Fréttablaðið - 19.06.2021, Page 34

Fréttablaðið - 19.06.2021, Page 34
Tempra leitar að traustum og árangursdrifnum aðila með mikla samskiptahæfni til þess að hafa umsjón með öryggismálum og vinna að öryggisstefnu fyrirtækisins ásamt því að sjá um uppbyggingu, rekstur og þróun gæðakerfis hjá fyrirtækinu. Starfið heyrir beint undir framkvæmdastjóra. Starfssvið • Umsjón með öryggismálum og kerfisbundin vinna að umbótum • Ábyrgð á rekstri gæðakerfis, eftirfylgni og vinna að stöðugum umbótum • Innleiða og viðhalda öryggis- gæða- og umhverfisstjórnunarkerfi sem stenst alþjóðlegar vottunarkröfur, s.s. BRC, ISO 14001, ISO 45001 og CE vottanir • Umsjón með umhverfismálum • Umsjón með skráningu og úrvinnslu á frávikum • Skipulagning og umsjón með innri og ytri úttektum • Innkaup á öryggisbúnaði • Umsjón með áhættugreiningum og greining á ferlum • Fræðsla og ráðgjöf til starfsmanna um gæða- og öryggismál • Eftirlit og samskipti við opinbera aðila varðandi öryggis- og gæðamál • Önnur verkefni sem tengjast öryggis- og gæðamálum í fyrirtækinu Hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði matvæla- eða verkfræði • Þekking og reynsla af öryggisstjórnun, gæðastjórnun og rekstri gæðakerfa • Þekking á ISO 14001, ISO 45001, BRC og CE vottun er kostur • Góð samskiptafærni, frumkvæði, drifkraftur og áreiðanleiki • Góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti • Þekking og reynsla á Navision kostur Umsóknarfrestur er til og með 30. júní nk. Nánari upplýngar veitir Hlynur Atli Magnússon, hlynur@hagvangur.is Umsóknir með ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á hagvangur.is. Tempra framleiðir umbúðir til flutnings á ferskum matvælum og einangrun til byggingaframkvæmda úr frauðplasti. Fyrirtækið leggur áherslu á að veita hraða og örugga þjónustu, hafa ávallt á boðstólum vöru að jöfnum gæðum sem uppfyllir þau skilyrði sem til hennar eru gerð og leggur metnað sinn í að vera fremst á sínu sviði á Íslandi. Hjá Tempru starfa um 30 manns. Öryggis- og gæðastjóri hagvangur.is Íslenski dansflokkurinn óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra til að stýra daglegri starfsemi flokksins. Framkvæmdastjóri heyrir undir og vinnur náið með listrænum stjórnanda flokksins. Í boði er mjög áhugavert starf í lifandi og skapandi umhverfi. Helstu verkefni og ábyrgð • Umsjón með öllum fjármálarekstri flokksins • Samskipti við íslensk stjórnvöld, innlenda og erlenda samstarfsaðila • Ábyrgð á samninga- og áætlanagerð, stefnumótun og skýrslugerð • Umsjón með starfsmannamálum • Erlend og innlend samstarfsverkefni • Fjáraflanir • Önnur tilfallandi verkefni Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólapróf sem nýtist í starfi • Reynsla af fjármálum og rekstri • Reynsla af stjórnunarstörfum • Framúrskarandi samskiptahæfileikar • Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun • Góð íslensku- og enskukunnátta • Þekking og áhugi á menningarstarfi Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí nk Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd. Nánari upplýsingar um starfið veitir Stefanía Hildur Ásmundsdóttir, ráðgjafi, stefania@hagvangur.is Íslenski dansflokkurinn er sjálfstæð ríkisstofnun. Hlutverk hans er að sýna listdans, stuðla að nýsköpun í innlendri listdanssmíði og vera vettvangur til eflingar og framþróunar danslistar á Íslandi. Íslenski dansflokkurinn hefur byggt upp nafn og viðurkenningu á alþjóðlegum vettvangi á undanförnum árum. Listrænn stjórnandi er forstöðumaður dansflokksins og aðsetur er í Borgarleikhúsinu. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu flokksins www.id.is Framkvæmdastjóri hagvangur.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.