Fréttablaðið - 19.06.2021, Blaðsíða 36
Skóla- og frístundasvið
Fjármálasérfræðingur - Skóla- og frístundasvið
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir starf fjármálasérfræðings laust til umsóknar. Leitað er að öflugum og
metnaðarfullum einstaklingi í fjármála- og rekstrarþjónustu skóla- og frístundasviðs. Næsti yfirmaður fjármálasérfræðings
er fjármálastjóri sviðsins og helstu verkefni tengjast fjármálaþjónustu, reikningsskilum og gerð fjárhagsáætlunar fyrir
starfsstaði sviðsins. Undir skóla- og frístundasvið heyrir rekstur leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva Reykjavíkur-
borgar, starfsemi Námsflokka Reykjavíkur og skólahljómsveita. Jafnframt greiðir sviðið framlög til sjálfstætt starfandi dag-
foreldra, leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla og hefur eftirlit með starfsemi þeirra. Skóla- og frístundasvið þjónustar yfir
20 þúsund börn og fjölskyldur þeirra. Útgjöld sviðsins eru u.þ.b. 59 milljarðar kr. á ári í tæplega 200 rekstrareiningum.
Umsókn fylgi starfsferilskrá og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Nánari upplýsingar veita Kristján Gunnarsson, fjármálastjóri og Guðmundur Guðbjörnsson, deildastjóri í síma 411-1111
Netföng: kristjan.gunnarsson@reykjavik.is / gudmundur.gudbjornsson@reykjavik.is
Umsóknarfrestur er til og með 5.júlí 2021.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristján Gunnarsson í síma 411-1111 og tölvupósti kristjan.gunnarsson@reykjavik.is
Helstu verkefni og ábyrgð
• Umssjón með fjárhagslíkani grunnskóla
• Gerð fjárhagsáætlana.
• Mánaðarleg uppgjör og frávikagreining.
• Fjárhagslegt eftirlit til að tryggja að útgjöld séu
innan fjárheimilda.
• Greiningarvinna og fjárhagseftirlit.
• Fjarhagsupplýsingagjöf til stjórnenda.
Hæfniskröfur
• Háskólagráða í viðskiptafræði eða önnur háskólamenntun
sem nýtist í starfi.
• Mastersgráða kostur.
• Reynsla af vinnu við uppgjör og áætlanagerð æskileg.
• Reynsla af lykiltalnagreiningu æskileg.
• Reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg
• Þekking á rekstri grunnskóla er kostur.
• Góð íslenskukunnátta ásamt færni til að tjá sig í ræðu
og riti.
• Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri
í starfi.
• Skipulagshæfni, nákvæmni og öguð vinnubrögð.
• Lipurð í samskiptum.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Krafist er háskólamenntunar í kirkjutónlist eða kórstjórn auk
reynslu af kórstjórn.
Aðalverkefni kórstjórans er að byggja upp og stjórna nýjum
KÓR HALLGÍMSKIRKJU.
Kórstjórinn vinnur í nánu samstarfi við organista og presta
kirkjunnar og tekur virkan þátt í helgihaldi og tónlistarlífi
safnaðarins.
Mikil áhersla er lögð á hæfni í mannlegum samskiptum.
Launagreiðslur miða við launataxta kjarasamnings FÍH.
Umsóknir merktar „Starfsumsókn“ ásamt prófskírteinum,
ferilskrá og kynningarbréfi sendist til Hallgrímskirkju
v/Hallgrímstorg, 101 Reykjavík, eða á netfangið
bjornsteinar@hallgrimskirkja.is.
Matsnefnd leggur tillögu um ráðningu fyrir sóknarnefnd.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf um miðjan ágúst nk.
Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar veitir Björn Steinar Sólbergsson organisti í
síma 856 1579.
Starf í Hallgrímskirkju
Hallgrímskirkja í Reykjavík
auglýsir eftir kórstjóra í 50% starf.
hagvangur.is
Elkem Ísland óskar eftir að ráða í starf controller á fjármálasvið
fyrirtækisins. Við leitum að öflugum aðila til að taka þátt í skemmtilegum
og krefjandi verkefnum í lifandi, alþjóðlegu umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Umsjón með reikningshaldi fyrirtækisins
• Ábyrgð á mánaðar- og ársuppgjöri ásamt samstæðureikningsskilum
með fjármálastjóra
• Kostnaðargreining og eftirfylgni
• Þátttaka í áætlanavinnu og umbótaverkefnum
• Undirbúningur lokafærslna og áætlana
• Greiningarvinna og stuðningur við aðrar deildir
• Umsjón með skjölun vegna milliverðlagningar
• Leiðandi í stafrænni umbreytingu
• Umsjón með skilum á gögnum til endurskoðenda og opinberra aðila
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun á sviði viðskiptafræða og reynsla af sambærilegu starfi
• Meistaranám á sviði reikningshalds er kostur
• Þekking og skilningur á helstu reikningsskilareglum
• Mjög góð Excel kunnátta, reynsla af PowerBI eða svipuðu er kostur
• Góð talnagleggni, greiningarhæfni og nákvæmni
• Geta til að vinna undir álagi og vaxtarhugarfar
• Lipurð í mannlegum samskiptum og metnaður til að ná árangri
• Hæfni til að miðla þekkingu og upplýsingum á íslensku og ensku
Umsóknarfrestur er til og með 30. júní nk.
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi
til að gegna starfinu rökstudd.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Stefanía
Hildur Ásmundsdóttir, ráðgjafi,
stefania@hagvangur.is
Rekstur verksmiðju Elkem Ísland ehf.
á Grundartanga hófst árið 1979, en eigandi
fyrirtækisins er Elkem AS í Noregi. Fyrirtækið er
með þrjá ljósbogaofna sem framleiða kísilafurðir.
Hjá Elkem Ísland starfa að jafnaði um 170 manns
en þó hafa um 250 lífsviðurværi sitt með beinum
hætti af starfsemi verksmiðjunnar. Elkem Ísland
er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður þar sem
áhersla er lögð á að skapa sterka liðsheild og
vinnuumhverfi sem veitir einstaklingum tækifæri
til að vaxa og þróast í starfi.
Finance Controller