Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Qupperneq 9

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Qupperneq 9
Dr. Jóhannes Nordal hagfrœðingur: Vísitölukerfið og launokjörin Erindi flutt á þingi Bandalags starfsmanna rikis og bœja 14. nóvember 1954. I. Mér þætti trúlegt, að hinum löngu liðnu hagfræðingum, sem fyrstir notuðu vísi- tölur, mundi óa við þeim örlögum, sem þetta hugarfóstur þeirra hefur hlotið hér á landi. Verðlagsvísitalan er ætluð til þess eins að gefa til kynna, hvernig meðalverðlagið hreyfist. Grundvöllur hennar er lítið úrtak úr verðlaginu, enda eru margir fræðimenn mjög vantrúaðir á nákvæmni hennar og vilja ekki nota hana nema með ýtrustu varkárni. En svo komust stjórnmálin inn í must- eri vísindanna og rændu þessu vandmeð- farna afkvæmi þeirra. í stað þess, að hún hafði áður aðeins verið talin ófullkominn mælikvarði á verðlagið, var vísitalan nú hafin upp og gerð að drottningu þess, svo að á endanum snerist nær allt verð- myndunarkerfið í kringum hana. Fyrst í stað var hún saklaus og óspillt, en upp- hefðin og baráttan um hylli hennar hafa stigið henni til höfuðs og fyllt hana falsi og rangsleitni. Hún er nú orðin sterkari en þeir, sem hófu hana til vegs, og ríkir með rangindum og hlutdrægni. Og ef hún væri aftur rekin heim til föðurhúsanna, mundu vísindamennirnir varla þekkja hana aftur, svo breytt er hún orðin, og líklega mundu þeir efast um, að hún væri til nokkurs nýt framar. í þessu erindi ætla ég að ræða lauslega nokkur atriði úr þessari raunasögu og um áhrif vísitölukerfisins á kjör manna og á efnahagslífið í heild. II. Mönnum er nú allsstaðar ljóst orðið, að tilgangur kjarabaráttu hlýtur ætíð að vera sá að auka raunverulegan kaupmátt launanna. Reynsla langvarandi verðbólgu hefur sýnt, hve fánýtar kauphækkanir eru í sjálfu sér, ef vöruverðið hækkar jafnmikið eða meira. Frá sjónarmiði hverrar einstakrar stéttar þjóðfélagsins geta kjarabætur orðið á tvennan hátt. Annarsvegar getur hlutdeild hennar í þjóðartekjunum vaxið á kostnað annarra stétta, án þess að þjóðartekjurnar sjálfar breytist nokkuð. Hinsvegar getur fram- leiðsla þjóðfélagsins í heild vaxið og þar af leiðandi raunverulegar tekjur á mann í öllum atvinnugreinum þess. Baráttan um skiptingu þjóðarteknanna er ævagömul og má ef til vill segja, að hún sé jafngömul skipulögðu þjóðfélagi. En sé litið á sögu undanfarinna áratuga í þeim löndum, þar sem rækilegastar tölu- legar upplýsingar eru til, hefur þessi bar- átta ekki leitt til mikilla hlutfallslegra ÁSGARÐUR 7

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.