Fréttablaðið - 19.06.2021, Síða 35
hagvangur.is
Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða traustan leiðtoga í starf
framkvæmdastjóra bankasviðs. Viðkomandi heyrir beint undir
seðlabankastjóra og situr í framkvæmdastjórn bankans.
Bankasvið er eitt af kjarnasviðum bankans og er hlutverk þess að hafa
áhættumiðað eftirlit með starfsemi fjármálafyrirtækja. Eftirlitið felur m.a. í
sér reglubundna vöktun á starfsemi fyrirtækjanna á grundvelli gagnaskila
og mat á áhættu og stýringu hennar. Sviðið framkvæmir ítarlegt könnunar
og matsferli (e. SREP) á fjármálafyrirtækjum þar sem viðskiptaáætlanir eru
rýndar og mat lagt á áhættur er varða eiginfjár- og lausafjárstöðu. Sviðið
ber ábyrgð á að setja fjármálafyrirtækjum viðeigandi varúðarkröfur og hafa
eftirlit með framfylgni þeirra og annarra lögbundinna krafna.
Helstu verkefni
• Stýrir og leiðir starfsemi bankasviðs
• Mótar stefnu og framtíðarsýn sviðsins í samræmi við stefnu og markmið
bankans
• Ber ábyrgð á þróun aðferðarfræði við mat á áhættum fjármálafyrirtækja
• Ber ábyrgð á upplýsingagjöf um áhættu og stöðu fjármálafyrirtækja til
annarra starfseininga og nefnda bankans
• Byggir upp sterka liðsheild stjórnenda og sérfræðinga á sviðinu
• Tryggir traust samstarf við önnur svið og deildir innan bankans
• Ber ábyrgð á samskiptum sviðsins við eftirlitsskylda og opinbera aðila
• Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi, m.a. á vettvangi European Banking
Authority og við aðra seðlabanka
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi, einkum á sviði viðskipta- eða hagfræði
• Reynsla af stefnumótun og innleiðingu breytinga
• Sterkir leiðtogahæfileikar og góð stjórnunarreynsla
• Yfirgripsmikil þekking og reynsla af eftirlitsstörfum og/eða af
fjármálamarkaði
• Góð þekking á starfsemi fjármálafyrirtækja
• Góð færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
• Færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu
• Frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri í starfi
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Með
umsókn um starfið þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi
til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans. Laun greiðast
samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a.
stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Nánari upplýsingar veita Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is, og Íris Guðrún Ragnarsdóttir framkvæmdastjóri
mannauðs, iris.g.ragnarsdóttir@sedlabanki.is. Umsóknarfrestur er til og með 5. júlí nk.
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu
ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra.
Markmið bankans er að stuðla að stöðugu
verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og
öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn
sinna viðfangsefnum sem samrýmast
hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að
varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku
og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum
starfar öflug liðsheild og leggur bankinn
ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi
starfsumhverfi sem einkennist af trausti,
fagmennsku, þekkingu og framsækni.
Framkvæmdastjóri bankasviðs
hagvangur.is