Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Qupperneq 13

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Qupperneq 13
eða gengislækkun. í fyrsta lagi koma álög- urnar aðeins niður á vissum vöruflokk- um, sem þannig verða gífurlega dýrir. Heildarálögur á bíla nema nú hvorki meira né minna en 200%. Þetta verður til þess að neytandinn getur ekki fengið það fyrir fé sitt, sem hann helzt vildi kjósa. Allir tollar og aðrar álögur, sem koma misjafnt niður á vörutegundum, hafa óhagstæð áhrif á val neytandans og verða því til þess, að hann fær raunverulega minna fyrir tekjur sínar en ella. Séu tollar og álögur eins misjafnar og orðið er hér á landi, hlýtur það að hafa í för með sér gífurlegt þjóðfélagslegt tap, sem allir neytendur verða að bera. I öðru lagi koma útflutningsuppbæturnar mjög mis- jafnlega niður. Lengi vel var bátaútvegur einn styrktur, unz hann fór að bera sig miklu betur en aðrir útflutningsatvinnu- vegir og dró jafnvel menn frá togaraflot- anum, sem komst að lokum líka á vonar- völ. Allir atvinnuvegir þjóðarinnar verða að standa jafnt að vígi, ef framleiðslu- getan á að nýtast til fulls, og vinnuafl og fjármagn verður að fá að leita til þeirra atvinnuvega, sem eru hagkvæmastir fyrir þjóðarheildina. En nú munu margir rísa upp og segja: Það er full ástæða til að styðja einn atvinnuveg fremur en annan, það þarf að koma í veg fyrir flóttann úr sveitunum, viðhalda jafnvægi í byggð landsins o. s. frv. Eða: Það er engin ástæða til að gera öllum vörum jafnhátt undir höfði, nauð- synjarnar verða að sitja fyrir óþarfanum. Ég ætla aðeins að ræða þessa síðari kenningu, enda á hún almennara fylgi að fagna. Hún er líka nátengd vísitöluvanda- málinu. Til þess að koma í veg fyrir kaup- hækkanir hefur verið gripið til þess að halda vísitölunni niðri með niðurgreiðsl- um og verðlagseftirliti með þeirn rökum að tryggja ætti mönnum ódýrar nauð- synjar. Hinsvegar hefur verið hlaðið tollum og sköttum á aðrar vörutegundir, sem taldar eru óþarfi. Þessi leið er aðeins til hagsbóta fyrir allra fátækustu þegna þjóðfélagsins, sem aðeins geta veitt sér brýnustu nauðsynjar, en réttara væri að styðja þá á annan og ódýrari hátt, t. d. með beinum styrkjum. Meginþorri lands- manna býr við svo góð kjör, að hinn svo- kallaði óþarfi er drjúgur hluti heildar- neyzlunnar. Bátagjaldeyririnn leggst á margar vörutegundir, sem hvert heimili notar, t. d. margskonar fatnað og heim- ilistæki. Ef þessar vörur lækkuðu í verði mundi það vera jafnmikil hagsbót eins og niðurgreiðsla á mjólk eða tollfrelsi sykurs og kaffis. Frá sjónarmiði hinna raunverulegu lífskjara eru því hinar ódýru nauðsynja blekking ein, ef þeim er samfara ránverð á annarri neyzluvöru. Hver neytandi ætti að fá að velja sjálfur, hvernig hann álítur heppilegast að verja tekjum sínum, án þess að gera neyzlu misjafnlega hátt undir höfði eftir því, hvers eðlis hún er. Vísitölukerfið hefur átt drjúgan þátt í því að skapa þetta misræmi, og þar með að gera raunverulegar tekjur miklu minni en ella. En það hefur haft ýmsar aðrar afleiðingar, sem einnig eru óheppilegar. Smám saman hafa vísitölumálin orðið mikilvægasti þáttur kjarabaráttunnar, og aðrar breytingar á launum eftir því, hvað mundi henta bezt til að auka afköst eða til að draga að hæfan vinnukraft, hafa horfið í skugga hennar. Togstreytan um vísitöluuppbótina hefur þar að auki orðið til þess, að launaflokkum hefur verið stórlega mismunað, svo að launamunur eftir störfum og starfsaldri er miklu minni en þyrfti að vera, ef tryggja ætti hæfa og óskipta menn í ábyrgðarstöður og veita mönnum hvatningu til að vinna sig upp í þjónustu ríkis og opinberra stofnana. V. Vísitölukerfið var sett á laggirnar til þess að vernda hagsmuni launastéttanna, en ég hef reynt að sýna fram á, hve óhag- ÁSGARÐUR 11

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.