Fréttablaðið - 19.06.2021, Page 68
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Á. Hjörleifsson
rafvirki,
Garðatorgi 17,
Garðabæ,
lést á Landspítalanum 10. júní.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju Garðabæ
miðvikudaginn 23. júní kl. 13.
Lilja Jónsdóttir
Halldóra Jónsdóttir
Hjörleifur Már Jónsson Þóra Hafsteinsdóttir
Jóna Margrét Jónsdóttir Viktor Sighvatsson
Guðbjartur Jónsson Erla Einarsdóttir
Kolbrún Jónsdóttir
Kristbjörg Lilja Jónsdóttir Helgi Harðarson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir mín og frænka okkar,
Ingunn Halldórsdóttir
áður Nökkvavogi 24,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund,
miðvikudaginn 9. júní.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju
þriðjudaginn 22. júní kl. 15.
Halldór B. Jónsson
Einar Hjaltested Svanhildur Elentínusdóttir
Margrét Theódóra Hjaltested
Einar Kristinn Hjaltested María Gísladóttir
Hrefna María, Hrafnhildur, Karólína,
Katrín Eva og Ari Gísli.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Aðalheiður Sigvaldadóttir
Mánatúni 9,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
þriðjudaginn 8. júní.
Útför verður gerð frá Háteigskirkju
þriðjudaginn 22. júní kl. 13.00.
Gunnar Heiðar Guðjónsson
Anna Guðbjörg Gunnarsdóttir Daði Björnsson
Guðmundur Ingi Gunnarsson Patrizia Cipriani
Elín Heiður Gunnarsdóttir Davíð Jens Guðlaugsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Sími · 567 9110 · utfarir@utfarir.is · www.utfarir.is
Stofnað 1990
Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir
síðan 1996
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Sigurður Bjarni Jónsson útfararstjóriMagnús Sævar Magnússon útfararstjóri
Guðmundur Baldvinsson útfararstjóri Jón G. Bjarnason útfararstjóri
Hjartans þakkir til allra sem
sýndu okkur samúð, hlýju og
ómetanlegan stuðning vegna andláts
og útfarar ástkærrar eiginkonu, besta
vinar, móður, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
Jóhönnu Hólmfríðar
Óskarsdóttur
Sunnubraut 7, Þorlákshöfn.
Sérstakar þakkir færum við fjölskyldan starfsfólkinu
á A6, lungnadeild Landspítalans í Fossvogi, fyrir góða
umönnun, ljúft viðmót og hlýju.
Kári Böðvarsson
Óskar Ingi Böðvarsson Kristrún Hafliðadóttir
Tómas Þór Kárason Rúrí Eggertsdóttir
Anna Margrét Káradóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Við þökkum auðsýnda samúð við
fráfall og útför eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
Sigurðar Samúelssonar
Edda Ögmundsdóttir
Kristján Sigurðsson
Sigurður Sigurðsson Guðrún Lilja Jónsdóttir
barnabörn og langafabarn.
Nýr kammerhópur kemur fram
á sjónarsviðið á morgun í Hann-
esarholti og spilar fjögur verk, eitt
þeirra, Draumsýn, samdi Gísli
Magnússon fyrir hópinn.
gun@frettabladid.is
„Þetta er frumburður okkar Gunn-
hildar Daðadóttur saman,“ segir Guðný
Jónasdóttir sellóleikari glaðlega um
fyrstu tónleika Kammerhópsins Jöklu
á morgun í Hannesarholti. Þeir hefjast
klukkan 14. Hún tekur fram að þær
Gunnhildur eigi fimm börn samtals
og hafi því verið dálítið í fæðingaror-
lofi frá fagvinnu sinni í Sinfó. Nú hafi
þeim þótt þörf á að gera eitthvað rót-
tækt, enda hafi þær ákveðið að vera í
sömu kúlu í kófinu, hittast og spila til
að halda geðheilsu, með krílin á leik-
teppum eða í pössun.
Með þeim stöllum leika í Jöklu þau
Julia Hanstschel óbóleikari, Grímur
Helgason klarinettuleikari og Guðrún
Hrund Harðardóttir víóluleikari. „Ég
kynntist Júlíu þegar ég var í námi í Bret-
landi, þar spiluðum við saman í hljóm-
sveit og alls konar hópum. Gaman að
hún skuli hafa fengið vinnu hjá Sinfó,
það eru ekki margir leiðandi óbóspilarar
í heiminum.“
Blásarakvartettar eftir B.Britten,
J.C.Bach og B.H.Crusell eru á efnis-
skránni og að endingu leikur Jökla glæ-
nýtt verk eftir Gísla Magnússon tónskáld
sem nefnist Draumsýn. Guðný segir
hann hafa samið það sérstaklega fyrir
hópinn. „Það er spennandi verk, alger-
lega enginn púls en mjög nákvæmlega
út skrifað og sérstakur hljóðheimur sem
skapast. Ef fólk getur séð fyrir sér fugla
og fiðrildi getur það notið hans!“ ■
Sérstakur hljóðheimur skapast
Guðný Jónasdóttir, Guðrún Harðardóttir, Gunnhildur Daðadóttir, Grímur Helgasonog Julia Hantschel. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ef fólk getur séð fyrir sér
fugla og fiðrildi getur það
notið.
Merkisatburðir
1953 Forseti Íslands undirritar Mannréttindasáttmála
Evrópu.
1981 Tveir eggjaþjófar með á annað hundrað andaregg í
fórum sínum eru handteknir á Keflavíkurflugvelli, á
leið úr landi.
1982 Minnisvarði um Ásgrím Jónsson listmálara er af-
hjúpaður í Rútsstaðahjáleigu í Flóahreppi, þar sem
hann var fæddur.
1987 Nýtt útvarpshús er tekið í notkun við Efstaleiti í
Reykjavík.
1994 Björk Guðmundsdóttir heldur sína fyrstu tónleika á
Íslandi eftir að hún öðlast heimsfrægð.
2015 Höggmynd af Ingibjörgu H. Bjarnason, fyrstu
konunni sem kosin var á Alþingi, er vígð. Hún er við
Skála, viðbyggingu Alþingishússins.
28 Tímamót 19. júní 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐTÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 19. júní 2021 LAUGARDAGUR