Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Side 12

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Side 12
er að finna í jafnvægisleysi íslands gagn- vart útlöndum. Flest árin eftir styrjöld- ina hefur verið við mikinn gjaldeyrishalla að stríða, og afkoma útflutningsframleiðsl- unnar hefur verið miklu verri en nokkurs annars atvinnureksturs. Þetta misræmi er ekki hægt að leiðrétta nema hlutfallið milli innlends og erlends verðlags breyt- ist, svo að útflutningurinn geti borið sig og eftirspurn eftir innfluttum vörum dragist saman. Allur almenningur var vafalaust á móti verðlækkunum á innan- landsmarkaði fyrstu árin eftir stríðið, og í þess stað var gripið til útflutnings- styrkja. Með miklum kostnaði og æ þyngri álögum tókst að halda atvinnuveg- unum starfandi, en meinið var ólæknað þrátt fyrir það. Loks var horfið að því ráði að lækka gengið, en það er einfaldasta og skjót- virkasta leiðin til að koma á jafnvægi milli innlends og erlends verðlags. Þegar gengi gjaldmiðils er lækkað, hækka er- lendar vörur í verði, og tekjur þeirra, sem framleiða fyrir erlendan markað hækka í hlutfalli við tekjur annarra stétta þjóð- félagsins. En þetta tvennt er einmitt höfuðtilgangur gengislækkunar, því að á þann hátt er útflutningur örfaður og dregið úr eftirspurn eftir innflutningi. Það er því nauðsynlegt að komast hjá meiri verðhækkun innanlands en nemur beinni hækkun erlendra vara, og þess- vegna þarf að forðast bæði verðþenslu og launahækkanir. Hvorugu skilyrðinu var fullnægt hér á landi, en sérstaklega átti vísitölufyrirkomulagið drjúgan þátt í því að þurrka út meginhlutann af ávinningi gengislækkunarinnar. Afleiðingin var sú, að bátagjaldeyririnn var settur á lagg- irnar níu mánuðum eftir gengislækkun- ina, og nú erum við nýbúin að fá styrki handa togurunum. Eg er sannfærður um það, að gengis- lækkunin hefði haft minni kjaraskerð- ingu í för með sér, ef tekizt hefði að halda launakjörum og verðlagi innlendrar fram- 10 ÁSGARÐUR leiðsluvöru óbreyttu. Þegar jafnvægis- leysi er út á við, kemst þjóðin ekki hjá því að taka á sig þann kostnað, sem því fylgir. Menn eru hinsvegar hræddir við verðhækkanir og gengisbreytingar, en vara sig ekki á kjaraskerðingu í öðru formi. En það er ekki betri sú músin, sem læðist, en hin, sem stekkur. A margvíslegan hátt hefur launastétt- unum verið gert að bera kostnaðinn af jafnvægisleysinu og hallanum gagnvart útlöndum. Bátagjaldeyrir, styrkir við togaraflotann, niðurgreiðslur, háar álögur og það, sem nefnt hefur verið fölsun vísi- tölunnar, hafa komið í stað heilbrigðari ráða til þess að leiðrétta misræmið í þjóðarbúskapnum. Þessar ráðstafanir allar hafa ekki aðeins haft gífurlegan beinan kostnað í för með sér fyrir fast- launamenn, sem yfirleitt greiða þyngri skatta en aðrar stéttir, heldur hafa þær í för með sér ómælanlegt tap fyrir allt þjóðarbúið vegna þeirra áhrifa, sem þær hafa á skiptingu framleiðsluþáttanna milli atvinnuvega og val neytandans. Islendingar eru komnir langar leiðir frá frjálsu markaðshagkerfi, en þrátt fyrir allar takmarkanir þess, þekkja menn ekkert annað skipulag, sem tryggir jafn- vel hagkvæma notkun þjóðarauðsins á grundvelli þeirrar tekjuskiptingar, sem ríkjandi er á hverjum tíma. Að vísu trúa ýmsir á það, að fullkominn áætlunarbú- skapur geti náð sama tilgangi og geti jafnvel gert betur, en forsendur brestur fyrir því, að reynt sé að fara þá leið hér á landi, og skal því enginn dómur á hana lagður. Bátagjaldeyririnn og togarastyrkirnir nýju hafa þann tilgang að flytja til tekjur milli stétta, það er að segja frá neytend- um innflutnings og í hendur útflytjenda. Allar ráðstafanir, sem miða að jafnvægi gagnvart útlöndum mundu hafa þennan sama tilgang, en þær leiðir, sem nú hafa verið nefndar hafa ýmsa ókosti t. d. í samanburði við verðhjöðnun innanlands

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.