Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Side 18

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Side 18
ingar Hagstofu íslands um að launabreyt- ingar verkalýðs og iðnstétta frá árinu 1945 til okt. 1954 næmu 24—25% hækkun. Hér er því um nokkru lægri grunn- kaupshækkun að ræða, er hlotnaðist opin- berum starfsmönnum en gildandi kaup- taxti sambærilegra starfsstétta á frjálsum vinnumarkaði sýnir, enda var því lýst yfir af hálfu ríkisstjórnarinnar, við sendinefnd frá þingi B. S. R. B., er haldið var í nóv. s.l., að því aðeins gæti orðið um hækkun téðra bóta á grunnlaun þeim til handa að ræða, að sú ráðstöfun út af fyrlr sig kæmi ekki til með að valda ókyrrð á frjálsum vinnumarkaði. — Við þá yfirlýsingu stóð núverandi ríkisstjórn, enda höfðu opin- berir starfsmenn ekki meira upp úr krafsinu en það, að þessar uppbætur eru almennt kallaðar „smánarbætur“. Þá er þess að geta að flestar iðn- stéttir a. m. k. vinna ekki eftir hinum opinberu töxtum, en vinna eftir uppmæl- ingum og „sérsamkomulagi“ er gefur miklum mun hærri daglaun. Að þessu leyti er samanburðurinn, sem uppbæt- urnar eru byggðar á (og fela í sér að dómi H. S. stórfelldar kjarabætur til handa opinberum þjónustumönnum) mjög óhag- stæður. Þá koma fram í grein H. S. og enda hjá almenningi mjög ósanngjarnar og vill- andi fullyrðingar um að fastlaunamönn- um hjá því opinbera beri að láta sér nægja lág laun, fyrst og fremst af þeirri ástæðu að afkoma þeirra, vegna fastra árslauna sé trygg. — Það er að vísu rétt að nokkuð ber að taka tillit til þessa öryggis, enda hefur það jafnan verið gert í ríkum mæli. En það ber vel að athuga, er laun opin- berra starfsmanna eru ákvörðuð hverju sinni, að það er rangt að einblína á þetta atriði svo til einvörðungu, og er það ekki nema eitt af mörgum. Þess ber t. d. einnig að gæta, að ríkinu er nauðsynlegt að hafa fast þjónustulið, til þess að annast sinn fjölþætta rekstur, og fyrir þá nauosyn verður það að greiða þessum launþegum 16 ÁSGARÐUR sambærileg laun og öðrum þjóðfélags- þegnum, sem einnig eru fastir launþegar, þótt þeir séu ekki launþegar hins opin- bera. Launþegar ríkisins og bæjarfélaganna þurfa þannig að fá grunnlaun í réttlátu hlutfalli við aðra borgara, en auk þess við- bótarlaun fyrir sérhæfni sína eins og aðrir menn, en það er að sjálfsögðu mats- atriði hverju sinni, en til þessa hefur hvorttveggja verið undirborgað í öllum tilfellum, miðað við greiðslur á frjálsum vinnumarkaði. — Þetta hefði ritstjóri Al- þýðublaðsins átt að skilja, er hann tók ákvörðun um að birta grein þessa, en greinarhöfundi er það meira vorkunnar- mál. Þá er það um „samninginn“ er ríkis- stjórnin hefur átt að gera við fulltrúa frá opinberum starfsmönnum. Hér var og er ekki um samning að ræða milli þessara aðila. Hér var tekin ákvörðun af Alþingi að tilhlutan ríkisstjórnar, að loknum við- ræðum er fram fóru, þar sem annar aðil- inn, þ. e. ríkisvaldið, hafði nokkurn vilja til að koma til móts við hinn en hafði þrátt fyrir það ákvörðunarvaldið algerlega í sinni hendi. í niðurlagi greinarinnar fjargviðrast greinarhöfundur út af fjölskyldubótum, og telur þær ósanngjarnar greiðslur í samanburði við aðrar lífeyrisgreiðslur, og virðist átelja desembersamkomulagið frá 1952 að þessu leyti. Ut í þessa sálma skal ekki farið. Þó vil ég upplýsa H. S. um það (og ritstjóra Alþýðublaðsins einnig) að fjölskyldubætur, eða greiðslur vegna ómegðar, eru mjög góð og hagkvæm að- ferð einmitt í sambandi við launaákvarð- anir, því ákvarðanir grunnlauna verða ávallt að miðast við eitthvert „norm“ af fjölskyldustærð. Venjulega er um að ræða 5 manna fjölskyldu, þessvegna þarf að tryggja með öðrum hætti lífeyrisgreiðslur að einhverju leyti til viðbótar launa- greiðslum, þeim bömum, sem eru umfram 2—3 í fjölskyldu, því annars er þeirra

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.