Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Qupperneq 15
Chevrolet ’55 er algerlega ný bifreið — yzt sem innst, framleidd með meiri
og fullkomnari tækni en nokkru sinni fyrr, öruggari, þægilegri og fegurri en áður.
Færustu tæknilistamenn nútímans hafa skapað útlit Chevrolet bifreiðanna, lækkað !|
þak og þyngdarpunkt til öryggis, án þess að lækka gúlfhæð bifreiðarinnar. Hin nýja !;
hálfhringsrúða skapar ekki aðeins nýjan svip yfir bifreiðina, heldur veitir hún öku- !;
manni stóraukinn sjóndeildarhring og eykur þannig öryggi. Framljósin hafa fengið ;>
skyggni og afturljósin hafa verið hækkuð til að binda endahnút á hinar fögru línur ;•
bifreiðarinnar —- og jafnframt til þess, að þau sjáist betur og skapi einnig meira ;!
öryggi. Loftræstingin er hin fullkomnasta, og er loft tekið inn ofan á vélarhúsi, svo að ;!
sem minnst ryk berist með því. Mittislínan á Chevrolet ’55 skapar svip, sem áður j!
fékkst aðeins a dyrustu bifreiðategundum og litafjölbreytnin er meiri en nokkru !;
sinni áður. ;>
Skoðið Chevrolet '55 og berið saman við aðrar bifreiðir. Þér munuð sannfærast !;
um, að það er ekki að astæðulausu, að af engri bifreiðategund í heiminum er eins ;>
mikið keypt og Chevrolet. Reynslan sannar og, að Chevrolet hentar íslenzkum að- ;!
stæðum með miklum ágætum. !;
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA 1
BIFREIÐADEILD
ÁSGARÐUR 13