Fréttablaðið - 19.06.2021, Qupperneq 42
Embætti skólameistara
Verkmenntaskóla Austurlands
Skólameistari veitir skólanum forstöðu, stjórnar daglegum rekstri og starfi
skólans og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðal-
námskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Hann ber ábyrgð á gerð
fjárhagsáætlunar og að henni sé fylgt auk þess að hafa frumkvæði að gerð
skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans. Skólameistari gegnir mikilvægu
hlutverki í mótun skólastarfs á grundvelli laga og aðalnámskrár framhaldsskóla
og er mikilvægt að umsækjendur hafi skýra framtíðarsýn hvað þetta varðar.
Hæfni- og menntunarkröfur:
• Starfsheitið kennai ásamt viðbótarmenntun í stjórnun eða
kennslureynslu á framhaldsskólastigi.
• Þekking á fjármálum, rekstri og áætlanagerð
• Þekking og reynsla af stjórnsýslu
• Umfangsmikil stjórnunarreynsla og leiðtogahæfni.
• Góð samskiptahæfni og færni í að skapa liðsheild á vinnustað.
• Reynsla af verkefnastjórnun og stefnumótunarvinnu.
• Skýr framtíðarsýn og hæfileiki til nýsköpunar.
Ráðning og kjör
Mennta- og menningarmálaráðherra skipar skólameistara til fimm ára í senn að
fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla,
nr. 92/2008, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996,
með síðari breytingum.
Skipað er í embættið frá 1. september 2021.
Um ráðningu og launakjör skólameistara fer eftir 39. gr. a í lögum um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996 og 14. gr laga um menntun og ráðningu
kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, nr.
87/2008.
Nánari upplýsingar um embættið má finna á vefsíðu Starfatorgs.
Umsóknarfrestur er til og með 1.7.2021.
Verkmenntaskóli
Austurlands í
Neskaupsstað er
áfangaskóli sem
býður upp á verk-
og bóknám, bæði
styttri brautir og
brautir til starfsrétt-
inda og stúdents-
prófs. Skólinn er eini
framhaldsskólinn á
austanverðu landinu
sem gefur nem-
endum kost á að
leggja stund á nám í
fjölbreyttum iðn- og
starfsnámsbrautum
auk bóknámsbrauta.
Starfsmenn skólans
eru um 40 talsins og
fjöldi nemenda er um
250, þar af 150 í dag-
skóla og 100 í fjar-
námi. Verkmennta-
skóli Austurlands var
stofnaður árið 1986.
Helstu verkefni:
– Umsjón með umhverfisvottunum í framkvæmdaverkefnum,
s.s. Svansvottun og BREEAM
– Gögn um umhverfismál fyrirtækisins, kolefnisspor, losun o.fl.
– Þátttaka í rekstri og stýringu gæða-, umhverfis- og
öryggisstjórnunarkerfis fyrirtækisins
JÁVERK er 28 ára öflugt, áreiðanlegt og metnaðarfullt verktaka-
fyrirtæki. Starfsmenn eru um 120 í dag og verkefnastaða fyrir tækisins
er traust næstu árin. JÁVERK leggur áherslu á umhverfis-, öryggis- og
gæðamál ásamt samstarfshæfni. JÁVERK er eina verk takafyrirtækið
í flokki stórra fyrirtækja sem hefur fengið viður kenningu Creditinfo
sem Framúrskarandi fyrirtæki á hverju ári frá 2014. Gæðakerfi fyrir-
tækisins var vottað skv. ISO 9001 staðlinum árið 2019.
Starfsmannastefna fyrirtækisins gerir ráð fyrir að aðbúnaður og
starfsumhverfi séu með því besta sem þekkist. Starfsandi er frábær
og dugmikið starfsmannafélag stendur fyrir margskonar skemmtunum
og ferðalögum. Starfsmannavelta er mjög lítil. JÁVERK leggur áherslu
á að ráða kraftmikið og metnaðarfullt fólk sem sýnir frumkvæði og
sjálfstæði í starfi.
JÁVERK
Gagnheiði 28
800 Selfoss
Sími 480 1700
javerk@javerk.is
www.javerk.is
Verkefnastjóri í gæða-,
umhverfis- og öryggismálum
Hæfniskröfur:
– BSc eða MSc í verkfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi
– Sjálfstæði í vinnubrögðum
– Góð hæfni í rituðu og töluðu máli
– Frumkvæði, áræðni og metnaður
– Hæfni í mannlegum samskiptum
Vegna aukins fjölda umhverfisvottaðra framkvæmda óskum við eftir að ráða verkefnastjóra
til að sinna gæða-, umhverfis- og öryggismálum.
Umsóknir sendist á javerk@javerk.is fyrir 25. júní. Fullum trúnaði heitið.Starfsstöð er á skrifstofum fyrirtækisins í Kópavogi.
Erum við
að leita
að þér?