Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Page 6

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Page 6
starfsmanna. En hvaða leiðir koma þá íil greina í því efni? Ef um störf er að ræða í opinberri þjónustu, sem eru samskonar eða sam- bærileg við störf unnin á almennum vinnumarkaði, hljóta launakjör þeirra að ákveðast með hliðsjón af launakjörum samkvæmt gildandi samningum þar um. Opinberir starfsmenn eiga að sjálfsögðu ekki að sætta sig við lakari kjör en aðrir vinnukaupendur en hið opinbera bjóða hverju sinni, og á hinn bóginn verður tæplega unnt nokkru sinni að knýja kaupið upp fyrir þetta mark, þar sem hið opinbera á þess ávallt kost að ráða til sín starfskrafta fyrir sama kaup og greitt er á almennum vinnumarkaði. Að því leyti, sem telja má að opinberir starfsmenn njóti sérstakra hlunninda, er metin verða til peninga, koma þau til frádráttar í laununum eftir sanngjörnu mati. Nú er það hinsvegar ekki nema nokkur hluti opinberra starfsmanna, sem þannig háttar um, að hægt sé að finna sambærileg störf á almennum vinnumarkaði. Verður þá að ákveða launakjör fyrir þau störf sam- kvæmt mati á þeirri ábyrgð, sem störf- unum fylgir, kostnaði við undirbúnings- menntun, sérstökum hæfileikum, er e. t. v. verður að krefjast til starfans o. s. frv. Verður það mesti vandinn við undirbún- ing launalaganna, að ákveða launin fyrir þau störf, er þannig háttar um, að ekki finnst neitt sambærilegt á almennum vinnumarkaði. Launajöfnun sú, er átt hefir sér stað að undanförnu, hefir smám saman gert launakjör flestra þessara starfshópa óviðunandi, og verður því að leggja á það mikla áherzlu við undirbún- ing launalaganna að fá á þeim viðunandi lagfæringu. Þá ber og til þess brýna nauðsyn frá hagsmunasjónarmiði opinberra starfs- manna, að sett verði inn í lögin ákvæði þess efnis, að laun þeirra hækki fram- vegis sjálfkrafa til samræmis við al- mennar launahækkanir eftir föstum regl- um. Fáist slík ákvæði ekki sett inn í launin, getur sú lausn, er með þeim fæst, aldrei orðið til frambúðar. Með því móti einu er líka mögulegt að fyrirbyggja sí- felldar launadeilur milli stjórnarvald- anna og starfsmanna þeirra, launadeilur, sem starfsmönnum eru ekki síður ógeð- felldar en yfirboðurum þeirra, þótt þær verði að vísu ill nauðsyn frá sjónarmiði starfsmannanna meðan ekkert raunhæft hefir verið gert til þess að fyrirbyggja þær. Sú skoðun er röng, að slík ákvæði myndu leggja óbærilegar byrðar á herðar ríki og bæjarfélögum. Meðan ekki er um annað og meira að ræða en það, að hækka kaup opinberra starfsmanna til sam- ræmis við almennar hækkanir á kaup- gjaldi og verðlagi, er ekki um raunveru- lega aukna útgjaldabyrði hins opinbera að ræða, þar sem gera má ráð fyrir því, að tekjur hins opinbera reksturs hækki að jafnaði sjálfkrafa til samræmis við al- mennar kaup- og verðlagshækkanir, heldur er hér aðeins um að ræða trygg- ingu fyrir því, að verðbólgan skerði ekki hlut opinberra starfsmanna meira en ann- arra launþega. Eins og kunnugt er, hefir sú regla um langt skeið verið löghelguð, að landbún- aðarafurðir skuli hækka til samræmis við hækkun kaupgjalds iðnaðarmanna og verkamanna í kaupstöðum og kauptún- um. Virðist síður en svo ósanngjarnt að opinberum starfsmönnum verði í því efni tryggð svipuð aðstaða og bændur hafa nú. Eg vil svo ljúka þessum hugleiðingum um launamálið með áskorun til opinberra starfsmanna um það, að jafnframt því að baráttan fyrir frambúðarlausn launa- málsins á þessu ári verði háð með íestu, verði dómgreind og róleg íhugun um þetta flókna og margþætta vandamál látin móta þær baráttuaðferðir, sem notaðar verða og þau markmið, sem sett verða, því með því móti einu er giftudrjúgs ár- angurs að vænta. 4 ÁSGARÐUR

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.