Fréttablaðið - 19.06.2021, Síða 43
Þátttakandi
í íslensku
atvinnulífi
í 50 ár
Þarftu að ráða starfsmann?
RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 • www.radum.is • radum@radum.is
Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf.
Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum
lausnir sem henta hverjum viðskiptavini.
Ármúli 2 ı 108 Reykjavík ı Sími 480 6000
Sérfræðingur,
leyfisveitingar
og ökunám
Í boði er spennandi starf hjá
metnaðarfullri stofnun í alþjóð-
legu umhverfi. Við bjóðum upp á
góða starfsaðstöðu og frábæra
vinnufélaga.
Við hvetjum öll kyn
til að sækja um.
Umsóknarfrestur
er til 26. júní 2021
Hægt er að sækja um
starfið rafrænt á
samgongustofa.is/storf.
Upplýsingar um
Samgöngustofu má finna
á samgongustofa.is
Samgöngustofa leitar að öflugum einstaklingi í stöðu sér-
fræðings í deild leyfisveitinga og ökunáms á sviði umferðar
og þjónustu.
Meðal verkefna er umsjón með starfi stofnunarinnar sem snýr að viðurkenndum
réttingarverkstæðum, umsjón með verkefnum sem tengd eru flutningi á
hættulegum farmi á landi (ADR), þróun ferla og vinna við áhættumiðað eftirlit,
undirbúningur reglugerðarbreytinga, þróun verkferla og gerð verklagsreglna.
Um er að ræða nýja stöðu og tækifæri til að taka þátt í mótun og nútímavæðingu
á ferlum á sviði umferðarmála. Sérfræðingur mun bera ábyrgð á ákveðnum
ferlum og vinna önnur verkefni í samstarfi við aðra starfsmenn.
Starfshlutfall er 100%. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á ökutækjum,
umferðaröryggismálum, stöðugum umbótum og er góður liðsmaður.
Menntunar- og hæfnikröfur
• Háskólamenntun á tæknisviði sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði eða
tæknifræði. Gerð er krafa um BA eða BS gráðu.
• Góð greiningarhæfni og geta til að setja sig inn í tæknilegar reglugerðir.
• Þekking og reynsla á stjórnarkerfum s.s. gæðastjórnunarkerfum er kostur.
• Skipulagshæfni og sterk ferla- og umbótahugsun.
• Sjálfstæði, frumkvæði og metnaður í starfi.
• Samskiptafærni, góð þjónustulund og jákvætt hugarfar.
• Mjög góð enskukunnátta.