Fréttablaðið - 19.06.2021, Blaðsíða 34
Tempra leitar að traustum og árangursdrifnum aðila með mikla samskiptahæfni
til þess að hafa umsjón með öryggismálum og vinna að öryggisstefnu
fyrirtækisins ásamt því að sjá um uppbyggingu, rekstur og þróun gæðakerfis
hjá fyrirtækinu. Starfið heyrir beint undir framkvæmdastjóra.
Starfssvið
• Umsjón með öryggismálum og kerfisbundin vinna að umbótum
• Ábyrgð á rekstri gæðakerfis, eftirfylgni og vinna að stöðugum umbótum
• Innleiða og viðhalda öryggis- gæða- og umhverfisstjórnunarkerfi sem stenst
alþjóðlegar vottunarkröfur, s.s. BRC, ISO 14001, ISO 45001 og CE vottanir
• Umsjón með umhverfismálum
• Umsjón með skráningu og úrvinnslu á frávikum
• Skipulagning og umsjón með innri og ytri úttektum
• Innkaup á öryggisbúnaði
• Umsjón með áhættugreiningum og greining á ferlum
• Fræðsla og ráðgjöf til starfsmanna um gæða- og öryggismál
• Eftirlit og samskipti við opinbera aðila varðandi öryggis- og gæðamál
• Önnur verkefni sem tengjast öryggis- og gæðamálum í fyrirtækinu
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði matvæla- eða verkfræði
• Þekking og reynsla af öryggisstjórnun, gæðastjórnun og rekstri gæðakerfa
• Þekking á ISO 14001, ISO 45001, BRC og CE vottun er kostur
• Góð samskiptafærni, frumkvæði, drifkraftur og áreiðanleiki
• Góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
• Þekking og reynsla á Navision kostur
Umsóknarfrestur er til og með 30. júní nk.
Nánari upplýngar veitir Hlynur Atli Magnússon,
hlynur@hagvangur.is
Umsóknir með ítarlegri ferilskrá og
kynningarbréfi óskast fylltar út á hagvangur.is.
Tempra framleiðir umbúðir til flutnings
á ferskum matvælum og einangrun til
byggingaframkvæmda úr frauðplasti.
Fyrirtækið leggur áherslu á að veita hraða og
örugga þjónustu, hafa ávallt á boðstólum vöru
að jöfnum gæðum sem uppfyllir þau skilyrði
sem til hennar eru gerð og leggur metnað
sinn í að vera fremst á sínu sviði á Íslandi. Hjá
Tempru starfa um 30 manns.
Öryggis- og gæðastjóri
hagvangur.is
Íslenski dansflokkurinn óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra til að stýra
daglegri starfsemi flokksins. Framkvæmdastjóri heyrir undir og vinnur náið
með listrænum stjórnanda flokksins. Í boði er mjög áhugavert starf í lifandi
og skapandi umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Umsjón með öllum fjármálarekstri flokksins
• Samskipti við íslensk stjórnvöld, innlenda og erlenda samstarfsaðila
• Ábyrgð á samninga- og áætlanagerð, stefnumótun og skýrslugerð
• Umsjón með starfsmannamálum
• Erlend og innlend samstarfsverkefni
• Fjáraflanir
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi
• Reynsla af fjármálum og rekstri
• Reynsla af stjórnunarstörfum
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar
• Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Þekking og áhugi á menningarstarfi
Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí nk
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna
starfinu rökstudd.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Stefanía
Hildur Ásmundsdóttir, ráðgjafi,
stefania@hagvangur.is
Íslenski dansflokkurinn er sjálfstæð
ríkisstofnun. Hlutverk hans er að sýna
listdans, stuðla að nýsköpun í innlendri
listdanssmíði og vera vettvangur til eflingar
og framþróunar danslistar á Íslandi. Íslenski
dansflokkurinn hefur byggt upp nafn og
viðurkenningu á alþjóðlegum vettvangi á
undanförnum árum. Listrænn stjórnandi er
forstöðumaður dansflokksins og aðsetur er
í Borgarleikhúsinu. Nánari upplýsingar er að
finna á heimasíðu flokksins www.id.is
Framkvæmdastjóri
hagvangur.is