkina. „Þessi plata er svolítið sveif lukennd í gegnum maníu og depurð og sambandsslit og mjög „random“ plata með ekkert „con- cept“ eða neitt, nema bara ég fer upp og ég fer niður.“ Plata Röggu fékk aldrei sömu útreið og tónlist Reykjavíkurdætra sem þurftu að þola ófá opinber skítköst. „Ég hef aldrei fengið álíka athugasemdir á Youtube og Reykja- víkurdætur.“ Við myndbönd rapp- sveitarinnar hrannist ávallt inn hrottalegar athugasemdir. „Margir sem segja að það eigi að hópnauðga meðlimum bandsins og að tónlistin sé eins og að vera nauðgað í eyrun og annað ógeð.“ Mögulega komi það illa við fólk að sjá svo mikið af konum gera tónlist saman. „Þjóðin hefur málað íslenska kvenrappara sem lélega rappara og við fáum ekki sömu tækifæri og strákarnir.“ Uppgötvaði sama kynið Í menntaskóla tók lífið nokkuð óvænta stefnu eftir að Ragga kyssti stelpu í fyrsta skipti. „Það var svo æðislegt og þá áttaði ég mig á ástæð- unni fyrir því að mér fyndist stelpur svona æðislegar.“ Allir strákar hafi bliknað í samanburði við þær. „Það var ákveðið tískufyrirbæri þá að stelpur voru að kyssast á skólaböllum og ég nýtti það tæki- færi út í ystu æsar.“ Stuttu síðar drap æskuástin á dyr. „Þá upp- götvaði ég lífið upp á nýtt. Við byrjuðum saman í laumi, enda feimnismál á þessum tíma, og vorum saman í nokkur ár.“ Þær vissu aðeins um eitt lesbískt par í Kef lavík og héldu því sambandi sínu leyndu fyrir foreldrum sínum. Ragga þurfti þó aldrei að koma út úr skápnum fyrir Ellu mömmu sinni og pabba sem komust að hinu sanna upp á eigin spýtur. Það atvikaðist þannig að það upphófst rifrildi milli Röggu og móður hennar, sem end- aði á því að hún rauk út í skúr þar sem herbergið hennar var staðsett. „Ég bað þá kærustuna mína um að koma yfir og við fórum síðan að sofa og gerðum það sem því tilheyrir.“ Mamma hennar fékk á þeim tímapunkti samviskubit og ákvað að kíkja út í skúr. „Hún opnar þá dyrnar, lokar þeim aftur, fer til pabba og segir honum að hún haldi að ég og vinkona mín séum að gera eitthvað saman.“ Þær upplýsingar hafi verið dregnar í efa svo Ella fékk föður hennar til að koma og leggja við hlustir hjá skúrnum. „Og þann- ig komast foreldrar mínir að því að ég og fyrsta kærastan mín vorum saman,“ segir Ragga hlæjandi, en hún hefur húmor fyrir atvikinu í dag. „Fjölskyldan mín hefur alltaf verið mjög opin og það hefur aldrei vottað fyrir fordómum.“ Ekki tóku allir upplýsingunum eins vel og flutti kærasta Röggu því í skúrinn til hennar. „Mömmu og pabba fannst það bara gaman.“ Úthverfadraumurinn Litríkasta tímabili í lífi Röggu er langt frá því að vera lokið, en henni hefur tekist að skapa sér nokkuð stöðugt líf í óstöðugum bransa. Tón- listin, plötusnúðagiggin og útvarpið svali sköpunarþránni og Ragga stýr- ir þáttum á KissFM alla virka daga. „Fyrir ári hefði verið hinn full- komni tími til að rústa öllu, því alltaf þegar velgengnin bankar upp á missi ég tökin.“ Sú varð þó ekki raunin og flutti Ragga úr miðbæn- um í Hafnarfjörðinn með kærustu sinni til þriggja ára. Þar keyrir hún um á Teslu, reynir að borða hollt og fylgja rútínu. „Ótrúlegt en satt, þótt mig langi til að verða Avicii-týpa af stórstjörnu í útlöndum og þrái sviðsljósið var þetta alltaf draumurinn, að eiga fjölskyldu, búa í fallegri íbúð og að allt væri rólegt í kringum mig,“ viðurkennir Ragga. „Ég er búin að læra af mistökum og núna hef ég of miklu að tapa til að leggja líf mitt að veði.“n „Yfirleitt þegar ég er í maníu verð ég rosa- lega sjálfhverf. Í þessu ástandi umturnast ég og verð skel af sjálfri mér. “ Mamma opnar þá dyrnar, lokar þeim aftur, fer til pabba og segir honum að hún haldi að ég og vinkona mín séum að gera eitthvað saman. Í LOFTINU Sækja frá SÆKTU NÝJA APPIÐ! LAUGARDAGA 16:00-18:30 VEISTU HVER ÉG VAR? 20 Helgin 19. júní 2021 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.